„Við höfum gott af því að rífast aðeins“ Freyja Þórisdóttir skrifar 27. ágúst 2026 16:04 Kosningabaráttan hingað til var gerð upp af álitsgjöfum í fjórða og síðasta Pallborði Vísis í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardaginn. Sýn/Sigurjón Þau Þórhildur Þorkelsdóttir ráðgjafi og hlaðvarpsstjórnandi, Þórarinn Hjartarson hlaðvarpsstjórnandi og Lilja Katrín Gunnarsdóttir útvarpskona mættu í fjórða og síðasta Pallborð Vísis fyrir laugardaginn 29. ágúst. Þar voru þau einróma um að þjóðin hefði gott af umræðunni sem hafi skapast í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið. „
Það er svo brjálaðslega skemmtilegt hvað þarna kristallast bilaðar andstæður,“ sagði Lilja meðal annars en hún útskýrði að það væri annars vegar „svakaleg bölsýni og svo á hinn bóginn léttúð ákvörðun sem er nánast hægt að hlæja að, hún er svo auðveld“. Fái þetta allt í fésið Hún sagðist geta haft svona gaman af kosningabaráttunni vegna þess að hún væri ekki „heit í aðra hvora áttina“ því þá væri hún mögulega að kippa sér meira upp við umræðu og auglýsingar síðustu vikna. Þó að hún sé ekki í neinum hópi sem tengist Evrópusambandinu þá „fái hún þetta allt í fésið“. „Við höfum ekki verið í nei/já atkvæðagreiðslu síðan í Icesave, ef mér skjátlast ekki,“ sagði Þórhildur og tók undir með Lilju „við erum að sjá svo skemmtilegar og lifandi umræður.“ Klippa af pallborðin er í spilaranum hér fyrir neðan: Þá tók hún sem dæmi hina svokölluðu „slagorðaveislu“ sem hafi verið alltumlykjandi í kosningabaráttunni en Þórarinn tók sig til í setti og bætti einu við þegar hann sagðist ekki vera einn þeirra sem séu á „Nei til ég dey“-vagninum. Önnur dæmi voru hið umtalaða „Já til að sjá“, „Sjágúst“ og „Jágúst“ Vonar að stemningin skili sér Lilja sagðist jafnframt hafa „elskað jávextina“ en þar vitnaði hún í tilraun Krónunnar til að gera ávexti spennandi sem fór fyrir brjóstið á mörgum fyrr í sumar. Hún benti á annað svipað dæmi sem minna hefur farið fyrir en fjarskiptafyrirtækið Kosmos hefur undanfarið auglýst „Nei við USB“. „Mér finnst þetta hafa verið óvenju hressar og skemmtilegar auglýsingar,“ sagði Þórhildur en að hennar mati gæfi það lífinu lit að fá nýtt fólk inn í stjórnmálaumræðuna, undanfarið hefðu komið inn á sjónarsviðið fullt af nýjum andlitum sem hefðu sterkar skoðanir. „Ég er að vona að þessi stemning skili sér á kjörstaðina,“ sagði hún einnig það muni öllu máli skipta fyrir báðar fylkingar að góð mæting sé á kjörstað. Gestirnir þrír voru sem fyrr segir innilega sammála um að umræðan hafi verið mjög holl og góð fyrir landsmenn. Þórarinn sagðist mjög ánægður að sjá „þessa dýnamík þar sem fólk er að takast á sem hefði ekki verið að fara að takast á“, hann sé maður sundrungar sem veigri sér ekki við því að taka erfið samtöl. Það sé meinhollt að „við getum tekið svolítið hart á án þess að ætla að fara að kála hvort öðru,“ sagði hann og Þórhildur á sömu nótum „ við höfum gott af því að rífast aðeins.“
Pallborðið Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Tengdar fréttir Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. 27. ágúst 2026 12:40 Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. 25. ágúst 2026 15:11 Hvað gerist ef það verður jafnt? Jöfn niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hvorki kalla á aðra atkvæðagreiðslu né hlutkesti. Engin regla kveður heldur á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei. 26. ágúst 2026 14:44 Mest lesið Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ákall“ Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Valgerður fer aftur frá SÁÁ Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Loka vefsíðum tímabundið í varúðarskyni Fá mál á þingi: „Fórnarlömb velgengni“ fá kaldar kveðjur frá Diljá Skorar á landlækni að leiðrétta rangfærslur Alvarlegur veikleiki hjá fjölda vefsíðna Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi Jón Gnarr lætur af varaformennsku og tveimur varasætum Myndasyrpa: Nýr skáli fluttur í Þórsmörk Klæmdist óvart við fjórtán ára og var sýknaður Stærsti dagurinn í dekkjaskiptum „Mjög óheillavænleg þróun“ Efast um að vilja Alþingis sé fylgt í jafnlaunamálum Birtingarmyndir kynferðisofbeldis gegn ungum konum að breytast Fimm ráðnir aftur eftir uppsagnirnar Vilja rannsaka vinnubrögð sérstaks saksóknara Hafi nauðgað meðvitundarlausri sambýliskonunni Atvinnuleysi dróst saman Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Sífellt erfiðara fyrir mörg heimili að ná endum saman Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Skoða áætlunarsiglingar milli Skotlands og Íslands Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Sjá meira
Pallborðið: Satt, logið og umdeildar auglýsingar Farið verður yfir samsæriskenningar og fleiri fullyrðingar sem tæplega standast skoðun í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar á laugardag í fjórða og síðasta Pallborði Vísis fyrir kosningar. Auk þess verður kosningabaráttan hingað til gerð upp af álitsgjöfum. 27. ágúst 2026 12:40
Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari. 25. ágúst 2026 15:11
Hvað gerist ef það verður jafnt? Jöfn niðurstaða í þjóðaratkvæðagreiðslunni á laugardag myndi hvorki kalla á aðra atkvæðagreiðslu né hlutkesti. Engin regla kveður heldur á um sjálfkrafa endurtalningu þótt aðeins eitt atkvæði skilji að já og nei. 26. ágúst 2026 14:44