Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar 3. október 2026 10:30 Það var full ástæða til að endurskoða námsmat við lok grunnskóla. Ráðuneytið hafði sjálft sýnt fram á mikinn mun á einkunnadreifingu milli skóla. Vandinn virtist skýr; hvernig tryggjum við að sama hæfni nemanda sé metin með sambærilegum hætti óháð skóla? Eða vorum við ekki að meta hæfni í samræmi við námskrá heldur að tryggja skiljanlega einkunn óháð því á hverju hún byggði? Skólakerfið dælir út of miklum upplýsingum til foreldra sem fá skilja en vilja vonandi engu að síður. Þess vegna veldur niðurstaðan nú gríðarlegum vonbrigðum. Vandinn var aldrei hvort einkunnin hét B eða 7 heldur hvort hún þýddi það sama milli skóla og sýndi fram á hæfni. Að skipta bókstaf út fyrir tölustaf tryggir ekki meira samræmi. Fyrst 1–10. Svo 4–10. Svo bæði en mismunandi. Ferlið hefur auk þess verið óþarflega ruglingslegt í meira lagi. Í ágúst sl. var boðaður einkunnakvarðinn 1–10, tæpum tveimur mánuðum síðar er hann orðinn 4–10, á meðan áfram má nota 1–10 á einstökum prófum. Sama tala getur því haft mismunandi merkingu eftir því hvar hún birtist. Skýrara kerfi sem þarf að útskýra Kerfi sem átti að verða skýrara þarf strax töluverðar skýringar. Undir þessu stendur hæfnimiðað námsmat að verulegu leyti áfram. Raunverulega verkefnið er enn það sama; skýrari matsviðmið, samræmdari túlkun þeirra og að sambærileg frammistaða fái sambærilegt mat milli skóla. Breytingin sem engu breytir Eftir miklar yfirlýsingar, óvissu og breytingar á breytingunum stendur því kjarninn eftir. Vandinn var ekki að við kölluðum ósamræmið B. Vandinn var ósamræmið. Að kalla það 7 leysir það ekki. Það sem átti að einfalda og skýra námsmatið varð sjálft að breytingu sem þurfti sífellt að breyta og skýra. Þegar fagfólkið þarf að bjarga breytingunni Eins óvönduð vinnubrögð og hægt er að hugsa sér hjá ráðherra og ráðuneyti menntamála meðan Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem reynir að bjarga málum af fagmennsku. Höfundur er kennari og skólastjórnandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjálmar Bogi Hafliðason Skóla- og menntamál Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Það var full ástæða til að endurskoða námsmat við lok grunnskóla. Ráðuneytið hafði sjálft sýnt fram á mikinn mun á einkunnadreifingu milli skóla. Vandinn virtist skýr; hvernig tryggjum við að sama hæfni nemanda sé metin með sambærilegum hætti óháð skóla? Eða vorum við ekki að meta hæfni í samræmi við námskrá heldur að tryggja skiljanlega einkunn óháð því á hverju hún byggði? Skólakerfið dælir út of miklum upplýsingum til foreldra sem fá skilja en vilja vonandi engu að síður. Þess vegna veldur niðurstaðan nú gríðarlegum vonbrigðum. Vandinn var aldrei hvort einkunnin hét B eða 7 heldur hvort hún þýddi það sama milli skóla og sýndi fram á hæfni. Að skipta bókstaf út fyrir tölustaf tryggir ekki meira samræmi. Fyrst 1–10. Svo 4–10. Svo bæði en mismunandi. Ferlið hefur auk þess verið óþarflega ruglingslegt í meira lagi. Í ágúst sl. var boðaður einkunnakvarðinn 1–10, tæpum tveimur mánuðum síðar er hann orðinn 4–10, á meðan áfram má nota 1–10 á einstökum prófum. Sama tala getur því haft mismunandi merkingu eftir því hvar hún birtist. Skýrara kerfi sem þarf að útskýra Kerfi sem átti að verða skýrara þarf strax töluverðar skýringar. Undir þessu stendur hæfnimiðað námsmat að verulegu leyti áfram. Raunverulega verkefnið er enn það sama; skýrari matsviðmið, samræmdari túlkun þeirra og að sambærileg frammistaða fái sambærilegt mat milli skóla. Breytingin sem engu breytir Eftir miklar yfirlýsingar, óvissu og breytingar á breytingunum stendur því kjarninn eftir. Vandinn var ekki að við kölluðum ósamræmið B. Vandinn var ósamræmið. Að kalla það 7 leysir það ekki. Það sem átti að einfalda og skýra námsmatið varð sjálft að breytingu sem þurfti sífellt að breyta og skýra. Þegar fagfólkið þarf að bjarga breytingunni Eins óvönduð vinnubrögð og hægt er að hugsa sér hjá ráðherra og ráðuneyti menntamála meðan Miðstöð menntunar og skólaþjónustu sem reynir að bjarga málum af fagmennsku. Höfundur er kennari og skólastjórnandi.
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar