Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar 3. október 2026 07:02 Íbúar í Hornafirði og nágrenni sem oft þurfa að fara yfir Hornafjarðarfljót verða nú að greiða sérstakt veggjald til að fara um þann spotta á hringveginum. Þetta virðist vera réttlætt með því að annars hefði ekki verið hægt að gera nýjan veg, það væri ríkinu um megn. Það er vissulega furðuleg lygi, en látum það liggja milli hluta. Það sem er óskiljanlegt í þessu er af hverju sumt fólk þarf að borga sérstakt aukagjald fyrir að nota vegakerfið sem allur almenningur borgar fyrir. Af hverju þurfa Hornfirðingar að borga aukalega fyrir að aka á vegum sem eru í eigu almennings og fjármagnaðir af almannafé, en ekki til dæmis þau sem aka milli Reykjavíkur og Selfoss, um Kjalarnesið, Reykjanesbrautina eða bara Öxnadalsheiðina? Er verið að refsa Hornfirðingum fyrir hvað þeir þurftu að bíða lengi eftir sæmilegum vegi um þetta svæði? Má búast við að ef verstu vegirnir á Vestfjörðum verða lagaðir verði íbúar á svæðinu sektaðir með svipuðum hætti? Þetta sérstaka aukaálag á Hornfirðinga er þeim mun fáránlegra þegar allir sem nota vegakerfið þurfa núorðið að greiða veggjöld í formi kílómetragjalds. Það þyrfti nefnilega ekki að hækka kílómetragjaldið um nema fáa tugi aura til að hafa upp í það sem reiknað er með að innheimtist á þessum kafla í Hornafirði. Auðvitað er hægt að ímynda sér að fólkið sem tók þessar ákvarðanir sé einfaldlega svo illa gefið að það átti sig ekki á klikkuninni í þessari fáránlegu skattlagningu. En ef við hins vegar göngum út frá því að það sé að minnsta kosti í meðalgreind, þá er erfitt að líta á þessa mismunun sem annað en viðurstyggilegan hugsunarhátt. Höfundur er stærðfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Veggjöld Sveitarfélagið Hornafjörður Einar Steingrímsson Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Íbúar í Hornafirði og nágrenni sem oft þurfa að fara yfir Hornafjarðarfljót verða nú að greiða sérstakt veggjald til að fara um þann spotta á hringveginum. Þetta virðist vera réttlætt með því að annars hefði ekki verið hægt að gera nýjan veg, það væri ríkinu um megn. Það er vissulega furðuleg lygi, en látum það liggja milli hluta. Það sem er óskiljanlegt í þessu er af hverju sumt fólk þarf að borga sérstakt aukagjald fyrir að nota vegakerfið sem allur almenningur borgar fyrir. Af hverju þurfa Hornfirðingar að borga aukalega fyrir að aka á vegum sem eru í eigu almennings og fjármagnaðir af almannafé, en ekki til dæmis þau sem aka milli Reykjavíkur og Selfoss, um Kjalarnesið, Reykjanesbrautina eða bara Öxnadalsheiðina? Er verið að refsa Hornfirðingum fyrir hvað þeir þurftu að bíða lengi eftir sæmilegum vegi um þetta svæði? Má búast við að ef verstu vegirnir á Vestfjörðum verða lagaðir verði íbúar á svæðinu sektaðir með svipuðum hætti? Þetta sérstaka aukaálag á Hornfirðinga er þeim mun fáránlegra þegar allir sem nota vegakerfið þurfa núorðið að greiða veggjöld í formi kílómetragjalds. Það þyrfti nefnilega ekki að hækka kílómetragjaldið um nema fáa tugi aura til að hafa upp í það sem reiknað er með að innheimtist á þessum kafla í Hornafirði. Auðvitað er hægt að ímynda sér að fólkið sem tók þessar ákvarðanir sé einfaldlega svo illa gefið að það átti sig ekki á klikkuninni í þessari fáránlegu skattlagningu. En ef við hins vegar göngum út frá því að það sé að minnsta kosti í meðalgreind, þá er erfitt að líta á þessa mismunun sem annað en viðurstyggilegan hugsunarhátt. Höfundur er stærðfræðingur.
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar