Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar 2. október 2026 14:00 Sæl Þorbjörg. Þú skipaðir starfshóp til að koma með tillögur til að jafna vægi atkvæða. En þú sagðir jafnframt skilja að það væru tvær hliðar á málinu en þú teldir að það þyrfti að fara aðrar leiðir til að styrkja byggð en með misvægi atkvæða. Undirritaður er ekki sammála niðurstöðu starfshópsins en gott og vel. Nú ert þú í dauðafæri að leggja hönd á plóg í þessum efnum. Þú átt eftir að ákveða staðsetningu á sýslumanni Íslands. Nú getur þú ákveðið að þessi stofnun verði staðsett á Egilsstöðum eða annarsstaðar í kjördæminu sem starfshópur þinn leggur til að missi þrjá þingmenn. Akureyri er einnig frábær staðsetning fyrir sýslumann Íslands en ég legg samt til Egilsstaði þar sem ég tel að Austurland sé sá landshluti sem við sem þjóð nýtum verst af öllum hlutum landsins m.a. með tilliti til veðursældar og fleiri þátta. Austurland er jafnframt landshlutinn þar sem fjölgun fólks hefði hvað jákvæðust áhrif. Má ég líka minna á að ríkisstjórn þín olli Austlendingum miklum vonbrigðum þegar lögnu undirbúin og fullhönnuð Fjarðarheiðargöng voru slegin af. Opinbera stefnan varðandi sameiningu sýslumanna er að störfum fækki ekki á núverandi starfsstöðvum þeirra en sérhæfing aukist. Samt sem áður er mjög líklegt að starfsstöðin þar sem sýslumaður Íslands er staðsettur muni vaxa og dafna næstu áratugi en störfum annarsstaðar fækka. Reynslan er alla jafna að þegar stofnanir stækka verði stækkunin aðallega þar sem yfirstjórnin er (lang oftast á höfuðborgarsvæðinu) en þegar skera þarf niður séu það störfin utan hbs sem horft sé til. Oft þarf ekki nema nýjan forstöðumann til að þessi þróun fari af stað. Það er mikil hætta að Sýslumaður Íslands sé enn ein aðgerðin sem sópar rótgrónum störfum af landsbyggðunum til höfuðborgarsvæðisins. Það má ekki gerast. Þannig að ef þú hefur raunverulegan áhuga á byggðum Íslands utan höfuðborgarsvæðisins og jákvæðri þróun þeirra þá skora ég hér með á þig að setja sýslumann Íslands utan suðvesturhornsins og mín tillaga er Egilsstaðir. Höfundur er lektor við HA. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jón Þorvaldur Heiðarsson Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Sæl Þorbjörg. Þú skipaðir starfshóp til að koma með tillögur til að jafna vægi atkvæða. En þú sagðir jafnframt skilja að það væru tvær hliðar á málinu en þú teldir að það þyrfti að fara aðrar leiðir til að styrkja byggð en með misvægi atkvæða. Undirritaður er ekki sammála niðurstöðu starfshópsins en gott og vel. Nú ert þú í dauðafæri að leggja hönd á plóg í þessum efnum. Þú átt eftir að ákveða staðsetningu á sýslumanni Íslands. Nú getur þú ákveðið að þessi stofnun verði staðsett á Egilsstöðum eða annarsstaðar í kjördæminu sem starfshópur þinn leggur til að missi þrjá þingmenn. Akureyri er einnig frábær staðsetning fyrir sýslumann Íslands en ég legg samt til Egilsstaði þar sem ég tel að Austurland sé sá landshluti sem við sem þjóð nýtum verst af öllum hlutum landsins m.a. með tilliti til veðursældar og fleiri þátta. Austurland er jafnframt landshlutinn þar sem fjölgun fólks hefði hvað jákvæðust áhrif. Má ég líka minna á að ríkisstjórn þín olli Austlendingum miklum vonbrigðum þegar lögnu undirbúin og fullhönnuð Fjarðarheiðargöng voru slegin af. Opinbera stefnan varðandi sameiningu sýslumanna er að störfum fækki ekki á núverandi starfsstöðvum þeirra en sérhæfing aukist. Samt sem áður er mjög líklegt að starfsstöðin þar sem sýslumaður Íslands er staðsettur muni vaxa og dafna næstu áratugi en störfum annarsstaðar fækka. Reynslan er alla jafna að þegar stofnanir stækka verði stækkunin aðallega þar sem yfirstjórnin er (lang oftast á höfuðborgarsvæðinu) en þegar skera þarf niður séu það störfin utan hbs sem horft sé til. Oft þarf ekki nema nýjan forstöðumann til að þessi þróun fari af stað. Það er mikil hætta að Sýslumaður Íslands sé enn ein aðgerðin sem sópar rótgrónum störfum af landsbyggðunum til höfuðborgarsvæðisins. Það má ekki gerast. Þannig að ef þú hefur raunverulegan áhuga á byggðum Íslands utan höfuðborgarsvæðisins og jákvæðri þróun þeirra þá skora ég hér með á þig að setja sýslumann Íslands utan suðvesturhornsins og mín tillaga er Egilsstaðir. Höfundur er lektor við HA.
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar