Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar 1. október 2026 16:12 Hörður Arnarson hefur látið af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir sautján ár við stýrið. Hann tók við hlutverkinu í miðri efnahagskreppu 2009 þegar Landsvirkjun var gríðarlega skuldsett, öll lán fyrirtækisins með ríkisábyrgð og arðgreiðslur litlar. Hörður einsetti sér að tryggja þjóðinni sanngjarnt verð fyrir orkuna sína. Þetta kallaði á hörð átök og krefjandi samningaviðræður við marga af stærstu viðskiptavinum fyrirtækisins. Afraksturinn er sá að í dag greiða stórnotendur verð sem stenst fullkomlega samanburð við nágrannalöndin á meðan heimilin njóta einhvers mesta raforkukaupmáttar á byggðu bóli. Landsvirkjun hefur greitt niður skuldir um hátt í tvo millljarða dollara. Í sumar greiddi fyrirtækið upp síðasta lánið með ríkisábyrgð og lauk þar með sextíu ára sögu ríkistengdra lána. Fyrir rekstrarárin 2021 til 2025 hefur Landsvirkjun greitt um 110 milljarða króna í arð í ríkissjóð, auk tuga milljarða í skatta. Þetta eru peningar sem fara beint í heilbrigðiskerfið, skólana og innviðina okkar. Á sama tíma hefur verið ráðist í mikilvægar framkvæmdir. Búðarhálsstöð, Þeistareykjastöð og Búrfellsstöð II risu í tíð Harðar, framkvæmdir eru hafnar við Hvammsvirkjun, stækkanir eru í undirbúningi og nú í september var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, gangsett. Þá hefur fyrirtækið tekið frumkvæði og sýnt forystu á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þetta er ekki síst framsýni Harðar að þakka. Hörður hefur ekki alltaf sagt það sem fólk vildi heyra, og hann hefur heldur betur fengið yfir sig gusurnar fyrir að standa með sannfæringu sinni og standa með eigendum Landsvirkjunar sem eru landsmenn allir. Nú skilar hann af sér fyrirtæki sem er fjárhagslega sterkara en nokkru sinni fyrr, nútímalegra og hvílir á fjölbreyttari stoðum en áður, í fullri eigu þjóðarinnar og tilbúið að sækja fram og vinna nýja sigra á tímum orkuskipta og grænnar atvinnubyltingar. Takk Hörður fyrir samstarfið og samskiptin síðustu árin. Takk fyrir þína þjónustu og takk fyrir þitt ómetanlega framlag til íslensks samfélags. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóhann Páll Jóhannsson Landsvirkjun Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Sjá meira
Hörður Arnarson hefur látið af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar eftir sautján ár við stýrið. Hann tók við hlutverkinu í miðri efnahagskreppu 2009 þegar Landsvirkjun var gríðarlega skuldsett, öll lán fyrirtækisins með ríkisábyrgð og arðgreiðslur litlar. Hörður einsetti sér að tryggja þjóðinni sanngjarnt verð fyrir orkuna sína. Þetta kallaði á hörð átök og krefjandi samningaviðræður við marga af stærstu viðskiptavinum fyrirtækisins. Afraksturinn er sá að í dag greiða stórnotendur verð sem stenst fullkomlega samanburð við nágrannalöndin á meðan heimilin njóta einhvers mesta raforkukaupmáttar á byggðu bóli. Landsvirkjun hefur greitt niður skuldir um hátt í tvo millljarða dollara. Í sumar greiddi fyrirtækið upp síðasta lánið með ríkisábyrgð og lauk þar með sextíu ára sögu ríkistengdra lána. Fyrir rekstrarárin 2021 til 2025 hefur Landsvirkjun greitt um 110 milljarða króna í arð í ríkissjóð, auk tuga milljarða í skatta. Þetta eru peningar sem fara beint í heilbrigðiskerfið, skólana og innviðina okkar. Á sama tíma hefur verið ráðist í mikilvægar framkvæmdir. Búðarhálsstöð, Þeistareykjastöð og Búrfellsstöð II risu í tíð Harðar, framkvæmdir eru hafnar við Hvammsvirkjun, stækkanir eru í undirbúningi og nú í september var Vaðölduver, fyrsta vindorkuver landsins, gangsett. Þá hefur fyrirtækið tekið frumkvæði og sýnt forystu á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Þetta er ekki síst framsýni Harðar að þakka. Hörður hefur ekki alltaf sagt það sem fólk vildi heyra, og hann hefur heldur betur fengið yfir sig gusurnar fyrir að standa með sannfæringu sinni og standa með eigendum Landsvirkjunar sem eru landsmenn allir. Nú skilar hann af sér fyrirtæki sem er fjárhagslega sterkara en nokkru sinni fyrr, nútímalegra og hvílir á fjölbreyttari stoðum en áður, í fullri eigu þjóðarinnar og tilbúið að sækja fram og vinna nýja sigra á tímum orkuskipta og grænnar atvinnubyltingar. Takk Hörður fyrir samstarfið og samskiptin síðustu árin. Takk fyrir þína þjónustu og takk fyrir þitt ómetanlega framlag til íslensks samfélags. Höfundur er umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar