Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar 3. október 2026 09:02 Að koma að eign sinni á floti er lífsreynsla sem við óskum engum. Leki sem er ekki stöðvaður í tæka tíð getur valdið mjög miklum skaða, ónýtum gólfefnum, vatnsmettuðum innréttingum og veggjum. Vatnstjón í sumarhúsum eru allt of algeng og hjá Verði tryggingum skipta þau tugum á ári. Við það veðurfar sem við búum við hér á landi geta auðveldlega skapast aðstæður sem valda vatnstjónum. En sem betur fer er hægt að koma í veg fyrir þau eða a.m.k. takmarka skaðann með einföldum forvörnum. Á haustin þegar heimsóknum í bústaðinn fer fækkandi hjá flestum er mikilvægt að sumarhúsaeigendur kynni sér allar þær leiðir sem færar eru til þess að reyna að koma í veg fyrir alvarleg tjón. Að fá viðvörun strax skiptir máli Munurinn á litlu vatnstjóni og stóru vatnstjóni ræðst af því hversu fljótt leki uppgötvast. Þegar fólk fær viðvörun um leka getur það brugðist strax við, skrúfað fyrir vatnið eða fengið einhvern til að fara á staðinn. Þá getur tjónið takmarkast við eitt herbergi eða afmarkað svæði í stað þess að ná að skemma allt húsnæðið. Þetta er einmitt meginástæðan fyrir því að vatnsskynjarar hafa notið aukinna vinsælda á síðustu árum. Því miður eru allmörg dæmi síðastliðin ár þar sem vatn hefur lekið dögum saman án þess að gripið væri inn í. Í sumum þessara húsa varð altjón. Hvernig virkar vatnsskynjari? Vatnsskynjarinn er lítill skynjari með rafhlöðu eins og reykskynjari en hann er líka tengdur netinu og sendir boð í app í símann ef hann verður var við leka. Skynjarinn nemur bleytu strax og er snöggur að senda boð í símann þinn. Mörg rafvöru- og öryggisfyrirtæki selja vatnsskynjara og þeir kosta á bilinu 3.000-10.000 krónur. Hægt er að kaupa þá staka eða sem hluta af stærri öryggispakka, allt eftir því hvað hentar. Best er að staðsetja vatnsskynjarann við botn sökkuls eða á gólfi. Algengt er að staðsetja vatnsskynjara nálægt vaskaskáp, uppþvottavél, þvottavél og lagnagrind, sérstaklega ef vatnið hefur enga undankomuleið ef það byrjar að leka. Það getur því margborgað sig að hafa þennan litla vatnsskynjara á vaktinni þegar bústaðurinn er mannlaus. Aðrar vetrarforvarnir sumarhúsaeigenda Á veturna er mikilvægt að skrúfa fyrir inntök heita og kalda vatnsins og tæma viðtengd tæki þegar sumarhúsið er yfirgefið. Þetta á sérstaklega við ef harður frostakafli er í veðurkortunum. Ef húsið er hitað með miðstöðvarofnum er öruggast að hafa lokað hringrásarkerfi með frostlegi og forhitara. Ef margir eru að nota bústaðinn er mikilvægt að hafa góðar leiðbeiningar um frágang hússins og merkingar á lögnum og lagnagrind. Ekki er sjálfgefið að allir kunni til verka eða þekki lagnakerfi sumarhússins. Frostlögur í salerni og vaska getur bjargað miklu ef vatn situr eftir í vatnslásum eða ekki tekst að tæma kerfi fullkomlega. Vatnsskynjari í sumarhúsið er kjörið öryggistæki ef þar er þráðlaust netsamband. Nú í byrjun október er því ekki eftir neinu að bíða. Gangið vel frá sumarhúsinu fyrir veturinn og skoðið hvaða möguleikar eru í boði með vöktunar- og öryggislausnum. Vatnsskynjarinn er ódýr og nettur en getur komið í veg fyrir mikið tjón. Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ágúst Mogensen Slysavarnir Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar