Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar 2. október 2026 23:32 Dapurlegur þáttur Kveiks var á dagskrá ríkissjónvarpsins í fyrrakvöld, umfjöllunarefnið var lyfjanotkun á hjúkrunarheimilum í Reykjavík. Ég var búin að sjá auglýsingu þáttarins dagana á undan og var því að einhverju leyti undirbúin fyrir það sem koma skyldi en viðurkenni að ég var jafnframt kvíðin fyrir því sem kynni að koma fram í þættinum. Ég vil áður en lengra er haldið taka það fram að flestir þeir sem veljast til starfa á hjúkrunarheimilum eru án efa góðar og vel meinandi manneskjur enda er það lágmarkskrafa sem við getum gert til fólks sem vinnur með fólk. Síðstliðin sex ár hef ég verið aðstandandi íbúa á hjúkrunarheimili og tel mig því hafa nokkra innsýn inn í starfsemi slíkrar stofnunar. Veruleikinn sem blasti við í Kveik kom mér því ekki í opna skjöldu. Í gegnum árin hef ég orðið vitni að mörgu varðandi starfshætti og aðbúnað íbúa á hjúkrunarheimilum sem hafa valdið mér töluverðu hugarangri og vakið mig til umhugsunar um hvort ekki sé hægt að gera betur, vanda sig meira, sýna meiri metnað í starfseminni. Margt af starfsfólkinu leggur sig fram í krefjandi starfsumhverfi en samt blasa við alvarlegir og kerfislægir vankantar sem bitna á einum viðkvæmasta hópi samfélagsins, eldra fólki sem býr mikið til við skerta getu til að gæta eigin hagsmuna og er upp á aðra komið með athafnir daglegs lífs. Á þessum tíma hef ég kynnst mörgum merkilegum einstaklingum sem eiga að baki heilt líf af sigrum og sorgum, en búa nú við vanmátt. Því miður hef ég sömuleiðis allt of oft orðið vitni að skorti á fagmennsku starfsfólks, manneklu, tímaleysi, sinnuleysi, skorti á samskiptum og skorti á öryggiseftirlit svo eitthvað sé nefnt og allt þetta skilur vistmenn eftir í viðkvæmri og jafnvel hættulegri stöðu andlega og líkamlega. Ég hef upplifað skort á samfellu í umönnun, upplýsingaskort á milli yfirmanna og undirmanna og séð ráðþrota aðstandendur sem taka að sér hlutverk sem þeir hafa jafnvel ekki færni né kunnáttu til en sjá sér ekki annað fært til að tryggja að fylgst sé með heilsufari, lyfjagjöf, hreinlæti og öryggi þeirra nánustu. Sömuleiðis finnst mér oft hafa vantað upp á skilning á þörfum eða vilja íbúa og að óskir þeirra séu virtar. Meðferð á persónulegum eignum og hjálpartækjum íbúa er ábótavant að mínu mati, hlutir skemmast s.s. í þvotti og týnast á heimilunum. Dæmi eru um að sama manneskja hafi þurft á nokkra ára tímabili að kaupa þrenn heyrnartæki vegna þess að verklagi um geymslu yfir nóttina var ekki fylgt eftir. Ég hef orðið vitni að því ítrekað að íbúar séu látnir bíða alltof lengi eftir aðstoð við að komast á salerni eða að beiðni þar um sé jafnvel ekki sinnt. Síðast en ekki síst hef ég sett spurningamerki við lyfjagjafir þar sem augljóslega hefði mátt fara aðrar leiðir s.s. með samtalsmeðferðum, hreyfingu og útveru eins og kom fram í þætti Kveiks. Íbúar á hjúkrunarheimilum eiga rétt á því að þörfum þeirra sé mætt af virðingu, að öryggi þeirra sé tryggt sem best öllum stundum og að þeir upplifi hlýhug, samkennd og samveru svo að þeir geti lifað hvern dag með reisn. Það er verið að bregðast eldra fólkinu okkar á hverjum einasta degi. Það er þörf á allsherjar vitundarvakningu þar sem áherslan færist frá því sem hentar stofnunni, yfirmönnunum og vaktaplaninu yfir í að snúast um raunverulegar þarfir og lífsgæði íbúanna. Eldra fólkið okkar á svo miklu betra skilið. Það er ekki nóg að byggja hjúkrunarheimili heldur þarf að gera heildstæða stefnumótun um hvernig við mætum fólki á þessu viðkvæma ævistigi og hvernig við viljum búa þeim sem áhyggjulausasta ævikvöldið. Gleymum því ekki að einn daginn verðum við í þessum sporum. Höfundur er grunnskólakennari og aðstandandi íbúa á hjúkrunarheimili. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar