Hvannadalshnjúkur lækkar Óformleg mæling Loftmynda sýnir að Hvannadalshnjúkur sé 2.108 metrar, tæplega tveimur metrum minni en þegar hann var mældur fyrir 21 ári síðan. Sérfræðingur segir æskilegt að mæla þennan hæsta tind landsins á ný. Innlent 23.9.2026 06:45
Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul viðvörun er í gildi á Suðausturlandi vegna mikils hvassviðris. Á vef Veðurstofunnar er varað við norðan 15 til 20 metrum á sekúndu og að staðbundnar vindhviður geti orðið fyrir 30 metrar á sekúndu. Veður 7.9.2026 11:06
Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Gjaldtaka um nýjan hringveg um Hornafjörð hefst á morgun, 1. september. Nýr Hringvegur (1) um Hornafjörð var opnaður fyrir umferð í júní. Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að veggjöld standi undir hluta kostnaðar við framkvæmdina, rekstur og viðhald vegarins. Innlent 31.8.2026 12:42
Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent 17.8.2026 17:27
Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð vegna rútuslyss í Suðursveit í morgun. Allir sem voru um borð í rútunni verða fluttir á slysadeild til skoðunar og er fólkið með ýmiss konar áverka. Innlent 6. júlí 2026 11:58
Sex slasaðir í rútuslysi í Suðursveit Sex eru slasaðir af tíu sem voru í rútu sem lenti í slysi í Suðursveit í dag. Viðbragðsaðilar, þar á meðal þyrla Landhelgisgæslunnar er á leið á vettvang. Innlent 6. júlí 2026 10:49
Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi Þórbergssetrið á Hala í Suðursveit, fæðingarstað rithöfundarins, fagnar í dag tuttugu ára afmæli. Forstöðukona setursins segist bjartsýn um að verk Þórbergs Þórðarsonar muni áfram lifa með þjóðinni. Innlent 30. júní 2026 20:20
Stytting hringvegarins sú næstmesta á þessari öld Ný brú yfir Hornafjarðarfljót var opnuð í dag. Hringvegurinn styttist um tólf kílómetra og leiðin milli Reykjavíkur og Hafnar um næstum fimmtán kílómetra. Vegamálastjóri sagði í ávarpi við brúarvígsluna að slík stytting hefði ekki orðið á hringveginum frá því Hvalfjarðargöng voru opnuð árið 1998. Innlent 24. júní 2026 22:24
Nýr íþróttavöllur vekur athygli í fámennri sveit Nýjum íþróttamannvirkjum er jafnan vel fagnað meðal þeirra sem munu njóta þeirra en við Hrollaugsstaði í Suðursveit er verið er að taka í notkun nýjan fjölnota íþróttavöll. Sveitin er mjög fámenn og eru þar innan við tuttugu heimili og því vekur nýi völlurinn mikla athygli. Innlent 23. júní 2026 23:33
Þyrlan kölluð út vegna bílveltu Þyrla Landhelgisgæslunnar var ræst út í morgun eftir tilkynningu um umferðarslys í Öræfum. Fyrstar á vettvang voru björgunarsveitir. Innlent 6. júní 2026 14:05
Sóttu ökumann sem slasaðist í mótorhjólaslysi Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar var kölluð út á tólfta tímanum í gærkvöld, þriðjudag, til þess að sækja ökumann sem hafði lent í bifhjólaslysi nærri Höfn í Hornafirði. Þyrluáhöfnin flaug til móts við sjúkrabíl og sótti ökumanninn við Skaftafell í Öræfum á Suðausturlandi. Innlent 3. júní 2026 14:54
Sigurjón frá Hornafirði í Skaftárhrepp Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps af meirihluta D-lista og óháðra í Skaftárhreppi. Sigurjón lauk störfum sem sveitarstjóri í næsta sveitarfélagi, Hornafirði, fyrir aðeins nokkrum dögum. Í tilkynningu kemur fram að ráðningin verði formlega staðfest á fyrsta fundi nýrrar sveitarstjórnar þann 9. júní. Innlent 30. maí 2026 11:56
Hjalti Þór verður bæjarstjóri í Hornafirði Hjalti Þór Vignisson oddviti Framsóknar í Hornafirði verður bæjarstjóri í Sveitarfélaginu Hornafirði. Fulltrúar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa undirritað málefnasamning um samstarf á komandi kjörtímabili 2026–2030. Innlent 28. maí 2026 16:38
Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Ómannað loftfar á vegum Landhelgisgæslunnar sem er ætlað að hafa eftirlit með hafsvæðinu umhverfis landið verður tekið í notkun í vikunni. Dróninn verður gerður út frá Hornafjarðarflugvelli og er fjármagnaður af Evrópusambandinu. Innlent 26. maí 2026 13:56
Lokatölur í Sveitarfélaginu Hornafirði: Framsókn bætir við sig og meirihlutinn fallinn Framsókn og stuðningsmenn bætir við sig manni frá síðustu kosningum og Sjálfstæðisflokkurinn og K-listi Kex framboðs tapa manni hvor í sveitarfélaginu Hornafirði. Miðflokkurinn fær einn mann. Innlent 17. maí 2026 00:32
Oddvitaáskorunin: Strumpur svo lýsandi gælunafn Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 12. maí 2026 21:01
Rifjaði upp hvernig það var að vera ung stelpa með leyndarmál vegna ummæla Snorra Strax í gærmorgun var búið að flagga hinsegin fánum um allan bæ, að sögn Hornfirðingsins Guðrúnar Óskar Gunnarsdóttur. Hún brást við ummælum Snorra Mássonar um regnbogafána í færslu sem hefur farið víða um Facebook. Var færslan einnig hugsuð til þess að fá fram viðhorf Miðflokksins sem býður fram í sveitarfélaginu í fyrsta sinn. Innlent 18. apríl 2026 18:31
Miðflokkurinn á Hornafirði segir ásakanirnar fjarri sanni Forsvarsfólk Miðflokksins á Hornafirði taldi tilefni til að bregðast við umræðu um stefnu flokksins eftir að varaformaður hans gerði athugasemdir við fjölda regnbogafána og svipaðra tákna í skólum. Innlent 17. apríl 2026 17:49
Samningur um Ísafjörð tryggir rekstur Q200-véla Icelandair Ráðamenn Icelandair hafa fallið frá þeirri ákvörðun að hætta rekstri styttri Dash 8-innanlandsvéla sinna eftir að samningar tókust við Vegagerðina um framhald Ísafjarðarflugs. Samið var um nærri helmings lækkun frá upphaflegu tilboði Icelandair en á móti verður dregið úr tíðni flugferða. Innlent 16. apríl 2026 22:20
Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Rannsókn á mögulegu þjófagengi sem er sagt hafa látið greipar sópa í versluninni Freysnesi í Öræfum þann 29. mars síðastliðinn stendur enn yfir, samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi. Innlent 14. apríl 2026 11:55
Ásgrímur Halldórsson slapp með skrekkinn frá ofsanum í Dave „Danirnir höfðu engar áhyggjur af þessu. Það er það eina sem ég veit,“ segir Ægir Birgisson, skipstjóri Ásgríms Halldórssonar, nýs uppsjávarskips, sem er í smíðum á Skagen í Danmörku og slitnaði frá bryggju þegar stormurinn Dave gekk með látum yfir Jótland á páskadag. Innlent 7. apríl 2026 12:32
Tengdust þjófnaðinum ekki á nokkurn hátt Ferðamenn sem voru stöðvaðir á leið til Egilsstaða tengjast ekki þjófnaði sem framinn var í versluninni Freysnesi í Skaftafelli á sunnudaginn. Innlent 31. mars 2026 19:16
Stöðvuðu ferðamenn sem reyndust ekkert grunsamlegir Lögreglan á Austurlandi stöðvaði hóp erlendra ferðamanna á leið til Egilsstaða í gær þar sem lögreglu höfðu borist ábendingar um þar væri á ferð hópurinn sem hefði farið ránshendi um verslun í Skaftafelli. Sá hópur reyndist aftur á móti ekki hafa neitt þýfi meðferðis. Innlent 31. mars 2026 16:36
Ferðamennirnir þaulvanir og breytt landslag Óprúttnir aðilar fóru ránshendi um verslunina Freysnes í gær. Eigandi verslunarinnar segir þetta ekki í fyrsta sinn sem eitthvað er tekið ófrjálsri hendi þar. Fólkið hafi verið þaulvant og breytt landslag blasi við á Íslandi. Innlent 30. mars 2026 21:41
Ekki fengið tilkynningu um þjófótta ferðamenn í Freysnesi Lögreglunni á Suðurlandi hefur ekki borist formleg tilkynning um þjófagengi, sem sagt er hafa látið greipar sópa um verslunina Freysnes í Öræfum í gærmorgun. Þó er til skoðunar að reyna að hafa uppi á hópnum. Innlent 30. mars 2026 11:09