Beinbrot og minniháttar áverkar í rútuslysi Sunna Sæmundsdóttir skrifar 6. júlí 2026 11:58 Bjarki Oddsson, aðalvarðstjóri hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Vísir/Ívar Fannar Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð vegna rútuslyss í Suðursveit í morgun. Allir sem voru um borð í rútunni verða fluttir á slysadeild til skoðunar og er fólkið með ýmiss konar áverka.
Útkall vegna rútu sem hafði oltið út af þjóðveginum við Reynivelli í Suðursveit barst upp úr klukkan tíu í morgun. Hópslysaáætlun var virkjuð og einnig samhæfingarstöð almannavarna. Alls voru þrettán um borð í rútunni og að sögn Bjarka Oddssonar, aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á Suðurlandi, var um að ræða hóp erlenda ferðamanna. Enn stendur yfir vinna á vettvangi en Bjarki segir fólkið virðast með minniháttar áverka. „Við frumathgun eru þetta minniháttar beinbrot en hins vegar eru þarna náttúrulega þrettán einstaklingar þannig að það eru bara ólíkir áverkar,“ segir Bjarki. Allir verða fluttir á slysadeild, ýmist með þyrlu Landhelgisgæslunnar, sjúkraflugi eða með sjúkraflutningabíl. Fólkið verður bæði flutt á Landspítann og heilbrigðisstofnun Suðurlands. Lögregla naut liðsinnis björgunarsveita og Bjarki segir töluverðan fjölda viðbragðsaðila á vettvangi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð á vettvang og mun flytja farþega á Landspítala.vísir/Vilhelm „Þetta hljómarði kannski örlítið alvarlegra í upphafi þannig að við gripum til þeirrar ráðstöfunar að virka hópslysaáætlun og þá fáum við töluvert af mannskap. En þetta virðist ætla að enda betur en við gerðum ráð fyrir í upphafi. Og hver eru næstu skref hjá ykkur? Nú erum við bara að flytja slasaða einstaklinga af vettvangi og þá tekur við rannsókn á tildrögum slyssins.“ Vegurinn er lokaður og vettvangsvinna stendur yfir. Bjarki segir að gera megi ráð fyrir umferðatöfum á svæðinu. „Við gerum ráð fyrir að við getum farið að hleypa á umferð með takmörkunum fljótlega upp úr hádeginu.“
Samgönguslys Sveitarfélagið Hornafjörður Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira