Innlent

Sýna sögu­lega þing­festingu í öðrum sal

Árni Sæberg skrifar
Verjendabekkurinn í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar komast fimm verjendur fyrir með nokkuð góðu móti. Verjendur í Landsbankamálinu verða líklega 70 talsins.
Verjendabekkurinn í sal 101 í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar komast fimm verjendur fyrir með nokkuð góðu móti. Verjendur í Landsbankamálinu verða líklega 70 talsins. Vísir/Vilhelm

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ákveðið að streyma þingfestingu í fjölmennasta sakamáli Íslandssögunnar yfir í annan sal í dómhúsinu við Lækjartorg. Sjötíu sæta ákæru í málinu.

Líkt og Vísir hefur fjallað um gaf Héraðssaksóknari nýverið út ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys ásamt 68 öðrum fyrir umfangsmikil fjársvik af Landsbankanum og peningaþvætti í tengslum við þau.

Aldrei hafa fleiri verið ákærðir í einu og sama málinu hérlendis og því sendi Vísir dómara málsins fyrirspurn um það hvernig dómurinn sjái fyrir sér að þinghald fari fram í málinu.

Ljóst er að salur 101, stærsti salur dómhússins við Lækjartorg, rúmar hvergi nærri 70 manns og hvað þá þá 70 verjendur sem bætast við. Dómarinn segir að þingfesting í málinu fari samt sem áður fram í sal 101 en gripið verði til þess ráðs að streyma því sem fram fer jafnframt í dómsal 102.

Ekkert hafi verið ákveðið um aðalmeðferð í málinu en það ráðist af því hversu margir neita sök hversu umfangsmikil hún verður.

Ekki er óþekkt að dómstólar taki sal á leigu vegna plássleysis í dómhúsinu en það var gert í Bankastrætis Club-málinu svokallaða árið 2023. Blaðamanni er ekki kunnugt um önnur dæmi um slíkt.

Aðalmeðferð í því máli fór fram í veislusalnum Gullhömrum þar sem sakborningar þess voru 25 talsins, verjendur jafnmargir og réttargæslumenn tveir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×