Hyggst þyngja refsingar við að hagnýta börn til afbrota Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. október 2026 18:30 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. vísir/einar „Þetta er stefnumótun fyrir lögregluna í landinu öllu til næstu fimm ára. Forveri hennar rann úr gildi fyrir nokkrum árum. Þetta er því mjög tímabært. Þetta er liður í því að lögreglan alls staðar á landinu nálgist mál með sama hætti. Þetta er fínasta tæki svo að lögreglan viti til hvers er ætlast.“
Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra Viðreisnar, í samtali við fréttastofu að loknum kynningarfundi þar sem ný löggæsluáætlun fyrir árin 2027 til 2031 var til umræðu. Í áætluninni er farið um víðan völl og markmið lögreglunnar fyrir næstu ár útlistuð. Áhyggjur af nýtingu barna til afbrota Þar á meðal er að taka skipulagðri glæpastarfsemi fastari tökum, fjölga lögreglumönnum til að mæta nýjum áskorunum og margt fleira. Þorbjörg ávarpaði salinn og ítrekaði mikilvægi löggæslu hér á landi og boðaði meðal annars nýtt frumvarp sem verður kynnt nánar í vetur til að liðka fyrir störfum lögreglunnar gegn skipulagðri brotastarfsemi. „Þetta eru alls konar lagabreytingar í þremur mismunandi lagabálkum og í rauninni má segja að stjórnvöld eru hérna að færa lögreglunni og ákæruvaldinu verkfærakistu til þess að ná betri tökum á þessum brotahópum sem eru starfandi hér og koma til landsins. Við bíðum ekki eftir því að veruleikinn hitti okkur illa fyrir. Þar er ég til dæmis með refsihækkunarheimildir gagnvart fólki, mönnum og hópum sem eru að beita ungum börnum fyrir sig til að fremja afbrot.“ Hún segir dæmi um það í Svíþjóð að brotahópar hagnýti börn til að fremja afbrot. Þess vegna sé mikilvægt að þyngja refsingar gegn því hér á landi til að koma í veg fyrir að sú þróun eigi sér stað hér. „Þannig að við séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur hér á Íslandi.“ Erlendir brotahópar notfæri glufur Fjöldi skipulagðra glæpasamtaka hér á landi hefur tvöfaldast á rúmum tíu árum. Árið 2015 voru þau tíu talsins en nú eru þau rúmlega 20. Þorbjörg segist líta málið alvarlegum augum. Þróunin sé ekki aðeins bundin við Ísland. „Menn verða að hafa skýra sýn og skýran fókus og átta sig á því að það er ekki eitthvað eitt rétt svar. Löggæsluáætlunin sem við kynntum núna geymir stefnu stjórnvalda. Ég er einnig að vinna að því að efla skipulag lögreglu, þannig að embættin stækki og þau verði sterkari til að ná betur utan um þetta.“ Hún segir það mikilvægt að hafa yfirsýn og innsýn í það hverjir komi til landsins og í hvaða tilgangi. „Þetta verðum við að geta sagt upphátt, það verður að gera ýmsar breytingar á útlendingalögum. Það er staðreynd að brotahópar nýta sér glufur í þessum lagabálki ekki síst. Með því er ég vitaskuld ekki að segja að allir útlendingar sem koma til landsins gangi illt til. Það er sannarlega ekki svo en glufur í lögum eru hættulegar og við verðum að loka þeim.“ Erlendir og innlendir hópar blandist saman Mikil fólksfjölgun hefur verið hér á landi síðustu ár samhliða aukningu í skipulagðri brotastarfsemi. Þorbjörg segir skipulagða brotastarfsemi í eðli sínu alþjóðlega og fjölþjóðlega. „Það eru innlendir hópar hérna, það eru erlendir hópar hérna en þeir eru líka mjög mikið að blandast saman. Þannig er það alls staðar. Skýrasta dæmið er að skipulögð brotastarfsemi er einna mest á netinu. Þar skiptir þjóðerni auðvitað ekki öllu máli,“ segir hún og heldur áfram: „Fólksfjölgun er auðvitað liður í þessu líka ef við horfum bara kalt á það að það hafa orðið mjög örar samfélagsbreytingar í heiminum öllum á tíu til fimmtán ára tímabili, ekki síst í samhengi við netöryggi og netbrot.“ Spurð hvort það sé til skoðunar að setja upp einingu sem sinnir skipulagðri brotastarfsemi á landsvísu segir Þorbjörg: „Þetta er ein hugmynd, að skoða svona einhverja miðju í þeim efnum, en það er ekki komið neitt lengra en svo að svo stöddu.“
Lögreglan Börn og uppeldi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Fleiri fréttir Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg Sjá meira