Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 28. október 2026 16:12 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í málinu. Vísir/Vilhelm Karlmaður hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir að hafa brotið kynferðislega á stjúpdóttur sinni á heimili hennar. Framburður konunnar, sem er með þroskahömlun, þótt trúverðugari en mannsins.
Konan leitaði á Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisbrots þann í mars árið 2024 og sagði að stjúpfaðir hennar hefði brotið gegn henni á heimili hennar. Þetta væri ekki í fyrsta skipti sem hann hefði misnotað hana og hafði hún lagt fram kæru þegar hún var á unglingsaldri en það mál hefði verið látið niður falla. Eftir fyrra atvikið hefði verið gripið til þess ráðs að hún væri aldrei ein með manninum en það hefði gerst í fyrsta skipti í langan tíma þar sem móðir hennar hefði verið erlendis. Konan og maðurinn höfðu þá farið að útrétta og hann síðan ekið henni heim en viljað koma inn á heimili hennar og fá kaffi. Þá hafi maðurinn byrjað að tala við konuna um kynlíf hennar og kærasta og kynlíf sitt með móður hennar. Konan sagðist ítrekað hafa sagt honum að hætta en hann ekki hlustað. Maðurinn hafi þá dregið hana inn í svefnherbergi hennar og brotið gegn henni. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa án samþykkis og með ólögmætri nauðung haft önnur kynferðismök við A á heimili hennar. Honum var gefið að sök að hafa snert brjóst konunnar utanklæða og ýtt henni síðan inn í svefnherbergi. Þar á hann að hafa tekið hana úr buxum og nærbuxum, kysst hana, storkið brjóst hennar utanklæða, snert kynfæri hennar og sett fingur inn í leggöng hennar. Konan hafi ítrekað beðið manninn um að hætta en hann virt það að vettugi. Það hafi verið þegar hún byrjaði að gráta sem hann hafi staðið upp og farið. Orðið pirraður og ýtt henni Við skýrslutöku sagði maðurinn að þau hefðu farið saman í búðir og borðað í IKEA áður en þau héldu heim til hennar. Það hefði verið konan sem byrjaði að tala við hann um kynlíf hennar og kærasta síns og kynlíf mannsins með móður konunnar. Það hefði honum þótt skrýtið. Við seinni skýrslutöku sagðist hann hafa orðið pirraður á samtalinu, dregið konuna inn í svefnherbergi hennar, ýtt á rúmið og svo yfirgefið heimili hennar. Hann taldi að konan væri að saka hann um brotið þar sem hún var ósátt með samband hans og móður hennar. Aðspurður af hverju sæðisblettur úr honum fannst í rúmi konunnar sagði maðurinn að hann hefði einu sinni sofið hjá móður konunnar í rúminu. Konan hafi ekki vitað af því og ekki verið heima. Talin trúverðug Fram kemur að konan sé með miðlungs þroskahömlun og hreyfiþroskaröskun. Hún skilji ekki flókin orðasambönd en skýri skýrt og skilmerkilega frá, sé einlæg og hafi ekki verið tvísaga við skýrslutöku. Sálfræðingur við dóminn taldi svo að það væri mjög ólíklegt að konan gæti gert sér upp slíka frásögn og haldið sig við hana í öll þau skipti sem hún hafi lýst atvikum. Dómurinn taldi því framburð konunnar trúverðugan á meðan framburður karlmannsins hafi verið á reiki í gegnum meðferð málsins. Miðað við að maðurinn hafi verið hluti af lífi konunnar frá því að hún var á barnsaldri ætti hann að vita að hún væri þroskahömluð. Því hafi skýringin á því að hann hafi orðið pirraður og ýtt henni í rúmið verið í engu samræmi við tilefnið auk þess að vera óviðeigandi í ljósi þess að hann þekkti konuna og hegðun hennar. Tvær milljónir í miskabætur Ekkert hafi komið fram sem bendir til þess að samþykki brotaþola hafi legið fyrir. Það var því mat dómsins að maðurinn hafi nýtt sér þá yfirburðastöðu sem hann hafði gagnvart konunni vegna líkamsburða, þroskahömlunar og aðstæðna hennar að öðru leyti. Hann var því dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir brotið. Einnig var honum gert að greiða konunni tvær milljónir króna í miskabætur auk launa verjanda síns, réttargæslumanns konunnar og lögmanns hennar. Það voru tæpar 3,4 milljónir króna.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og litlar upplýsingar Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Sjá meira