Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar 1. júlí 2026 18:00 Hvað er menningararfleifð og hver á hvað? Heimsmeistaramót í knattspyrnu fer nú fram og þó undirrituð horfi ekki á mjög marga leiki þá er ekki hjá því komist að samfélags- og fréttamiðlar troðfyllist af myndböndum af kampakátum Norðmönnum að róa – og umræðum um fegurð eða ekki fegurð knattspyrnuhetjunnar með stórskorna norska andlitsfallið. En þetta er ekki bara fótbolti, og þetta er ekki bara grin á TikTok. Þetta er rándýr, útpæld og meðvituð vörumerkjavinna. Á meðan við kannski hristum smá hausinn yfir Huh-inu okkar sem varð eftir í fortíðinni, mæta Norðmenn til leiks, grípa árarnar og eigna sér víkingaarfinn fyrir framan milljarða áhorfenda. Og áhorfendurnir gleypa við því. Þetta endurspeglar eiginlega nákvæmlega það sem er að gerast í ferðaþjónustunni. Norðmenn mæta með fjármagn, sjálfsöryggi og skýra sýn á hverjir þeir eru. Á alþjóðlegum markaði ferðaþjónustunnar erum við að tapa fyrir Norðmönnum, ekki vegna þess að náttúran okkar sé síðri, og ekki bara vegna þess að þeir séu duglegri að setja fjármagn í neytendamarkaðssetningu heldur líka vegna þess að þeir þora að nýta menningararfinn sinn sem verkfæri í markaðssetningu. Við aftur á móti virðumst stundum hálfpartinn skammast okkar fyrir okkar eigin sögu. Norðmenn eru framar okkur vegna þess að þeir skilja að nútíma ferðamaðurinn – sá sem leitar eftir hæglætisferðamennsku og dýpri tengingu – vill náttúru og líka sögu og merkingu. Á meðan við virðumst næstum einbeita okkur að því að fela söguna og selja náttúru án samhengis, sjálfsmyndir við fossa og jökla allt árið, selja Norðmenn upplifun sem á sér djúpar rætur í landslaginu sem mótað hefur menninguna. Norðmenn hafa áttað sig á því að menningararfurinn er dýrmætasta vörumerkið þeirra. Þeir pakka honum ekki inn í plast eða geyma hann eingöngu á söfnum; þeir láta hann lifa í dægurmenningunni og nota hann sem segul til að laða að sér ferðamenn. Hugmyndin um lúxus lón, heilsulindir og nútíma baðmenningu á sér mjög sterkar og djúpar rætur í menningu víkinga og landnámsmanna. Þótt margir sjái víkinga fyrir sér sem skítuga stríðsmenn, þá segir sagan og fornleifafræðin allt aðra sögu. Víkingar voru almennt taldir snyrtilegustu menn Evrópu á sínum tíma og baðmenning þeirra lagði grunninn að því hvernig við njótum heitra lauga í dag. Baðmenning snérist ekki bara um hreinlæti heldur var þetta félagsleg athöfn, pólitískur vettvangur og helgisiður. Orðið laugardagur kemur beint úr norrænu þar sem það þýddi bókstaflega „þvottadagur“ eða „baðdagur“. Á meðan stór hluti íbúa Mið-Evrópu fór sjaldan í bað á þessum tíma, var það heilög regla hjá víkingum að þvo sér, greiða hárið og klæðast hreinum fötum á laugardögum. Þegar landnámsmenn komu til Íslands uppgötvuðu þeir eitthvað sem þeir höfðu ekki kynnst í Noregi: náttúrulegan jarðhita. Í stað þess að þurfa að kynda upp baðhús (sauna) gátu þeir gengið beint ofan í heitt vatn sem spratt úr jörðinni. Víkingar nýttu laugarnar til að slaka á eftir langar ferðir, ræða pólitík, slúðra og jafnvel útkljá deilur. Í Íslendingasögunum er iðulega minnst á að menn hafi farið til lauga og rætt þar landsins gagn og nauðsynjar. Þegar erlendir gestir okkar heimsækja baðlón í dag, eru þeir því ekki bara að njóta slökunar – þeir eru óafvitandi að taka þátt í sögu sem er órjúfanlegur hluti af sjálfsmynd okkar. Og til þess að upplifunin verði raunverulega nærandi, verðum við að þora að segja þeim frá því hvar ræturnar liggja. Menningararfurinn okkar – hvort sem það eru Íslendingasögurnar, sjálfstæðisbaráttan eða seigla forfeðranna í harðbýlu landi – er fullkomið eldsneyti fyrir vandaða og nærandi ferðaþjónustu. Sögustaðir eru ekki bara punktar á korti; þeir eru staðir þar sem hægt er að skynja landslagið í samhengi við söguna. Menningararfleifð er ekki skyndibiti; hún krefst tíma, dýptar og tengingar – nákvæmlega þess sem markhópurinn okkar leitar að í dag. Þetta er kjarninn í nærandi ferðaþjónustu. Með því að vanda til verka og flétta söguna saman við náttúruupplifanir búum við til dýpri upplifun og þróum ferðaþjónustu í sátt, samlyndi og af virðingu við samfélagið. Þegar ferðaþjónusta nærir bæði gesti og heimamenn hættir hún að vera bara möguleg tekjulind ríkissjóðs og verður að menningarlegu samfélagsafli. Þess vegna er þetta ákall og áskorun til íslenskrar ferðaþjónustu, sveitarfélaga, fyrirtækja og frumkvöðla út um allt land: Þorum að vinna með sögurnar okkar. Við þurfum ekki að byggja skemmtigarða með víkingaþema eða setja upp plast-hjálma til að taka þátt í leiknum. Við þurfum bara að nota hugvit og tengja saman sögu og náttúru. Það er fjöldi safna, sýninga og sögufrægra staða um allt land sem vel geta tekið á móti fleiri gestum allt árið. Það má nýta þennan kraft, þessar sögur, þessa einstöku arfleifð til að búa til upplifun sem enginn getur leikið eftir. Leyfum gestunum okkar að hægja á sér, leggja frá sér símann um stund og hlusta á sögurnar sem landið geymir. Þannig búum við til ferðaþjónustu sem skilur eitthvað raunverulegt eftir í hjartanu – bæði hjá þeim sem ferðast og þeim sem taka á móti. Hættum að fela fjársjóðinn okkar og sýnum sama stolt og nágrannar okkar. Leggjumst öll á árarnar! RO! …eða Huh! Höfundur er framkvæmdastjóri í menningartengdri ferðaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ferðaþjónusta Mest lesið Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar