Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Lovísa Arnardóttir skrifar 2. maí 2026 11:30 Tvö hjól voru sett við Reykjaveg þar sem ekið var á tvö börn á hjólum síðasta vetur. Aðsend Átak Reiðhjólabænda, Gul hjól, hófst í gær og stendur út mánuðinn. Átakið snýr að vitundarvakningu bílstjóra um öryggi gangandi og hjólandi í umferðinni. Hjólum er stillt upp þar sem óhöpp eða slys hafa átt sér stað.
Átakinu er ætlað að fá bílstjóra til að láta símann eiga sig, horfa í kringum sig, vera meðvitaðir um aðra í umferðinni, keyra á löglegum hraða, stoppa á gangbrautum og rauðum ljósum. Átakið er í samvinnu við og með stuðningi Samgöngustofu, Sjóvá, FÍB, Lögreglunnar, ÍSÍ, sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og er framkvæmt af Reiðhjólabændum. Hjólin eru sett upp nærri stöðum þar sem ökumenn hafa valdið alvarlegum slysum á virkum vegfarendum á undanförnum misserum. „Við vöknuðum bara eldsnemma milli fimm og sex og fórum af stað og byrjuðum að dreifa hjólunum. Við vorum búin að vera að mála þessi hjól núna undanfarnar vikur og undirbúa þetta,“ segir Sigurður Jónas Eggertsson, meðlimur Reiðhjólabænda og einn skipuleggjenda átaksins. Alls staðar þar sem hjólin eru hafa orðið slys á fólki. Hjólin eiga því að minna fólk á að fara varlega á þeim stöðum þar sem leiðir ólíkra vegfarenda skerast. „Til þess að vekja svona meiri athygli þar sem eru hættur. Og það er til dæmis eins og það var búið að aka þarna í Laugarneshverfinu tvisvar á krakka þarna við gangbraut. Þannig að við fundum ekki alveg nógu góðan stað þar nema utan um tréð þannig að við settum tvö hjól þar til þess að sjáist vel úr báðum áttum.“ Sigurður segir leyfi fyrir því að hafa hjólin uppi út maí en vonar að þau fái að standa lengur. „Við erum að vona, eins og þú hefur heyrt um, svona gulur bíll þegar krakkarnir sjá gulan bíl, þá öskra þau alltaf á gulan bíl og slá í næsta eða eitthvað. Ef þau sjá gult hjól þá bara klappa þau þegar þau sjá gult hjól og þá muna allir eftir að kíkja eftir gangandi og hjólandi vegfarendum.“ Reiðhjólabændur stilla einu hjóli upp í Mjódd. Aðsend Síðasta ár erfitt Sigurður telur að slysum á hjólandi og gangandi hafi fjölgað síðustu ár en segir síðasta árið sérstaklega hafa verið erfitt. „Okkur allavega blöskraði í haust þegar það var bara frétt eftir frétt eftir frétt að það var ekið á krakka eða gangandi. Konan sem lést á Suðurlandsbrautinni var móðir vinkonu minnar og árið 2017 var ekið á pabba á Sæbrautinni. Hann dó þar. Þannig að þetta slær svolítið nær hjá manni þegar maður les um slysin að maður vilji fara að gera eitthvað í þessu.“ Gult hjól við Sæbrautina. Aðsend Hann segir símana athyglisþjófa en einnig sé fólk einfaldlega oft að flýta sér of mikið. „Þegar það er svona mikil umferð, þó að þú sért að flýta þér, kemst þú ekkert fyrr heim þó að þú myndir fara örlítið hægar, aðeins varlega og horfa meira í kringum þig. Það myndi ekki breyta neinu upp á tímann sem það tekur að ferðast. Við erum öll að ferðast saman að komast heim eða hvert sem við erum að fara. Þetta á bara að vera samvinna milli allra í umferðinni og það bara gleymist oft að horfa á okkur á hjólum og gangandi.“ Hann tekur dæmi um til dæmis þegar fólk ekur úr botnlanga og lítur aðeins í aðra átt, eftir bílum, en gleymir að líta í hina áttina eftir hjólandi og gangandi. Meta hætturnar við hver gatnamót Heldurðu að hjólreiðafólk þurfi eitthvað að passa sig betur líka? „Við erum náttúrulega alltaf að passa okkur,“ segir hann og að á sinni ferð sé hann alltaf búinn að meta hætturnar á sinni leið. Það sé erfiðara fyrir krakka að gera það. „Þeir eru ekkert komnir með þetta í hausinn hvar hætturnar liggja og þess vegna er svo mikilvægt að allir séu vakandi. Þú veist ekkert hver er að koma næst, hvort það sé einhver fullorðinn eða krakki eða einhver sem er ekki að passa sig,“ segir hann. Gulu hjólunum hefur verið komið upp víða á höfuðborgarsvæðinu. Aðsend Hann segir átakið um allt höfuðborgarsvæðið. „Það eru hjól í Mosó, það eru hjól í Kópavoginum, það er í Breiðholtinu og Reykjavík og náttúrulega út um allt og svo á eftir að fara með þrjú hjól í Garðabæ og Hafnarfjörð.“
Umferð Umferðaröryggi Samgönguslys Reykjavík Hafnarfjörður Garðabær Kópavogur Seltjarnarnes Tengdar fréttir Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Alvarlegt slys varð við gönguljós á Suðurlandsbraut vestan við Reykjaveg um klukkan 10 í morgun þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Tveir sjúkrabílar voru sendir á svæðið samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði og var einn fluttur á slysadeild. 8. desember 2025 10:44 Setja sjálf upp umferðarljós og gagnrýna ráðaleysi borgarinnar Íbúar í Laugardal í Reykjavík stefna á að setja upp umferðarljós við gatnamót Kirkjuteigs og Reykjavegar þar sem keyrt hefur verið á þrjú börn í haust. Fyrst eitt barn á hjóli í september og svo tvö börn, annað á hjóli, í október. Laugarnesskóli er rétt fyrir ofan gatnamótin og börnin labba þarna yfir götuna til að komast í til dæmis skólasund og tómstundir eða á leið sinni heim. 5. desember 2025 08:43 Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg Batahorfur aldraðrar konu sem ekið var á við Skógarveg í Fossvogi í síðustu viku eru betri. Konan var flutt mjög slösuð á slysadeild. Rannsókn lögreglu er enn í gangi. 29. apríl 2026 13:28 Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Alvarlegt umferðarslys varð í Varmahlíð síðdegis í dag. Ekið var á tvo gangandi vegfarendur, fullorðinn einstakling og barn, við söluskála Olís. 29. mars 2026 19:11 Ekið á gangandi vegfaranda Lögreglunni barst tilkynning um umferðarslys í Smárahverfi í Kópavogi þar sem ekið var á gangandi vegfaranda. Hann hlaut minni háttar áverka á fæti. 16. febrúar 2026 17:44 Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Innlent Fleiri fréttir Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólin þar sem slysin og óhöppin hafa orðið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Sjá meira
Alvarlegt slys á Suðurlandsbraut Alvarlegt slys varð við gönguljós á Suðurlandsbraut vestan við Reykjaveg um klukkan 10 í morgun þegar ekið var á gangandi vegfaranda. Tveir sjúkrabílar voru sendir á svæðið samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði og var einn fluttur á slysadeild. 8. desember 2025 10:44
Setja sjálf upp umferðarljós og gagnrýna ráðaleysi borgarinnar Íbúar í Laugardal í Reykjavík stefna á að setja upp umferðarljós við gatnamót Kirkjuteigs og Reykjavegar þar sem keyrt hefur verið á þrjú börn í haust. Fyrst eitt barn á hjóli í september og svo tvö börn, annað á hjóli, í október. Laugarnesskóli er rétt fyrir ofan gatnamótin og börnin labba þarna yfir götuna til að komast í til dæmis skólasund og tómstundir eða á leið sinni heim. 5. desember 2025 08:43
Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg Batahorfur aldraðrar konu sem ekið var á við Skógarveg í Fossvogi í síðustu viku eru betri. Konan var flutt mjög slösuð á slysadeild. Rannsókn lögreglu er enn í gangi. 29. apríl 2026 13:28
Barn flutt í sjúkraflugi eftir alvarlegt umferðarslys Alvarlegt umferðarslys varð í Varmahlíð síðdegis í dag. Ekið var á tvo gangandi vegfarendur, fullorðinn einstakling og barn, við söluskála Olís. 29. mars 2026 19:11
Ekið á gangandi vegfaranda Lögreglunni barst tilkynning um umferðarslys í Smárahverfi í Kópavogi þar sem ekið var á gangandi vegfaranda. Hann hlaut minni háttar áverka á fæti. 16. febrúar 2026 17:44