Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Lovísa Arnardóttir skrifar 2. maí 2026 12:11 Spítalinn var tekinn í notkun fyrir nær hundrað árum, 1927. Eyjafjarðarsveit Sveitarstjórn í Eyjafjarðarsveit leggst alfarið gegn því að starfsemi á Kristnesspítala verði lögð niður. Töluvert hefur verið fjallað um óvissu um framtíð starfsemi á spítalanum vegna viðhalds- og innviðavanda.
Sveitarstjórnin óskar þess í nýrri bókun að ákvarðanir um spítalann liggi fyrir hið fyrsta, að endurhæfing verði áfram á Kristnesi, að ríkið skýri sem fyrst framtíðarstöðu eignarhalds á íbúðarhúsnæði á svæðinu og að, ef starfsemi Kristnesspítala verði flutt eða lögð niður, hefjist tafarlaust vinna við að finna húsnæðinu ný not, innan eða utan eignarhalds ríkisins. Þá óskar sveitarstjórn eftir því að sveitarfélagið verði virkur þátttakandi í ákvörðunum um framhaldið. Á Kristnesspítala fara fram endurhæfingar- og öldrunarlækningar Sjúkrahússins á Akureyri. Þar er einnig útibú frá Hjálpartækjamiðstöð Sjúkratrygginga Íslands. Kristnesspítali var tekinn í notkun 1927 og þá sem berklahæli. Kristnesspítali er staðsettur tíu kílómetrum sunnan Akureyrar, í Eyjafjarðarsveit. Óttast að búið sé að ákveða að loka Sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar fjallaði um málið á síðasta fundi bæjarráðs og segir í bókun hennar að þau óttist að þegar liggi fyrir sú stefna að færa starfsemina frá Kristnesi og finna henni nýjan stað. Í fundargerð kemur fram að síðustu mánuði hafi verið unnið markvisst að því að fara yfir stöðu mála. Fundað hafi verið með stjórnendum sjúkrahússins og erindi send til heilbrigðisráðherra, fjármálaráðherra, mennta- og barnamálaráðherra, þingmanna kjördæmisins og á Ríkiseignir. Jafnframt hafi farið fram samtöl við þingmenn kjördæmisins sem hafa lýst áhyggjum af stöðunni. Í bókun segir að tillögur Eyjafjarðarsveitar hafi hingað til fyrst og fremst beinst að því að einfalda verkefnið með því að færa eignarhald íbúða, gatnakerfis og veitna af herðum ríkisins og úr umsjón Sjúkrahússins á Akureyri. Með því gæti stofnunin einbeitt sér að lögbundinni kjarnastarfsemi sinni. Málið hefur þó þróast á undanförnum misserum og umfang þess aukist með nýjum upplýsingum um afar slæmt ástand spítalans og íbúðarhúsnæðis á svæðinu, sem ekki lá fyrir í upphafi. „Ljóst er að þörf fyrir viðbrögð er nú bæði umfangsmeiri, viðkvæmari og brýnni en upphaflega lá fyrir,“ segir í bókun sveitarfélagsins. Hentar vel til endurhæfingar Þar kemur einnig fram að afstaða sveitarstjórnar sé skýr og að hún leggist gegn því að starfsemin verði lögð af á Kristnesi. Sveitarstjórn telur að sú aðstaða og það umhverfi sem þar hafi verið byggt upp í gegnum árin sé einkar vel til endurhæfingar fallin. Þá telur sveitarstjórn að ekki verði í neinni fyrirsjáanlegri framtíð byggð upp álíka aðstaða annars staðar sem hafi sömu kosti fram að færa. „Sveitarstjórn leggur þó áherslu á að ef slík ákvörðun verði tekin, að leggja starfsemina alfarið af á Kristnesi, þá sé brýnt að slík ákvörðun liggi fyrir fljótt og örugglega svo unnt verði að hefja vinnu við að finna húsinu og svæðinu nýtt og farsælt hlutverk,“ segir að lokum.
Sjúkrahúsið á Akureyri Akureyri Eyjafjarðarsveit Heilbrigðismál Tengdar fréttir Breytingar á Kristnesi: Þyngir róðurinn sem sé nú þegar verulega þungur Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri lýsa yfir verulegum áhyggjum þar sem loka á sjö daga plássi á Kristnesspítala um áramótin. Helmingi plássa hefur þegar verið lokað og finnur starfsfólkið strax fyrir gríðarlegu álagi, sem kemur aðeins til með að aukast. Þau biðla til stjórnvalda að stíga inn í þar sem hagsmunir almennings séu í húfi. 3. desember 2025 11:16 Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Heilbrigðisráðuneytinu bárust sjö umsóknir um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Ráðuneytið auglýsti starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar þann 26. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 23. mars. 26. mars 2026 16:59 Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri harmar skyndilegt brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, úr starfi. Hildigunnur sagði upp eftir að ráðherra greindi frá því að staða hennar yrði auglýst við lok fimm ára skipunartíma hennar. 10. mars 2026 18:32 Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Torfi Fjalar Jónasson, hjartalæknir og eiginmaður Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, segist aldrei hafa átt í neinum átökum eða árekstrum við Hildigunni Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. 28. febrúar 2026 20:03 Mest lesið „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Innlent Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Innlent Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Innlent Spreyttu þig á PISA-spurningunum Innlent Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Innlent Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Innlent Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Innlent Drengirnir hafi látið vita af sér Innlent Hótar háum tollum og að hætta viðskiptum við ESB Erlent Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Innlent Fleiri fréttir Uppsagnir hjá dómsmálaráðuneytinu Gefa ríkisstjórninni rauða spjaldið Ríkið lagði eldri borgarana Laun Wolt sendla undir þúsund krónum á klukkutímann „Get ég komið fjórtán lítrum fyrir í tíu lítrum af flöskum?“ Koma af fjöllum varðandi áform borgarinnar Rúmlega þúsund farþegar fært til flug og enginn sáttafundur í kjaradeilu Drengirnir hafi látið vita af sér Sækjandi fékk sínu framgengt: „Fabríkera einhver gögn og leggja fram“ Afturkalla lóðaúthlutun til tveggja trúfélaga Spreyttu þig á PISA-spurningunum „Ég er hreinlega mjög hrædd“ Hlaut Náttúruverndarviðurkenningu Sigríðar í Brattholti Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Hjólahvíslarinn og lögreglan björguðu Latabæ Með lambúshettu að prófa sírenur og gjallarhorn Lögreglan leitar tveggja drengja frá Borgarnesi Alelda bíll í Kópavogi Grunaður barnaníðingur gengur laus Varanlega sviptur vörslu á hundum sem hann skildi eftir í sóðaskap Orð yfirmanns síns „ósanngjörn“ og „ófagleg“ Dularfullt drónaflug í Kópavogi vekur íbúum ugg Gæti þaggað niður í röddum landsbyggðarinnar Báðir aðstoðarmennirnir horfnir á stuttum tíma Tvö mál í dag þar sem ógnað var með hnífi Salurinn veltist um af hlátri þegar vitni hringdi inn frá Albaníu Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Stefna á að aflýsa öllum flugferðum Fagnar uppreisninni Tekjur Bílastæðasjóðs 258 milljónum yfir áætlun með hjálp skannbílsins Sjá meira
Breytingar á Kristnesi: Þyngir róðurinn sem sé nú þegar verulega þungur Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og annað starfsfólk lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri lýsa yfir verulegum áhyggjum þar sem loka á sjö daga plássi á Kristnesspítala um áramótin. Helmingi plássa hefur þegar verið lokað og finnur starfsfólkið strax fyrir gríðarlegu álagi, sem kemur aðeins til með að aukast. Þau biðla til stjórnvalda að stíga inn í þar sem hagsmunir almennings séu í húfi. 3. desember 2025 11:16
Sjö vilja stýra Sjúkrahúsinu á Akureyri Heilbrigðisráðuneytinu bárust sjö umsóknir um starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. Ráðuneytið auglýsti starf forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri laust til umsóknar þann 26. febrúar síðastliðinn og rann umsóknarfrestur út 23. mars. 26. mars 2026 16:59
Fagráðið harmar brotthvarf Hildigunnar Fagráð Sjúkrahússins á Akureyri harmar skyndilegt brotthvarf Hildigunnar Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra spítalans, úr starfi. Hildigunnur sagði upp eftir að ráðherra greindi frá því að staða hennar yrði auglýst við lok fimm ára skipunartíma hennar. 10. mars 2026 18:32
Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Torfi Fjalar Jónasson, hjartalæknir og eiginmaður Ölmu Möller heilbrigðisráðherra, segist aldrei hafa átt í neinum átökum eða árekstrum við Hildigunni Svavarsdóttur, fyrrverandi forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri. 28. febrúar 2026 20:03