„Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 2. nóvember 2026 16:15 Jóhann Páll Jóhannsson loftslagsráðherra sér á eftir Lárusi sem hafi staðið sig vel sem aðstoðarmaður. Vísir/Anton Brink Lárus M.K. Ólafsson hefur ákveðið að láta af störfum sem aðstoðarmaður Jóhanns Páls Jóhannssonar, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, eftir tæplega tveggja ára starf. Þeir kveðja hvor annan með söknuði. „
Þetta hefur verið geðveikt partý og verður það áfram. Ég kveð með miklu þakklæti og tilhlökkun fyrir því sem tekur við hvað sem svo það verður,“ sagði Lárus í færslu á Facebook á föstudag. Hann útskýrir ekki ástæður breytinganna í viðtali við Viðskiptablaðið heldur segist einfaldlega hafa ákveðið að láta gott heita á þessum tímapunkti og skipta um vettvang. Jóhann kvaddi Lárus í færslu á Facebook í gær. „Hann er búinn að gegna ómissandi hlutverki síðustu tvö árin við að hrista upp í orkumálunum, keyra áfram kerfisbreytingar og koma hlutum í verk. Hvílík fagmennska, loyalítet og drifkraftur alla daga. Best þó hvað hann er skemmtilegur. Takk fyrir samstarfið, samveruna og vinskapinn elsku Lárus,“ sagði Jóhann Páll. Lárus er lögfræðingur að mennt frá Háskóla Íslands með sérhæfingu á sviði umhverfis- og auðlindamála. Hann var yfirlögfræðingur Orkustofnunar 2008-2011 og jafnframt staðgengill orkumálastjóra. Lárus starfaði frá 2019 sem sérfræðingur á sviði orku- og umhverfismála hjá Samtökum iðnaðarins, en áður var hann lögfræðingur Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka ferðaþjónustunnar. Þá starfaði hann sem lögfræðingur á skrifstofu orkumála hjá iðnaðarráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu á árunum 2005-2008. Lárus hefur gegnt ýmsum nefndar- og stjórnarstörfum og hefur m.a. frá 2024 verið formaður norræna umhverfismerkisins Svansins á Íslandi og verið varaformaður í stjórn Úrvinnslusjóðs frá 2012. Þá hefur hann annast kennslu á sviði umhverfis- og auðlindaréttar ásamt því að vera prófdómari við Háskóla Íslands á framangreindum sviðum.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vistaskipti Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira