Innlent

Grunur um fjár­kúgun í manndrápsmáli

Agnar Már Másson skrifar
Sonurinn var leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur fyrr í kvöld og úrskurðaður í gæsluvarðhald.
Sonurinn var leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur fyrr í kvöld og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Vísir/Viktor Freyr

Feðgar voru í kvöld úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti í nótt, aðfaranótt sunnudags. Sonurinn er grunaður um að stinga tvo menn sem eru grunaðir um að reyna að kúga hann til fjár.

Greint var frá því á Vísi fyrr í kvöld að sonurinn hefði verið skikkaður í gæsluvarðhald en samkvæmt heimildum fréttastofu var faðirinn einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald síðar í kvöld.

Sonurinn, sem er 34 ára, er grunaður um að hafa beitt hnífi í átökum við tvo menn í nótt.

Möguleg fjárkúgun

Lögregla brást í nótt við tilkynningu um líkamsárás og fann tvo menn með stunguáverka á vettvangi árásarinnar á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti. 

Voru hinir særðu fluttir á slysadeild þar sem annar þeirra var fljótlega úrskurðaður látinn, að því er fram kom í tilkynningu lögreglu í morgun. 

Þrír menn voru síðar handteknir annars staðar í hverfinu en ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir þriðja manninum samkvæmt tilkynningu lögreglu.

Samkvæmt heimildum Vísis er til skoðunar hvort að hinn látni og hinn særði hafi reynt að kúga fé út úr hnífsstungumanninum.

Faðirinn, sem er 59 ára, var einnig á vettvangi og slasaðist illa á fingri samkvæmt heimildum fréttastofu.

Kerti og blóm hafa verið lögð við vettvang árásarinnar í dag.Vísir/Oddur

Með fjölda dóma á bakinu

Samkvæmt heimildum Vísis var hinn látni 34 ára en sá var með fjölda dóma á bakinu sem meðal annars varða fíkniefnalagabrot, innbrot og þjófnað.

Hinn særði, sem er 35 ára, hefur meðal annars verið sakfelldur fyrir nauðgun, líkamsárás og innbrot. Hann er enn á gjörgæsludeild Landspítalans með áverka eftir nokkrar hnífsstungur.

Feðgarnir verða vistaðir í einangrun í gæsluvarðhaldsfangelsinu á Hólmsheiði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×