Innlent

Maður látinn eftir líkamsárás í Breið­holti

Freyja Þórisdóttir skrifar
kerti

Karlmaður á fertugsaldri er látinn eftir líkamsárás í Breiðholti í nótt, en tilkynning um málið barst lögreglu skömmu fyrir klukkan hálftvö.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu en þar segir einnig að strax hafi verið haldið á vettvang, sem var utandyra, og þar hafi tveir menn verið með alvarlega áverka, að talið sé eftir hnífsstungur. 

Þeir hafi verið fluttir á slysadeild, en skömmu eftir komuna þangað hafi annar mannanna verið úrskurðaður látinn. Hinn liggi nú á gjörgæsludeild og er ástand hans stöðugt.

Lögreglan hafi verið með mjög mikinn viðbúnað vegna málsins og þegar hafið leit að árásarmönnunum og þá hafi þrír menn verið handteknir fljótlega annars staðar í hverfinu í tengslum við rannsókn málsins. Þeir eru í haldi lögreglu og eru allir íslenskir líkt og þeir sem urðu fyrir árásinni.

Rannsókn málsins sé á frumstigi og lögreglan ætli ekki að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×