Innlent

Öku­menn beðnir um að aka sér­stak­lega var­lega

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Víða um borg verða börn í búningum að bjóða grikk eða gott.
Víða um borg verða börn í búningum að bjóða grikk eða gott. Getty/Vísir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Samgöngustofa hvetja ökumenn til að aka sérstaklega varlega í dag, á hrekkjavökunni, en eflaust verða mörg börn á gangi. Víða er hálka á höfuðborgarsvæðinu. 

„Bílstjórar verum vakandi!,“ skrifa Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu og Samgöngustofa í Facebook-færslu. Hrekkjavakan hefur sótt á sig veðrið á undanförnum árum og fara æ fleiri börn að bjóða „grikk eða gott“ með vinum og fjölskyldu. 

Mörg börn verði á gangi í hverfum höfuðborgarsvæðisins vegna hrekkjavökunnar í dökkum búningum sem sjáist illa í myrkri. 

Sjá einnig: Veðrið ætti ekki að spilla hrekkja­vöku eins og í fyrra

„Akið varlega og sýnið tillitsemi,“ skrifar lögreglan. 

Þá er varað við við hálku á Flóttamannaleið og Krýsuvíkurvegi, og hálkublettum á Breiðholtsbraut og Suðurlands- og Vesturlandsvegi á vef Vegagerðarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×