Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 30. október 2026 14:14 Alma Möller heilbrigðisráðherra skellti sér í bólusetningu í apóteki í dag. Nú verður hægt að fá bólusetningu við inflúensu í apótekum. Í tilkynningu frá Sjúkratryggingum segir að nýr samningur við apótek um lyfjafræðilega þjónustu marki tímamót í aðgengi almennings að heilbrigðisþjónustu. Alma Möller heilbrigðisráðherra og Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga, voru meðal þeirra fyrstu sem nýttu sér þjónustuna og fengu inflúensubólusetningu í ÍslandsApóteki í hádeginu dag.
Með nýju fyrirkomulagi verður fólki auðveldað að nálgast bólusetningar í sínu nærumhverfi. Markmiðið er að bæta aðgengi að þjónustu, fjölga þeim stöðum þar sem hægt er að fá bólusetningu og draga um leið úr álagi á heilsugæsluna. Þetta er jafnframt fyrsta verkefnið sem kemur til framkvæmda á grundvelli Hvítbókar um aukna lyfjafræðilega þjónustu í apótekum. Með því er stigið skref í átt að auknu hlutverki apóteka í grunnþjónustu heilbrigðiskerfisins. „Þetta er ánægjulegt skref í átt að aðgengilegri heilbrigðisþjónustu. Með því að bjóða bólusetningar í apótekum fær fólk fleiri valkosti og getur sótt þjónustuna nær heimili sínu eða vinnustað. Um leið erum við að nýta betur krafta heilbrigðiskerfisins. Þegar einföld og afmörkuð verkefni eru leyst í apótekum getur það dregið úr álagi á heilsugæsluna og skapað þar meira svigrúm til að sinna þeim sem þurfa á fjölþættari þjónustu að halda.“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra. Framkvæmt af lyfjafræðingum og hjúkrunarfræðingum Samningur Sjúkratrygginga við apótek um lyfjafræðilega þjónustu hefur það að markmiði að nýta betur þekkingu og aðstöðu apóteka til að sinna afmörkuðum heilbrigðisverkefnum. Þannig geta einstaklingar fengið einfalda þjónustu í apótekum í stað þess að þurfa í öllum tilvikum að leita til heilsugæslunnar. Samningurinn er jafnframt liður í því að þróa kaup og skipulag heilbrigðisþjónustu þannig að verkefnum sé sinnt þar sem það er hagkvæmast og þjónustan aðgengilegust fyrir almenning. „Hlutverk Sjúkratrygginga er að tryggja að almenningur hafi aðgang að góðri heilbrigðisþjónustu og að sameiginlegir fjármunir nýtist sem best. Með þessum samningi erum við að stýra þjónustunni á markvissari hátt og nýta betur þá innviði og sérþekkingu sem þegar eru til staðar í apótekum. Það einfaldar þjónustuna fyrir fólk, stuðlar að skilvirkari verkaskiptingu og getur aukið hagkvæmni í heilbrigðiskerfinu. Þetta er gott dæmi um hvernig markviss samningsgerð getur skilað ávinningi fyrir bæði notendur og heilbrigðiskerfið,“ segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga. Segir í tilkynningu Bólusetningar í apótekum verða framkvæmdar af lyfjafræðingum og hjúkrunarfræðingum sem hafa lokið viðurkenndri þjálfun til að annast bólusetningar. Upplýsingar um bólusetningarnar verða skráðar beint í bólusetningargrunn og verða þannig aðgengilegar heilbrigðisstarfsfólki sem sinnir viðkomandi einstaklingi. Einstaklingar munu jafnframt geta séð upplýsingar um eigin bólusetningar á Mínum síðum. Með þessu er tryggt að upplýsingar um bólusetningar fylgi einstaklingnum, óháð því hvort bólusetning fer fram á heilsugæslustöð eða í apóteki. Sami kostnaður og á heilsugæslustöðvum Kostnaður einstaklinga við inflúensubólusetningu verður sá sami í apótekum og á heilsugæslustöðvum. Einstaklingar sem tilheyra forgangshópum samkvæmt skilgreiningu sóttvarnalæknis fá inflúensubóluefni og bólusetningu án endurgjalds. Einstaklingar utan forgangshópa greiða fyrir bóluefnið á kostnaðar- eða innkaupsverði en bólusetningin sjálf er þeim að kostnaðarlausu. Ekkert komugjald er innheimt þegar heimsóknin er eingöngu vegna árstíðabundinnar inflúensubólusetningar, óháð því hvort viðkomandi tilheyrir forgangshópi. Forgangshópar ganga fyrir á því tímabili sem sóttvarnalæknir skilgreinir hverju sinni. Að því tímabili loknu nær greiðsluþátttaka einnig til einstaklinga utan forgangshópa. Fyrsta skrefið í aukinni þjónustu apóteka Segir í tilkynningunni að inflúensubólusetningar eru fyrsti þjónustuþátturinn sem innleiddur verður samkvæmt nýjum samningi Sjúkratrygginga við apótek. Samningurinn tekur einnig til þjálfunar í notkun innöndunarlyfja og stuðnings við upphaf lyfjameðferðar, en útfærsla þeirra þjónustuþátta er enn í vinnslu. Þá er stefnt að því að fleiri tegundir bólusetninga geti síðar bæst við þjónustu apóteka. Markmið samningsins er að bæta aðgengi sjúkratryggðra að lyfjafræðilegri þjónustu, stuðla að öruggri og árangursríkri lyfjameðferð, auka meðferðarheldni og draga úr rangri eða óþarfri lyfjanotkun. Með bólusetningum í apótekum sé stigið nýtt skref í átt að einfaldari, aðgengilegri og skilvirkari heilbrigðisþjónustu fyrir almenning. Eftirfarandi apótek hafa gert samning við Sjúkratryggingar og fleiri eru í farvatninu: Akureyrarapótek Norðurtorgi Apótek Suðurlands Apótekarinn Bæjarapótek Íslands Apótek Lyfja Lyfjaval Reykjanesapótek Urðarapótek
Bólusetningar Heilsa Mest lesið „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Innlent Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Innlent „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Innlent „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Ætla að brenna rusl og skapa orku Innlent Fleiri fréttir Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Sjá meira