Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Agnar Már Másson skrifar 1. nóvember 2026 23:35 Sonurinn var leiddur inn í Héraðsdóm Reykjavíkur fyrr í kvöld og úrskurðaður í gæsluvarðhald. Vísir/Viktor Freyr Feðgar voru í kvöld úrskurðaðir í gæsluvarðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti í nótt, aðfaranótt sunnudags. Sonurinn er grunaður um að stinga tvo menn sem eru grunaðir um að reyna að kúga hann til fjár.
Greint var frá því á Vísi fyrr í kvöld að sonurinn hefði verið skikkaður í gæsluvarðhald en samkvæmt heimildum fréttastofu var faðirinn einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald síðar í kvöld. Sonurinn, sem er 34 ára, er grunaður um að hafa beitt hnífi í átökum við tvo menn í nótt. Möguleg fjárkúgun Lögregla brást í nótt við tilkynningu um líkamsárás og fann tvo menn með stunguáverka á vettvangi árásarinnar á horni Hraunbergs og Austurbergs í Breiðholti. Voru hinir særðu fluttir á slysadeild þar sem annar þeirra var fljótlega úrskurðaður látinn, að því er fram kom í tilkynningu lögreglu í morgun. Þrír menn voru síðar handteknir annars staðar í hverfinu en ekki var krafist gæsluvarðhalds yfir þriðja manninum samkvæmt tilkynningu lögreglu. Samkvæmt heimildum Vísis er til skoðunar hvort að hinn látni og hinn særði hafi reynt að kúga fé út úr hnífsstungumanninum. Faðirinn, sem er 59 ára, var einnig á vettvangi og slasaðist illa á fingri samkvæmt heimildum fréttastofu. Kerti og blóm hafa verið lögð við vettvang árásarinnar í dag.Vísir/Oddur Með fjölda dóma á bakinu Samkvæmt heimildum Vísis var hinn látni 34 ára en sá var með fjölda dóma á bakinu sem meðal annars varða fíkniefnalagabrot, innbrot og þjófnað. Hinn særði, sem er 35 ára, hefur meðal annars verið sakfelldur fyrir nauðgun, líkamsárás og innbrot. Hann er enn á gjörgæsludeild Landspítalans með áverka eftir nokkrar hnífsstungur. Feðgarnir verða vistaðir í einangrun í gæsluvarðhaldsfangelsinu á Hólmsheiði.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira