Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar 28. apríl 2026 10:42 Ísland á alltaf að tala fyrir friði og forðast bandalag með þjóðum sem eru að vígbúast. Enda þótt Evrópusambandið hafi verið stofnað til að koma á varanlegum friði í Evrópu hefur sambandið verið í farvegi hervæðingar í nokkurn tíma. Umræða um ESB hér á landi þarf að taka mið af þessari þróun. Við erum þegar í hernaðarbandalaginu NATÓ - því miður - og þurfum ekki að ganga til liðs við þjóðir sem eru að hervæðast og eru tilbúnar í stríð. Ég vil útrýma kjarnavopnum, ekki vera undir „fælingarhlíf“ kjarnorkuvopna Emmanuels Macron. Tökum ekki undir stríðsópin Ég vil hvorki íslenskan her né nokkurn annan her á Íslandi og ég vil ekki að ungt fólk verði knúið til þess að drepa hvert annað út af málstað sem er því óviðkomandi og framandi. Fremur vil ég að fjármunum sé varið í heilbrigðis- og menntamál en stríðstól og alltaf bitnar stríð verst á börnum. Það eru alveg nógu margar flóttamannabúðir í heiminum. Við þurfum frið, fáum frekar aðrar þjóðir með okkur til þess að tala fyrir friði, ekki taka undir stríðsóp ESB, BNA eða NATÓ Friðarrödd Íslands má ekki þagna. Ef við göngum í ESB þá tökum við upp utanríkisstefnu ESB. Sú rödd er ekki friðsöm og talar ekki fyrir friði. Höldum okkar eigin rödd og tölum hátt og stolt fyrir friði öllum til handa. Hreyfanleiki hergagna að hætti Schengen Einhver spurði, „við hvað eruð þið hrædd?“ Ég er hrædd við það sem nú er talað um sem „hernaðarlegt Schengen“ (e. ‘Military Schengen.') Þið ættuð að vera það líka. Ég hvet ykkur til að skoða þetta vel á síðu eu.com opinberri síðu Evrópusambandsins: „Í nóvember 2025 kynntu framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og æðsti fulltrúi utanríkis- og öryggismála hernaðarlegan flutningspakka (e. ‘Military Schengen.'), sem miðar að því að tryggja óaðfinnanlega flutninga hermanna, búnaðar og hergagna innan ESB. Þetta er reglugerðartillaga sem býður upp á alhliða ráðstafanir til að tryggja hraða, samhæfða og örugga flutninga hermanna og búnaðar innan Evrópusambandsins, styrkir varnarstöðu Evrópu, tekur á hindrunum í hernaðarlegum flutningum á öllum sviðum - reglugerða, innviða og getu - sem nú hægja á herflutningum yfir landamæri.“ https://transport.ec.europa.eu/transport-themes/military-mobility_en Þó þetta hafi að sögn verið gert út af ógninni af Rússum þá kemur þetta til með að gilda gagnvart hverri þeirri stríðsógn sem ESB telur sig þurfa að verjast. Talsmaður NATÓ staðfestir að innan bandalagsins væru í gangi virkar umræður um leiðir til að auka „öryggi“ á Norðurslóðum. Þetta hafa Fulltrúar ESB sem hingað hafa komið staðfest og segja í þessu samhengi að Ísland sé mikilvægt í „vörnum“ á Norðurslóðum. Carsten Breuer, æðsti yfirmaður þýska heraflans kom til Íslands í fullum herklæðum. Það er táknrænt. Staða Þýskalands í Evrópu hefur breyst, sjáið Litháen, þar sem Þýskaland hefur nú fasta hernaðarviðveru í fyrsta skipti síðan nasistar hertóku landið. Þjóðverjar verja mörgum milljörðum í stríðstól og hernað og þeir eru ekki eina landið í Evrópu sem hefur aukið útgjöld og herstyrk sinn, viljum við taka þátt í þessu? Ég mæli með því að þið lesið viðtal við hann sem Allans Little hjá BBC news tók 27. mars 2026 https://www.bbc.com/news/articles/cvge7r31989o Hvort á að hlýða pabba eða mömmu? Það er bandarísk herstöð á Miðnesheiði. Enda þótt NATÓ fái að nota hana þá gætu komið upp aðstæður þar sem ESB vildi nýta sér hana en Bandaríkin vildu ekki af einhverjum ástæðum heimila það, hvar værum við þá stödd. Við værum með „samninga“ við báða aðila, skuldbundin báðum en hvort ætti að fara að vilja pabba eða mömmu? Yrði Ísland hernumið aftur, værum við ófrjáls í okkar eigin landi vegna rangra ákvarðana í afneitun og blindni, vegna loforða um betri tíma og lágmarksvexti! Hvað ef Frakkar vildu hafa kjarnavopn hér? Ef við gengjum í ESB gæti þessi staða komið upp og við gætum ekkert sagt því í grunninn réðum við ekki yfir okkur og landinu okkar að fullu lengur. Þetta er bláköld staðreynd. Röksemd gömul og ný Þetta snýst ekki um varnir Íslands það ætti öllum að vera ljóst, það hefur verið vitað í mörg ár, að halda annað er barnaskapur. Eftirfarandi er úr greinargerð þingsályktunartillögu frá sjöunda áratug síðustu aldar: „Að nafninu til er bandarískur her í landinu til að verja þjóðina. Flestum er þó ljóst, að þetta er löngu orðið fáránlegt öfugmæli, því að her og herstöðvar geta litla sem enga vörn veitt í nútímastyrjöld, en þvert á móti kalla mikinn háska yfir landsmenn. Herstöðvarnar eru byggðar upp sem liður i vígbúnaðarkerfi Bandaríkjamanna og koma Íslendingum að engu gagni“ Ragnar Arnalds, Jónas Árnason, Jón Sn. Þorleifsson, Lúðvík Jósefsson, Geir Gunnarsson. 1968 https://www.althingi.is/altext/88/s/pdf/0282.pdf Orð Eysteins Ég enda þetta á ræðu Eysteins Jónssonar (f.1906, d.1993) við stjórnarráðshúsið 18. júní 1944, eins og Ögmundur Jónasson gerir svo oft því "Aldrei er góð vísa of oft kveðin" „En nú kynni einhver að spyrja: Fáum vér starfsfrið og tækifæri til þess að sýna hverju lítil frjáls þjóð fær áorkað? Getur 125 þús. manna þjóð stofnað raunverulega frjálst lýðveldi á þessum tímum, þegar margfalt stærri þjóðir hafa verið lagðar undir okið og er haldið í áþján? Vér svörum þessu þannig: Stofnun þessa fámenna lýðveldis verður prófsteinn á það, sem koma skal eftir þá heljaröld, sem nú er. Það er stofnað í trausti á sigur frelsisins. Það er fætt í von um ósigur ofbeldis og yfirgangs. Það er stofnað í trausti þess, að sambúð þjóða verði sett það markmið, að engin verði annari undirgefin, en allar vinni saman. Vér Íslendingar munum kappkosta að koma þannig fram við aðrar þjóðir, að vér öðlumst vináttu þeirra og traust. Vér munum unna öðrum réttar og sannmælis, en halda á rétti vorum. Slíkar verða landvarnir þjóðarinnar og aðrar eigi“ https://timarit.is/page/1001729?iabr=on#page/n0/mode/2up/ Höfundur er í stjórn Suðurlandsdeildar Til vinstri við ESB, og í Samtökum Hernaðarandstæðinga og langamma Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Frjáls hugsun eða pólitísk rétthugsun Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson Skoðun Frelsi kvenna er ekki vandamálið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson Skoðun Hvert fóru þessir tíu milljarðar? Þorvaldur Daníelsson Skoðun Takk hjúkrunarfræðingar! Siv Friðleifsdóttir Skoðun Íþróttamannvirki til sölu fyrir atkvæði Jónas Már Torfason Skoðun Ég býð mig fram til að taka Borgarlínuna fyrir þig Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Kaupleiga er bjargráð – ekki brask Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir Skoðun Allir eru jafnir en enginn fær að blómstra Bessí Þóra Jónsdóttir Skoðun „Snákaolía“ Miðflokksins Thelma B. Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar Skoðun Að byggja bæ – eða samfélag? Herdís Anna Ingimarsdóttir skrifar Skoðun Hinn þríklofni Jóhann Páll Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar Skoðun Áskoranir Ísafjarðarbæjar í húsnæðismálum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Fjármagn í þágu fjölskyldna Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun Allir eru jafnir en enginn fær að blómstra Bessí Þóra Jónsdóttir skrifar Skoðun Hólastóllinn Hjalti Pálsson skrifar Skoðun 8. sætið Bjarni Fritzson skrifar Skoðun Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingunni Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Íþróttamannvirki til sölu fyrir atkvæði Jónas Már Torfason skrifar Skoðun Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Guðmundur Fylkisson skrifar Skoðun Kaupleiga er bjargráð – ekki brask Hallfríður G. Hólmgrímsdóttir skrifar Skoðun Tölum hátt og stolt um frið, segjum nei við hervæðingin Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun „Snákaolía“ Miðflokksins Thelma B. Árnadóttir skrifar Skoðun Þegar sálfélagsleg áhætta verður rekstraráhætta Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Nýsköpun þrífst ekki í óvissu Ingunn Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hleðslustöðin Árneshreppur Þorgerður Lilja Björnsdóttir skrifar Skoðun Börn í Laugardal fá ekki heitan mat í skólanum Jakob Jakobsson skrifar Skoðun Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar Skoðun Kópavogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Loftslagsmál sem lýðræðislegt verkefni Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Frjáls hugsun eða pólitísk rétthugsun Hlynur Áskelsson,Baldur Borgþórsson skrifar Skoðun Nýsköpun sem nærir Berglind Rán Ólafsdóttir,Björn Örvar skrifar Skoðun Gömul viðhorf til leikskóla lifa enn Anna Margrét Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ég býð mig fram til að taka Borgarlínuna fyrir þig Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Takk hjúkrunarfræðingar! Siv Friðleifsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tveir handteknir vegna stórfelldrar líkamsárásar – One-way ticket í sænsku leiðina Davíð Bergmann skrifar
Skoðun Breytt vinnubrögð í mótun geðheilbrigðisþjónustunnar – draumsýn eða veruleiki? Elín Ebba Ásmundsdóttir skrifar
Skoðun Reykjavík er án móttökudeilda, og afleiðingarnar eru komnar í ljós Sóldís Birta Reynisdóttir skrifar
Skoðun Börnin fyrst – fjármögnun til framtíðar Jóhanna Erla Guðjónsdóttir,Guðmundur Fylkisson skrifar
Skoðun E-listinn er ekki málið áfram í Reykjavík – Miðflokkurinn er það Helgi Áss Grétarsson skrifar
Skoðun Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar
Skoðun Hamingjan sem þjóðarverkefni: Leirársveit og hin nýja íslenska gullöld Sigurður Sigurðsson skrifar