Flækjustig í skjóli einföldunar Kolbrún Georgsdóttir skrifar 10. október 2025 07:30 Stjórnvöld hafa kynnt áform um að leggja niður Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna og flytja verkefni þeirra til Matvælastofnunar og Umhverfis- og Orkustofnunar. Í kynningu er því haldið fram að með þessu sé verið að fækka stofnunum úr ellefu í tvær. Þessi framsetning er í besta falli villandi. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaganna er svæðisbundin stofnun sem má líta á sem eina heild með margar starfstöðvar um landið. Þessi svæðisskipting mun ekki breytast með fyrirhuguðum breytingum, ef miðað er við áformin sem kynnt hafa verið, en samkvæmt þeim er stefnt að því að starfstöðvar haldist áfram dreifðar um landið. Í dag hafa rekstraraðilar einn eftirlitsaðila innan síns svæðis, en verði breytingarnar að veruleika munu þeir hafa tvo eftirlitsaðila, sem dæmi, þá þurfa rekstraraðilar, eins og veitingastaðir, líkamsræktarstöðvar og leikskólar að eiga samskipti við tvær ríkisstofnanir, Matvælastofnun og Umhverfis- og Orkustofnun í staðinn fyrir Heilbrigðiseftirlit. Þetta er aukið skrifræði og meira flækjustig fyrir atvinnulífið, en ekki sú einföldun sem boðuð er, auk þess sem hætt er á að breytingar gætu komið niður á þeim mikilvægu verkefnum sem heilbrigðiseftirlitið sinnir. Skortur á samráði og undirbúningi Það sem veldur sérstökum áhyggjum er að samráð við heilbrigðiseftirlitin sjálf og sérfræðinga á sviðinu hefur ekki farið fram með fullnægjandi hætti. Ítrekaðar ábendingar fagfólks um að slíkar breytingar myndu flækja kerfið enn frekar hafa verið hunsaðar. Tryggja þarf fagmennsku þegar verið er að gera kerfisbreytingar sem snerta bæði atvinnulíf og almenning, nauðsynlegt er að byggja á traustri greiningu og umræðu við alla hagaðila, ekki síst þá sem starfa á vettvangi. Það hefur ekki verið gert í þessu tilviki og ber það vott um skort á fagmennsku. Engin kostnaðargreining Engin heildstæð kostnaðargreining hefur farið fram. Óljóst er hvert fagfólk heilbrigðiseftirlitanna á að flytjast, hvaða tækjabúnað stofnanirnar þurfa að búa yfir, hver kostnaður við uppsetningu á nýjum starfstöðvum verður og hvað verður um starfsaðstöðu hringinn í kringum landið. Án slíkrar greiningar er óábyrgt að hefja breytingar af þessu tagi. Við þetta má bæta að engin greining hefur farið fram á þeim verkefnum sem Heilbrigðiseftirlit sveitafélaga sinna sem eru yfirgripsmikil, né hvernig best sé að sinna þeim. Endurtekin mistök stjórnvalda Einföldun er eftirsóknarverð en vanda þarf til verka svo tilganginum sé náð. Áform stjórnvalda um að leggja niður heilbrigðiseftirlit minna óneitanlega á fyrri tilraunir til einföldunar sem hafa gengið illa. Gott dæmi er nýleg skráningareglugerð, þar sem hluti fyrirtækja, sem áður voru starfsleyfisskyld hjá heilbrigðiseftirlitum sveitarfélaga (HES), var bætt við skráningarkerfi Umhverfis- og Orkustofnunar. Tilgangurinn var sagður sá að einfalda kerfið. Í framkvæmd reynist það hafa þveröfug áhrif, því HES er áfram að sinna eftirliti og úttektum á þessum sama hópi fyrirtækja. Fyrirtæki þurfa nú bæði að sækja um skráningu hjá Umhverfis- og Orkustofnun og mörg einnig að sækja um starfsleyfi hjá HES. Niðurstaðan er tvöfalt leyfisveitingakerfi sem veldur ruglingi og er óþjált í framkvæmd bæði fyrir fyrirtækin sjálf sem og eftirlitsaðila. Enn frekar var flækjustigið aukið með ákvæði í nýrri reglugerð um hollustuhætti, sem kom út í júní 2024, þar sem mælt var fyrir um fjögurra vikna auglýsingaskyldu á litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem eru starfsleyfisskyld. HES hefur mótmælt þessu ákvæði harðlega. Auglýsingaskylda þessi hefur reynst bæði óþörf og íþyngjandi og hefur hún kallað fram ómarkvissar undantekningar. Sem dæmi fengu veitingamenn undanþágu frá reglunni með því að færa starfsemina úr flokki starfsleyfisskyldra fyrirtækja yfir í flokk skráningarskyldra (út frá hollustuháttalögum), í stað þess að afnema skylduna. Aðrir fyrirtækjaflokkar sátu þó eftir með óbreytta kvöð. Þetta er dæmi um svokallaða „gullhúðun“; að stjórnvöld setji óþarfa kvaðir og reglur ofan á tilskipanir Evrópusambandsins. Í stað þess að létta á flóknum ferlum hafa stjórnvöld bætt við nýjum reglum sem gera kerfið óskilvirkt og flóknara fyrir alla sem starfa innan þess. Almannahagsmunir í hættu Áformin virðast aðeins ná til starfsleyfis- og skráningarskyldum fyrirtækja en heilbrigðiseftirlitin sinna auk þess fjölda samfélagslegra verkefna. Þau takast á við ýmis mál vegna kvartana og ábendinga frá almenningi t.d. vegna hávaða, óheilnæms húsnæðis, sóðaskapar og ólyktar, þá sinna þau vöktun strandlengjunnar, taka neysluvatnssýni, veita umsagnir til sveitarfélaga og til sýslumanna og sinna ýmsum verkefnum í samstarfi við lögreglu, vinnueftirlit og eldvarnareftirliti. Óljóst er hver mun bera ábyrgð á þessum verkefnum í framtíðinni. Það er óásættanlegt að þessi þjónusta, sem snýr beint að lífsgæðum almennings, sé skilin eftir í óvissu. Áskorun um vönduð vinnubrögð Fyrirhugaðar breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga fela ekki í sér einföldun, heldur auka skrifræði, tvöfalt leyfisveitinga- og eftirlitskerfi og þar með auka flækjustig. Þær eru kynntar án heildstæðrar greiningar á áhrifum, án kostnaðarmats og án raunverulegs samráðs við sérfræðinga eða sveitarfélög. Skynsamlegt væri að ráðherra og Alþingi íhugi að stíga skref til baka áður en lengra er haldið og leiðrétti misheppnaðar breytingar á reglum. Nauðsynlegt er að leggja fram faglega úttekt sem tekur til verkefna, mannauðs, tækjabúnaðar, starfsaðstöðu og samfélagslegra áhrifa. Þá verður að tryggja raunverulegt samráð við sérfræðinga, heilbrigðiseftirlit og hagsmunaaðila. Að öðrum kosti eru almannahagsmunir, grunnþjónusta sveitarfélaga og atvinnulífið sjálft sett í óásættanlega óvissu sem gæti haft alvarlegar afleiðingar. Heilbrigðiseftirlitin eru ekki jaðarstofnun sem hægt er að hagræða tilviljanakennt með stjórnsýslulegum tilskipunum. Þau eru lykilstofnanir sem standa vörð um almannaheill, vernda heilnæmt umhverfi og tryggja rétt borgaranna til heilbrigðs lífsumhverfis. Í þessu samhengi er nálægð við nærumhverfi mikilvægt. Kallað er eftir ábyrgum vinnubrögðum. Alþingi og ráðherrar verða að endurmeta áformin, tryggja gagnsæi, fagleg vinnubrögð og eiga virkt samtal við þá sem hafa sérþekkingu á málaflokknum. Lýðheilsa og grunnþarfir almennings eru ekki tilraunaverkefni – þær eiga að vera í forgangi og þær krefjast vandaðra ákvarðana og ábyrgðar. Höfundur er heilbrigðisfulltrúi í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðiseftirlit Heilbrigðismál Mest lesið MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er skólinn að kenna barninu þínu að lesa? Ertu viss? Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Hvað metum við mest? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Tæknilausnir og lesblindir Guðmundur S. Johnsen skrifar Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar Skoðun MR vinnur gegn markmiðum menntayfirvalda Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Réttmæt kjörskrárvinnsla Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Látum ekki sumarið koma okkur aftur á óvart í Kópavogi Eydís Inga Valsdóttir skrifar Skoðun Á Ísland að segja sig úr UEFA? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Mannréttindi eiga ekki að vera pólitískt þrætuefni María Mist Þórs Sigursteinsdóttir skrifar
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar