Gulldrengir Landspítala (Ekki KSÍ): Sönn saga um spillingu Sigurlaug Guðrún Kristjánsdóttir skrifar 19. ágúst 2024 20:00 Á Landspítala sjúkrahúsi allra landsmanna lúta menn öðrum lögum en hinir óbreyttu. Þar ríkir hin sanna gullna klefamenning. Í þessari grein átelur greinahöfundur einkum tvö meginatriði. Ítrekuð meint kynferðisleg áreitni/einelti á óbreyttum (læknanemum og öðrum) er í lagi að beita ef henni er beitt af hárbeittri nákvæmni sem góðum yfirmanni og leiðbeinanda sæmir. Enn betra er að orð hins meinta geranda er ávallt hið rétta og auðvitað heldur hann starfinu áfram sama hvað. Nægt framboð er hins vegar af þessum óbreyttu greyjum að auðvelt er að skipta þeim út. Að vera læknir á Íslandi er í raun hið sama og komast í Guðatölu svo ekki sé minnst á ráðningu innan LSH. Megum við óbreyttir þakka hamingjunni að læknar vilji fórna sér í starf á þessum volaða stað sem Landspítali er. Svo vitnað sé í samfélagsmiðlayfirlýsingar fórnarlambanna (starfsfólks LSH) . Ekki skemmir fyrir að læknirinn sé vel ættaður og tengdur inn í hið góða fræðasamfélag LSH og Háskóla Íslands. Bestar eru yfirlýsingar frá núverandi vinum hins meinta geranda sem auðvitað eru allir læknismenntaðir og yfirlýsingaglaðir aðilar er eiga marga samfélagsmiðla vini. Viðurkennd læknamistök eru ekki til í læknabókum LSH. Í lagi er ef upp kemst um handvömm læknis að senda hann beint í endurhæfingu á Landspítala. Ef hann samkvæmt Landlækni og öðru fagfólki þykir óhæfur til verka á öðrum sjúkrastofnunum ríkis og borgar er auðvitað í lagi að senda hann beint á sjúklinga LSH. Ef óvart kemst upp opinberlega að læknirinn starfi þar er gefin út opinber yfirlýsing þess efnis að hann komi ekki beint nálægt sjúklingum en úps! Nema það sé mannekla þá sé það í lagi. Í þessu dæmi er um að ræða lækni er sætir rannsókn héraðssaksóknara vegna andláts a.m.k. sex sjúklinga og nokkurra eftirlifandi sjúklinga er undir hans stjórn var grunur um að hefðu orðið alvarleg mistök og handvömm. Tilraunadýr LSH Í vor lagðist ástvinur greinahöfundar inn á bráðamóttöku LSH og komst að fyrir tilviljun að umræddur læknir starfaði á deild er fyrirhugað var að ástvinur hans myndi leggjast inn á. Þegar greinahöfundur falaðist eftir skýringu á veru hans á deildinni varð fátt um svör en læknirinn er varð fyrir svörum sagði „hann mun ekki koma að umönnun þíns ástvinar“ þannig að með öðrum orðum var í lagi af hans hálfu að þessi læknir væri svo sannarlega að sinna sjúklingum þrátt fyrir yfirlýsingar landlæknis og yfirmanna LSH þar um að hann myndi aðeins sinna ráðgjöf en ekki koma beint að sjúklingum. Þegar greinahöfundur gerði mál úr þessu og gerði fjölmiðlum viðvart voru svör landspítala til blaðamanns að vegna manneklu væri þessi læknir að sinna sjúklingum í dag! Rauða spjaldið á meinta fótbolta- og tónlistargerendur. En meintir gerendur LSH fá extra aukaspyrnu og eru sendir beint í endurhæfingu á Landspítala! Slaufunarmenning á alls ekki við um lækna almennt, nema þeir eigi fáa (samfélagsmiðla) vini, hafi rangar skoðanir eða fæddir eru í röngu kyni ( konur). Gulldrengir Íslands Ættar og vinatengsl valdamikilla aðila eru það sem skera úr um málin eins og í tilfelli tveggja lækna. Annar læknirinn er tengdur fyrrum yfirlækni þekktrar meðferðarstofnunar og hinn er tengdur fyrrum landlækni fjölskylduböndum og vinur valdamikilla lækna er fara mikinn á samfélagsmiðlum með traustyfirlýsingum til þessa læknis, (og auðvitað fleiri samfélagsstjörnur læknaaðalsins innan LSH er eitthvað hallar á ). Svo ekki sé minnst á dýrustu mannauðsdeild ríkisbáknsins LSH sem orðin er sjálfstætt skrímsli eða ríki í ríkinu. Hvað verður um þolendur meintra gerenda almennt ? Jú, þeir enda oft í höndum Sorpu/endurvinnslu/Virk endurhæfing, Stígamót og annarra áfallateymisaðila, hætta störfum (hrökklast úr starfi), eiga fyrir höndum áfalla- og sálaruppbyggingu um ókomin ár með óútreiknanlegum kostnaði fyrir samfélagið. Enda jafnvel í örorku eða ótímabærum dauða (sjálfsvígum o.fl.). Fórnarkostnaður samfélagsins fyrir góða/vinsæla lækna ? Niðurlag greinar er: Í lagi er að stofna mögulegum mannslífum í hættu og halda starfi sínu áfram eins og ekkert hafi í skorist meðan rannsókn héraðssaksóknara fer fram á meintum læknamistökum. Í lagi er einnig að beita undirmenn LSH kynferðislegu ofbeldi og einelti svo árum skipti og engar eru afleiðingarnar og efinn liggur auðvitað aldrei hjá meintum þolendum! Eftirlit með eftirlitinu Alveg galið er að hafa læknismenntaðan aðila í forsæti mikilvægrar ríkisstofnunar sem LSH er. Hver á að reka lækni er mögulega gerist brotlegur? Er það vinur hans og kollegi í forstjóra stólnum! Nei, Landspítalasjúkrahúsi allra landsmanna á að stýra aðili sem menntaður er á sviði viðskipta, verkfræði, hagfræði eða tölvunarfræði og eða annarrar stjórnunarreynslu er krefjast kunnáttu í fjármálastjórnun og reksturs fyrirtækja. LSH er eins og draugaskip fljótandi á dauðahafi með bilaðan áttavita, skrímsli er vex í rangar áttir, mannauðssviðið vex og dafnar með dyggri aðstoð núverandi og fyrrverandi kulnaðra starfsmanna sem eru duglegir að bæta við sig fleiri menntamedalíum innan geirans, enn fleiri samskipta og blaðafulltrúar ráðnir inn til að fegra ásjónu/mistök einstakra starfsmanna LSH. Aukavaktar fyrirkomulag LSH er frægt og misnotað, rándýrir verktakar ráðnir inn á háum prósentum, svo ekki sé minnst á ráðningu enn fleiri millistjórnenda sem flækjast hver fyrir öðrum í metnaðarklifri sínu til allra átta! Fjáraustrið er gegndarlaust, nú síðast með hundruð milljón króna herferðar myndbanda (fyrir væntanlegt starfsfólk) og plakata er prýða Landspítalann með auglýsingum um ágæti LSH. Landspítalann vantar ekki meira fé! Fénu ætti að skila samfélaginu til baka með betri stjórnun! Ekkert óháð eftirlit er með þessari illa reknu stofnun er Landspítali er og sætir furðu að ekkert aðhald né eftirlit sé rekið frá ráðuneyti heilbrigðismála hér á landi. Ábyrgðin hér hlýtur auðvitað að liggja hjá heilbrigðisráðherra að skerast inn í svona mál en aftur, litla Ísland er stórasta spillta land Norðurlanda! Höfundur er aðstandandi og áhugamanneskja um betri Landspítala. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landspítalinn Heilbrigðismál Mest lesið Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson Skoðun Halldór 27.06.2026 Halldór Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður valdagræðgi Flokks fólksins honum að falli? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Tengsl eru innviðir samfélagsins Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Börnin fyrst, en þau bíða enn Steindór Þórarinsson,Jón K. Jacobsen skrifar Skoðun Að semja við sjálfan sig Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Þjóðin föst í Groundhog Day krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Verður Ísland brothætt byggð? Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Kannski“ Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Velferð þarf rými Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifar Skoðun Ábyrgð í orði og verki Lilja Dögg Alfreðsdóttir,Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Stóru verkefnin leysum við saman Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Valdatafl eða nauðsynlegt stopp á gölluðu frumvarpi? Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Dánaraðstoð: Varúð má ekki verða að forræðishyggju Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Farsæld barna: Ekkert annað en rómantísk saga á blaði Ingibjörg Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver á þennan bústað? Já eða nei? Stefán Hrafn Jónsson skrifar Skoðun Brexit og fyrirhuguð þjóðaratkvæðagreiðsla hér á landi Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun How to ruin a university system with one law Colin Fisher skrifar Skoðun Upplýst umræða og framsal ríkisvalds Margrét Einarsdóttir skrifar Skoðun Skólinn er alltaf vandinn Íris E. Gísladóttir skrifar Skoðun Geisp Þorgerður María Þorbjarnardóttir skrifar Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Það sem kynslóðir byggðu – og okkar ábyrgð að varðveita Sveinn Kristjánsson skrifar Skoðun Handan óttans: Hvers konar Ísland viljum við byggja? Bjarndís Helena Mitchell skrifar Skoðun Lifandi hvalir skapa líka verðmæti Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar Skoðun Hangið frammi á gangi í von um fréttir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Viðreisn gengur í verkin Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Mannréttindi í Reykjavík í hættu Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Hvernig líður fjölskyldunni? Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisráðherra slær eigið heimsmet Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Kæru landar – Eigum við að hafna samningi sem við höfum ekki séð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Dánaraðstoð fyrir deyjandi fólk: Á ótti við framtíðina að ráða úrslitum? Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Þegar íslenskir embættismenn auglýsa ísraelskt njósnafyrirtæki Ragnhildur Hólmgeirsdóttir,Magnús Magnússon skrifar