Innlent

Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dún­úlpur og 68 vit­orðs­menn

Árni Sæberg skrifar
Ávinningur af fjársvikum af Landsbankanum var meðal annars notaður til að kaupa úlpur og tölvur.
Ávinningur af fjársvikum af Landsbankanum var meðal annars notaður til að kaupa úlpur og tölvur. Vísir/Getty

Umfangsmikil fjársvik tveggja manna af Landsbankanum hófust á því að annar þeirra millifærði fimmtíu þúsund krónur á hinn, án þess að peningur færi út af reikningi hans. Í framhaldinu sviku þeir út tæplega hundrað milljónir króna.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í ákæru á hendur þeim Vytautas Saslauskas og Arturas Sodys, ásamt 68 öðrum, sem fréttastofa hefur undir höndum. Þar segir að þeir Saslauskas og Sodys hafi hagnýtt sér með kerfisbundnum og sviksamlegum hætti villu í viðskiptakerfi netbanka Landsbankans, sem var til komin vegna kerfisuppfærslu Reiknistofu bankanna og leiddi til þess að úttektir af bankareikningum voru tímabundið ekki færðar til lækkunar á ráðstöfunarheimild bankareikninganna Saslauskass.

Alls hafi þeir millifært 120 milljónir króna af reikningi Saslauskass inn á aðra reikninga í hans eigu án þess að eiga innistæðu fyrir millifærslunum. 25 milljónir hafi þeir nýtt til að greiða inn á reikninga sem komnir voru í neikvæða stöðu og því hafi þeir alls svikið út um 96 milljónir króna.

Fimmtán þúsund krónur algeng þóknun

Langstærsti hluti ákærunnar, sem telur einar 149 blaðsíður, varðar peningaþvætti en auk aðalmannanna tveggja sæta 68 ákæru fyrir peningaþvætti, langflestir með því að taka við fjármunum með millifærslu og umbreyta í reiðufé eða flytja áfram með millifærslum og afla sér ólögmæts ávinnings af brotum aðalmannanna. 

Ólögmæti ávinningurinn var í fjölda tilfella fimmtán þúsund krónur fyrir að taka á móti 300 þúsund krónum en allur gangur var á því hversu miklum peningum fólkið hélt eftir. Þá þvættaði minnst einn fé gegn eftirgjafar spilaskuldar. Sumir ákærðu eru einnig ákærðir fyrir að koma því til leiðar að aðrir tóku þátt í peningaþvættinu. 

Þeirra á meðal er Íslendingur sem hlaut árið 2020 þungan dóm fyrir kókaínsmygl, sem þá var stærsta mál sinnar tegundar í Íslandssögunni. Hann er ákærður fyrir að fá tólf aðra Íslendinga til að þvætta pening.

Gucci-taska og dýrar dúnúlpur

Í ákærunni segir að aðalmennirnir tveir hafi, ásamt fleirum, nýtt hluta hinna stolnu fjármuna í eigin þágu, meðal annars með því að kaupa þrjár Canada Goose-dúnúlpur, tvær Macbook Air-fartölvur og tvo Iphone-farsíma. Þá er í ákærunni krafist að sambýliskona eins ákærðu sæti upptöku á Gucci-tösku.

Ákæruvaldið krefst þess að ákærðu verði dæmd til refsingar og upptöku nánar tiltekinna fjármuna, sem þegar hafa verið haldlagðir og geymdir á þar til gerðum bankareikningi Héraðssaksóknara. Þá krefst Landsbankinn þess að Saslauskas og Sodys og greiði tæpar 96 milljónir í skaðabætur óskipt og að hinir ákærður, sem nutu ávinnings af brotum þeirra, greiði einnig 96 milljónir óskipt í skaðabætur.


Tengdar fréttir

Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum

Um sjötíu manns hafa verið ákærðir fyrir fjársvik og peningaþvætti í tengslum við umfangsmikið fjársvikamál sem kom upp í nóvember í fyrra. Hundruð milljóna króna voru svikin út úr Landsbankanum með því að nýta galla hjá Reiknistofu bankanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×