„Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Samúel Karl Ólason skrifar 13. október 2026 12:06 Trump svaraði spurningum blaðamanna áður en hann steig upp í þyrlu fyrir utan Hvíta húsið í gær. AP/Julia Demaree Nikhinson Donald Trump staðhæfði í gær að Vladimír Pútín og Vólódímír Selenskí hefðu samþykkt orkuinnviðaopnahlé, af því að hann hefði sagt að þeir ættu að samþykkja það. Þá hélt forsetinn því fram að það væri Selenskí en ekki Pútín sem stæði í vegi friðar, eins og hann hefur ítrekað gert áður.
Forsetinn var spurður út í yfirlýsingu hans um að bæði Rússar og Úkraínumenn hefðu samþykkt að gera ekki árásir á orkuinnviði hvors annars og þá sérstaklega það að ráðamenn í báðum ríkjum sögðust ekkert kannast við slíkt samkomulag. „Jæja, þeir samþykktu. Veistu af hverju? Af því að ég sagði „þið samþykkið“. Það er ástæðan. Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu.“ "You said Russia and Ukraine agreed to a ceasefire, but both sides say they have not agreed to that..." @POTUS: "They agreed. You know why? Because I said, 'You agree' — that's why. They agreed because I said they agreed, and that thing has to get settled." https://t.co/M8womZ8UBZ— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) October 12, 2026 Þá var hann spurður út í það að Rússar hefðu strax brotið gegn þessu meinta samkomulagi. „Tja, ég þyrfti að skoða það, því það hafa verið brot frá báðum hliðum.“ Forsetinn var strax í kjölfarið spurður út í ummæli Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu, um að hann styddi umrætt vopnahlé en að Pútín gerði það ekki og hvað hann hefði um það að segja. „Ég held þeir styðji það báðir. Þeir vilja báðir semja en kunna það ekki.“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í morgun að Úkraínumenn hefðu ekki gert eina árás á orkuinnviði í Rússlandi síðan Trump lýsti yfir samkomulaginu sem var ekki fyrir um tveimur dögum síðan. Hann sagði Rússa hafa gert fjölda slíkra árása í Úkraínu. Það sagði hann í yfirlýsingu um mjög umfangsmiklar árásir Rússa á Úkraínu undanfarna daga. Since last evening and up to now, the Russians have attacked Ukraine with more than a hundred different weapons – jet-powered drones, loitering munitions, and ballistic missiles. A significant portion of these strike assets were shot down. But unfortunately, not all of them. An ordinary residential building was destroyed in Kharkiv; the rescue operation continued virtually all night as first responders searched for people under the rubble. Four people were killed in this strike on the building in Kharkiv. My condolences to all their families and loved ones. In Kharkiv alone, 41 people were injured in just one evening. There was also a particularly vile ballistic missile strike on Kyiv – five missiles that hit civilian infrastructure. Unfortunately, we received no early warning from our partners about this strike. Intelligence on Russian ballistic missile launches helps save lives, and this is one of the most critical issues. This is precisely what helps prevent people from being killed – when there is an early warning about ballistic missiles. Ukraine has not carried out strikes on Russian oil refineries or the energy sector in general for the two days since the American President announced an energy ceasefire. But Russia did not heed the American President. During this time, the Russians have attacked both our energy facilities and our critical infrastructure, sending absolutely clear signals that they have no intention of refraining from strikes on Ukraine. Nineteen regions of our country have come under attack in these two days alone. Our position remains unchanged: Ukraine is ready for reciprocal steps toward de-escalation, and effective pressure on Russia is needed to make de-escalation happen. Wars end when the aggressor realizes that it cannot prolong the war. Global pressure on Russia contributes to exactly that – bringing peace closer. But direct or indirect support for Russia, slowing down assistance to Ukraine, and making it harder to protect lives against ballistic missiles will certainly not help bring peace. Everyone needs peace. A strong America, a strong Europe, and strong partners are needed. Thank you to everyone who is truly helping!— Volodymyr Zelenskyy / Володимир Зеленський (@ZelenskyyUa) October 13, 2026 Trump var spurður að því í gær hvernig hann ætlaði að fá Pútín til að standa við þetta vopnahlé. „Það sem ég held að sé að gerast, er að hann vill semja. Við þurfum bara að fá Selenskí til að vilja semja,“ sagði Trump. Því næst spurði hann hvaðan blaðamaðurinn væri og sá svaraði Póllandi. „Nú, forsetinn ykkar er góður forseti. Þú veist að ég lýsti yfir stuðningi við hann og hann vann, þú veist það er það ekki?“ Blaðamaðurinn pólski hélt áfram og spurði Trump hvar hvernig hann sæi vilja til samninga hjá Pútín á meðan hann héldi árásum á Úkraínu áfram. „Ég held að þeir muni semja. Í rauninni held ég að Pútín vilji semja meira en Selenskí,“ sagði Trump og gekk áfram. .@POTUS: "I think, actually, Putin wants to make a deal more than Zelensky." https://t.co/jakykFpNCP— Rapid Response 47 (@RapidResponse47) October 12, 2026 Undanfarna daga hefur Trump verið verulega gagnrýninn á Selenskí og þá að miklu leyti vegna árása Úkraínumanna á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Sala olíuafurða er helsta tekjulind rússneska ríkisins og Úkraínumenn segja hana notaða til að fjármagna stríðsrekstur Pútíns í Úkraínu. Trump vill meina að hátt verð á díselolíu sé þessum árásum að kenna en ekki stríði Bandaríkjanna gegn Íran. Það háa verð þykir líklegt til að koma verulega niður á Repúblikönum í þingkosningunum í næsta mánuði og vill Trump lækka verðið. Sérfræðingar segja það ekki rétt hjá forsetanum. Stríðið gegn Íran spili mun stærri rullu í hærra verði en árásir Úkraínumanna í Rússlandi. Trump því yfir á dögunum að ráðamenn í bæði Rússlandi og Úkraínu hefðu samþykkt að hætta árásum á orkuinnviði í hvoru landi fyrir sig. Ekkert slíkt samkomulag lá fyrir en þetta er í annað sinn sem Trump segir ósatt um að samið hafi verið um vopnahlé af þessu tagi. Hótuðu að hætta aðstoð Þegar Donald Trump tók aftur við embætti forseta Bandaríkjanna hætti hann mestöllum stuðningi við Úkraínu en bandamenn Úkraínu í Evrópu hafa keypt flugskeyti í loftvarnarkerfi Úkraínumanna frá Bandaríkjunum síðan þá. Það hefur meðal annars verið gert í gegnum NATO-verkefni sem kallast PURL og hefur Ísland tekið þátt í því. Bandaríkjamenn hafa sömuleiðis deilt upplýsingum um undirbúning Rússa fyrir árásir í Úkraínu, hreyfingar rússneskra sveita á víglínunni og möguleg skotmörk í Rússlandi, svo eitthvað sé nefnt, með Úkraínumönnum. Um helgina tilkynntu bandarískir embættismenn kollegum sínum í Úkraínu að þessu yrði mögulega hætt, ef Úkraínumenn hættu ekki árásum á olíuvinnsluinnviði í Rússlandi. Var það eftir að Trump opinberaði að Bandaríkin ætluðu að kaupa díselolíu frá Rússlandi. Eins og frægt er hét Trump því að binda enda á stríðið á fyrsta degi eftir að hann sneri aftur í Hvíta húsið eða jafnvel fyrr. Það hefur lítið sem ekkert gengið hjá honum. Trump hefur ítrekað hótað því að beita Rússa miklum refsiaðgerðum til að reyna að þvinga þá að samningaborðinu en hefur hingað til ekki staðið við stóru orðin. Í viðræðum við Rússa og Úkraínumenn hefur Trump og hans fólk lagt mesta áherslu á að fá Úkraínumenn til að verða við kröfum Rússa. Sjá einnig: Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Ráðamenn í Rússlandi hafa, að virðist, ekkert komið til móts við Bandaríkjamenn í þessum viðræðum eða dregið úr kröfum sínum. Selenskí var spurður út í þetta í viðtali á dögunum. Af hverju Trump og aðrir eins og Elon Musk, kenndu honum um þetta stríð en ekki Pútín. Forsetinn sagði það vera vegna þess að þeir fyndu enga leið til að stöðva Pútín. Það væri mun erfiðara fyrir þá að þrýsta á Pútín en hann. Það væri auðveldara að kenna Úkraínumönnum um. Ukrainian President Zelenskyy rejects the notion that high consumer prices are connected to the war in Ukraine. “It's more simple to speak about the prices and connect it with Ukraine. Everybody in the world understands because of the war in [the] Middle East, the prices are rising.” https://t.co/RFZYh2aPct— This Week (@ThisWeekABC) October 11, 2026 Trúir ekki að Rússar og Kínverjar aðstoði klerkastjórnina Trump saðist einnig í gær þeirrar skoðunar að Kínverjar og Rússar séu ekki að aðstoða klerkastjórnina í Íran í stríðinu gegn Bandaríkjunum. Ef svo sé, skipti það ekki miklu máli en Trump segist enga trú hafa á því. Það er þrátt fyrir að Bandaríkjamenn hafi beitt refsiaðgerðum vegna þessarar aðstoðar og að ráðherrar hafi talað um það opinberlega. „Þeir hafa of miklu að tapa og við myndum vita af því. Við myndum vita það mjög hratt,“ skrifaði Trump á Truth social í gærkvöldi. Í færslunni kvartaði hann yfir ummælum um þessa meintu aðstoð og sagði þau koma frá öfgafullum vinstri-fávitum og geðsjúklingum. Færsla Trumps á Truth Social. Rússar og Kínverjar hafa um árabil verið meðal nánustu bandamanna klerkastjórnarinnar í Íran og hafa bæði ríki lengi verið sökuð um að aðstoða klerkastjórnina við að komast hjá refsiaðgerðum. Frá því Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í lok febrúar hafa ríkin þó ekki komið Írönum til aðstoðar með opinberum hætti. Rússar segjast hafa sent mannúðaraðstoð til Íran en hafa ekki opinberað neina annars konar aðstoð. Ráðamenn í Kína hafa, eins og fram kemur í grein AFP-fréttaveitunnar, gagnrýnt árásirnar og lokun Hormússunds Fregnir hafa ítrekað borist af því að ráðamenn í Rússlandi og Kína hafi komið klerkastjórninni til aðstoðar. Meðal annars hafi Íranir fengið upplýsingar um möguleg skotmörk fyrir eldflauga- og drónaárásir frá bandamönnum sínum og hergögn. Þá hafa borist fregnir af því að Íranir hafi fengið sendingar af svokölluðum MANPADS-kerfum frá Kína en það eru loftvarnarkerfi sem geta verið borin á öxlinni. Hegseth sagði frá aðstoðinni Í gegnum árin hefur Trump ítrekað talað máli einræðisherra eins og Xi Jinping og Vladimírs Pútín. Hann hefur lýst báðum sem „hlutlausum“ í stríði hans gegn Íran. Í síðasta mánuði blés hann á fregnir af því að Íranir hefðu fengið gervihnattamyndir frá Kína sem hefðu hjálpað þeim að gera árás á bandaríska herstöð í júní. Þrír bandarískir hermenn féllu í árásinni. Það er þrátt fyrir að utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna hafi beitt þrjú kínversk gervihnattafyrirtæki refsiaðgerðum í maí vegna aðstoðar handa klerkastjórninni í Íran, eins og tíundað er í grein Newsweek þar sem farið er yfir það hvernig Rússar og Kínverjar hafa aðstoðað klerkastjórnina og það að yfirvöld í Bandaríkjunum viti af því. Þar er meðal annars vísað til þess að Pete Hegseth, varnarmálaráðherra, hafi sagt það á fundi með öldungadeildarþingmönnum í sumar. Einnig er vísað í ummæli íranskra embættismanna um aðstoð frá þessum ríkjum.
Bandaríkin Donald Trump Úkraína Rússland Vladimír Pútín Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Kína Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent Fleiri fréttir „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Sjá meira