Erlent

At­kvæða­greiðsla boðuð í þrá­tefli eftir sænsku kosningarnar

Kjartan Kjartansson skrifar
Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, (t.v.) með Andreas Norlén, forseta sænska þingsins, (t.h.) eftir þingkosningar sem fóru fram í september.
Magdalena Andersson, leiðtogi Jafnaðarmannaflokksins, (t.v.) með Andreas Norlén, forseta sænska þingsins, (t.h.) eftir þingkosningar sem fóru fram í september. Vísir/EPA

Sænska þingið greiðir atkvæði um hvort að Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna, njóti trausts til að verða forsætisráðherra á sænska þinginu á fimmtudag. Ekkert gengur þó hjá Andersson að mynda ríkisstjórn og ljóst er að hún fái ekki meirihluta í atkvæðagreiðslunni.

Mánuður er liðinn frá þingkosningum í Svíþjóð. Andersson fékk stjórnarmyndunarumboð þar sem Jafnaðarmannaflokkur hennar hlaut flest atkvæði þótt hann hefði tapað þingstyrk.

Hvorki hefur gengið né rekið hjá Andersson. Upphafleg tilraun hennar til þess að mynda ríkisstjórn með öðrum flokkum í svonefndri rauðgrænni blokk sænskra stjórmála fór út um þúfur vegna ágreinings við Vinstriflokkinn. Henni hefur ekki tekist betur upp síðan þá.

Andersson sagði í morgun eftir fund hennar með Andreas Norlén, þingforseta, að aðstæður væru ekki til stjórnarmyndunar þó að viss árangur hefði náðst í viðræðum flokkanna. Óbrúanlegur ágreiningur væri enn til staðar. 

Þar átti hún væntanlega við að Miðflokkurinn harðneitar að styðja ríkisstjórn sem Vinstriflokkurinn á sæti í. Leiðtogar Vinstriflokksins vilja ekki styðja ríkisstjórn jafnaðarmanna nema þeir fái sjálfir sæti í henni.

Á ósigurinn vísan

Norlén tilkynnti eftir fundinn í morgun að hann ætlaði að boða til atkvæðagreiðslu um eins flokks ríkisstjórn jafnaðarmanna á fimmtudag, að sögn sænska ríkisútvarpsins.

Mest er hægt að boða til slíkra atkvæðagreiðslna fjórum sinnum. Boða þarf til nýrra kosninga ef enginn ríkisstjórnarkostur fær meirihluta atkvæða.

Ekki þarf að spyrja að leikslokum því leiðtogar flokka af bæði vinstri og hægri vængnum hafa þegar sagst ætla að greiða atkvæði gegn Andersson. Hún efast ekki um eigin ósigur heldur.

„Ég mun tapa,“ sagði hún í morgun.

Í framhaldi atkvæðagreiðslunnar segist Norlén ætla ræða við fulltrúa annarra flokka um næstu skref.


Tengdar fréttir

Fær aukadag til stjórnarmyndunar

Magdalena Andersson, leiðtogi jafnaðarmanna í Svíþjóð, fær einn aukadag til stjórnarmyndunarviðræðna en hún átti upphaflega að skila skýrslu til forseta þingsins á morgun.

Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf

Magdalena Andersson formaður Jafnaðarmannaflokksins í Svíþjóð fær stjórnarmyndunarumboðið á ný eftir að hafa skilað því fyrr í vikunni. Forseti sænska þingsins tilkynnti á blaðamannafundi í morgun að Andersson fái viku frá og með mánudegi til að reyna að mynda starfhæfa ríkisstjórn.

Stríðs­yfir­lýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga

Óhætt er að segja að allt sé í upplausn í sænskum stjórnmálum. Spár stjórnmálafræðinga um að erfitt yrði að mynda ríkisstjórn virðast vera að ganga eftir og allt stefnir í aðra stjórnarkreppuna í Svíþjóð á aðeins átta árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×