Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Tómas Arnar Þorláksson skrifar 13. október 2026 13:34 Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, segir að Ingvar Þóroddsson, þingmaður Viðreisnar, hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen við beinbroti. vísir/vilhelm „Það þarf að meta hvert tilfelli fyrir sig og það er ekki gert í matvöruverslunum. Einstaklingur sem leitar sér þjónustu þar sem lyf eru seld þarf að geta leitað til lyfjafræðings og fengið ráðgjöf. Maður hefur áhyggjur af því, maður hefur verulegar áhyggjur af því.“
Þetta segir Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, í samtali við fréttastofu innt eftir viðbrögðum við frumvarpi þingmanns Viðreisnar varðandi sölu verkjalyfja og annarra lausasölulyfja í matvöruverslunum. „Ég held að aðalpunkturinn hér á Íslandi sé að lyf eru ekki almenn neysluvara og það er ástæða fyrir því. Íslendingar eru of fljótir að fara í svokallað „a pill for every ill“ og ef við ætlum einhvern tímann að stuðla að skynsamlegri lyfjanotkun þá er það ekki með því að opna á sölu lyfja sem er óþarfi í sumum tilfellum að nota.“ „Lyf geta haft óæskileg áhrif á fólk“ Fréttastofa greindi frá frumvarpinu um helgina. Þar var rætt við Ingvar Þóroddsson, þingmann Viðreisnar, sem sagði markmiðið að bæta aðgengi að lyfjunum og auka samkeppni. Við núverandi fyrirkomulag fást lausasölulyf í apótekum en Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apótek. Ef frumvarpið verður að lögum yrðu lyfin afgreidd af starfsfólki matvöruverslana. Sigurbjörg Sæunn segir frumvarpið koma sér á óvart í ljósi þess að hún telur ekki ákall innan samfélagsins eftir auknu aðgengi að lyfjum. „Ég hef náttúrulega áhyggjur af því að lyf skuli vera skilgreind sem almenn vara því að lyf eru ekki almenn vara. Lyf geta haft óæskileg áhrif á fólk sem að ég held að almenningur geri sér kannski ekki alltaf grein fyrir,“ segir hún og nefnir að í nágrannalöndum okkar hafi sambærilegt frumvarp ekki reynst vel til lengri tíma. „Svíþjóð gerði þetta á sínum tíma og dró það síðan til baka vegna þess að bara við það að selja parasetamól í verslunum gerði það að verkum að parasetamóleitrunum fjölgaði um 40 prósent. Það skapar gríðarlegt álag á starfsfólk og heilbrigðiskerfið yfir höfuð. Ég hef ekki verið að taka eftir því að verið sé að kalla eftir meira aðgengi að lyfjum.“ Telur verðlækkun ólíklega Ingvar bindur vonir við það að breytingin muni koma til með að lækka lyfjaverð. Sigurbjörg segir það ákveðna óskhyggju og telur ekki líklegt að það rætist úr því. „Verðlækkunarrökin halda illa. Það mætti til dæmis bera saman verð á nikótíntyggjói í apótekum og almennum verslunum. Nikótínið er í raun dýrara ef horft á hvert stykki í pakka í verslunum. Þannig að ef horft er algerlega fram hjá öryggi sjúklinga og bara á verðið þá myndi þessi breyting lítið gera fyrir neytendur.“ Í viðtali við fréttastofu nefndi Ingvar dæmi þar sem hann var í skíðaferð í Noregi þar sem hann fótbrotnaði. Þegar hann komst af sjúkrahúsinu nærri miðnætti var ekkert apótek opið en hann gat þá verslað Paratabs og Íbúfen á bensínstöð. Að mati Sigurbjargar á þetta dæmi illa við íslenskar aðstæður. „Það á kannski ekki við íslenskar aðstæður. Þannig að maður spyr sig: Hver er þörfin? Verklagið er þannig á sjúkrahúsum í dag að ef fólk brotnar og þarf á verkjalyfjum að halda þá fær það verkjalyf á sjúkrahúsinu, þangað til það kemst í lyfjaverslun. Við berum ábyrgð í apótekum á því að fræða sjúklinga og ég veit ekki hvernig sú fræðsla ætti að fara fram í matvöruverslunum. Þar er enginn lyfjasöluleyfishafi sem ber ábyrgð á þjálfun og gæðum þjónustu eins og er gert á Íslandi.“ En eins og í þessu tiltekna dæmi þar sem þingmaður tekur íbúfen í kjölfar beinbrots. Er það rétta leiðin til að bregðast við? „Það má alveg deila um það. Varðandi lyfjameðferð við beinbroti. Það er alveg spurning og það vilja margir meina að ef beinbrotið er stabíliserað þá sé ekki æskilegt eða þörf á því að taka verkjalyf. Með Íbúfenið það náttúrulega eykur blæðingarhættu vegna þess að NSAID-lyf, eins og þau eru kölluð, geta aukið blæðingu. Það þarf að meta hvert tilfelli fyrir sig og það er ekki gert í matvöruverslunum,“ segir hún og ítrekar mikilvægi þess að einstaklingar geti leitað sér þjónustu hjá lyfjafræðingi og fengið ráðgjöf ef eftir því er óskað.
Lyf Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Mest lesið Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Sjá meira