Innlent

Yfir sjö­tíu prósent ó­á­nægja með Ingu Sæ­land

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar.
Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingar og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar. Vísir/Viktor

Vaxandi óánægja er með störf formanna allra ríkisstjórnarflokkanna samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Dregið hefur úr óánægju með formann Framsóknar eftir að Lilja Alfreðsdóttir tók við.

Í könnun Maskínu var spurt hversu vel eða illa formenn stjórnmálaflokka á Alþingi hafa staðið sig á kjörtímabilinu. Könnunin var gerð frá 2. til 7. október en sambærileg könnun var einnig gerð á síðasta ári.

Helsta breytingin milli ára er aukin óánægja með störf Ingu Sæland, formanns  Flokks fólksins. Á síðasta ári taldi tæpur helmingur, eða 47 prósent að hún hefði staðið sig illa en í nýrri könnun er yfirgnæfandi meirihluti, eða 71 prósent á þeirri skoðun.

Frammistaða formanna

Hvernig hafa þeir staðið sig á þessu kjörtímabili?
Maskína

Óánægja með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, formann Viðreisnar, hefur einnig aukist. Nú telur um tæpur helmingur, eða 44 prósent að hún hafi staðið sig illa. Í fyrra var þriðjungur, eða 33 prósent, ósáttur við hennar störf.

Fleiri eru einnig ósáttir við störf Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingar. Í fyrra mældist óánægjan 21 prósent en í ár segjast 35 prósent ósáttir við frammistöðu hennar á kjörtímabilinu.

Lilja Alfreðsdóttir tók við formennsku í Framsóknarflokknum í febrúar á þessu ári.Vísir/Anton Brink

Síðasta könnun Maskínu var gerð þegar Sigurður Ingi Jóhannsson var formaður Framsóknar. Þá var yfir helmingur aðspurða, eða 59 prósent, ósáttur við hans störf. Mun færri eru óánægðir með störf Lilju Alfreðsdóttur sem tók við formennsku í flokknum í febrúar, eða 43 prósent. 

Óánægja með Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, og Sigmund Davíð Gunnlaugsson, formann Miðflokksins, breytist lítið milli ára og mælist raunar hnífjöfn.

Í fyrra sögðu ríflega sextíu prósent að Sigmundur Davíð og Guðrún hefðu staðið sig illa en í ár mælist óánægjan tæplega sextíu prósent hjá þeim báðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×