Innlent

Nýr meiri­hluti í Suðurnesjabæ

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn.
S-listi Samfylkingar og óháðra og B-listi Framsóknar og óháðra hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn. Suðurnesjabær

Samfylkingin og Framsókn hafa náð samkomulagi um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar. Meirihluti Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar sprakk á sunnudaginn síðastliðinn eftir fjögurra mánaða samstarf. 

Frá þessu er greint í fréttatilkynningu. Þar segir að samstarfið hafi verið undirritað í kvöld og byggi á sameiginlegum áherslum flokkanna um ábyrga fjármálastjórn, öfluga þjónustu við íbúa, uppbyggingu innviða og áframhaldandi framfarir í sveitarfélaginu.

Svavar Grétarsson, oddviti S-lista Samfylkingar og óháðra, verði áfram formaður bæjarráðs og Anton Kristinn Guðmundsson, oddviti B-lista Framsóknar og óháðra, verði forseti bæjarstjórnar. 

Alexandra Jóhannsdóttir muni áfram gegna embætti bæjarstjóra Suðurnesjabæjar en hún var ráðin af fyrri meirihluta sem ópólitískur bæjarstjóri. Málefnasamningur flokkanna verði kynntur á bæjarstjórnarfundi á þriðjudaginn næstkomandi.

Trúnaðarbrestur og vallarmál sprengdu fyrri meirihluta

Meirihluti Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sprakk fyrir viku síðan, meðal annars vegna ágreinings um staðsetningu íþróttavalla í sveitarfélaginu, sem samanstendur af tveimur bæjum, Garði og Sandgerði.

„Undanfarnir dagar hafa einkennst af pólitískri óvissu í Suðurnesjabæ. Með myndun nýs meirihluta vilja flokkarnir tryggja stöðugleika í stjórn sveitarfélagsins og skapa traustan grundvöll fyrir áframhaldandi uppbyggingu,“ segir í tilkynningu nýs meirihluta. 

Meðal þess sem lögð verði áhersla á sé ábyrgur rekstur, uppbygging íþróttamannvirkja, skóla- og leikskólamál og bættar samgöngur.

Anton Kristinn Guðmundson, oddviti B-lista Framsóknar og óháðra, og Svavar Grétarsson, oddviti S-lista Samfylkingar og óháðra.Suðurnesjabær

Samstarfið byggi á trausti, virðingu og sameiginlegri sýn á að hagsmunir íbúa Suðurnesjabæjar séu í fyrirrúmi. Flokkarnir vilji leggja áherslu á gott samstarf allra kjörinna fulltrúa óháð pólitískum skoðunum og að ágreiningur um einstök málefni megi ekki standa í vegi fyrir framgangi mikilvægra verkefna. 

Fréttin hefur verið uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×