Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 10. október 2026 18:51 Guðný María og Brynhildur ræddu málið við fréttamann á Skólavörðustíg. Vísir/Sigurjón Endurheimt bílastæða sem koma í stað bekkja og blómapotta í miðborg Reykjavíkur er áhyggjuefni að mati formanns Samtaka um bíllausan lífsstíls. Formaður umhverfis-og skipulagsráðs borgarinnar segir um eðlilega ráðstöfun að ræða fyrir veturinn. Báðir formenn eru opnir fyrir frekara samtali um málið og vilja draga umræður um bílastæði og samgöngumál upp úr skotgröfunum. Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhannsdóttur formann umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur og Brynhildi Bolladóttur formann Samtaka um bíllausan lífsstíl. Guðný María segir um eðlilega ráðstöfun að ræða í aðdraganda veturs. „Við erum í rauninni að opna bara stæði sem að hafa verið í annarri notkun. Sum þeirra eru í notkun yfir sumartímann sem svona útiveitingasvæði og við erum að fjarlægja þá búnað og hérna götugögn úr þeim stæðum. Önnur eru hins vegar stæði þar sem voru blómaker eða annað sem að við erum þá í rauninni bara að taka úr og taka stæðin aftur í notkun. Þannig að þetta er í rauninni bara svona eðlilegur rekstur hjá okkur í miðborginni. Það þarf að undirbúa miðborgina fyrir hérna veturinn, eins og við sjáum í dag, hann er að nálgast.“ Á sama tíma sé verið að endurstaðsetja hjólaboga og koma þeim fyrir á öðrum stöðum en í bílastæðum. „Við tókum þá úr tveimur stæðum og erum búin að koma þeim fyrir á öðrum stöðum. Þannig að við höfum líka verið að reyna aðeins að finna betri svæði og stæði fyrir þessa boga og á móti auðvitað erum við að fá þarna stæði í notkun fyrir fólk sem vill heimsækja miðborgina, hjólaboga fyrir fólk sem kemur á hjóli í miðborgina og vill nota þann fararmáta og búa til tekjur í þessum stæðum sem hafa ekki verið að búa til tekjur.“ Brynhildur segir að það svíði að horfa á eftir hjólabogum úr bílastæðum. Þeir séu innviðir fyrir hjólandi. Hún segist ekki sjá hvernig fimmtán bílastæði til viðbótar skipti máli í stóra samhenginu. „Innviðir sem við sem ferðumst um á hjóli þurfum svo sannarlega á að halda. Ég lagði núna hjólinu mínu við ljósastaur af því að það eru engin svæði fyrir okkur, þannig að maður svona einhvern veginn, forgangsröðunin er kannski stundum svolítið skökk.“ Guðný segist telja að um skynsamlega ráðstöfun sé að ræða. Á móti stæðunum hafi hjólabogum verið komið fyrir á fjórum stöðum í miðborginni. Markmiðið sé að bjóða alla velkomna í miðborgina sama hvernig þeir kjósi að ferðast. Samkvæmt yfirliti yfir stæðin sem hafa verið tekin aftur í notkun eða verða opnuð á allra næstu dögum eru þau á þessum stöðum: Tvö fyrir framan Kalda á Klapparstíg. Eitt fyrir framan Bad Mickey á Pósthússtræti. Tvö fyrir framan Café Babalú á Skólavörðustíg. Tvö fyrir framan Bingó á Skólavörðustíg. Fjögur fyrir framan Messann á Lækjargötu. Eitt við Ráðhúsið á Tjarnargötu. Eitt við Eimskipafélagshúsið í Hafnarstræti. Eitt við Gamla bíó í Ingólfsstræti. Eitt á Bergstaðastræti fyrir ofan Kaffibarinn. Útiveitingasvæði við Kalda, Café Babalú, Bingó og Messann verða fjarlægð. Í yfirlitinu kemur fram að svæðin við þrjá fyrstnefndu staðina séu þar yfir sumarið. En hvað með svona svæði eins og hér við Kaffi Babalú, þetta lítur huggulega út, þarna virðist vera hægt að setjast og fá sér kaffi, hvers vegna að taka þetta, eru tveir bílar þarna fallegra en þetta? „Nei sum af þessum útiveitingasvæðum eru bara þannig að þau eru ekki gerð til þess að vera úti yfir veturinn. Þannig það er ekki mjög gott þegar fer að blása meira en í dag að hafa þetta hér, það er ástæða þess að við tökum svona götugögn inn og það er ekkert óeðlilegt við það.“ Brynhildur, sumir velta fyrir sér af hverju í sumum af þessum stæðum séu bara einhverjir blómapottar sem borgarbúar hafa ekki mikið af gagn af, hvað segirðu við þeirri gagnrýni? „Það er kannski bara mjög réttmætt hjá þér en þetta hérna er svo miklu meira næs heldur en bílar og ég held að það sé lykilatriðið í þessu að alls staðar þar sem þú tekur blómaker, hjólaboga eða bekki og kemur fyrir bílastæði þá þýðir það að það eru bílar þar og það er ekki mannvænlegt umhverfi og það er það sem við erum helst að hugsa. Það er miklu meira notalegt að vera hjá bekkjum jafnvel þó það sitji enginn á þeim. Á vondum dögum er skiljanlegt að það sitji enginn úti og drekki kaffi en það er samt notalegra en að það sé bíll fyrir framan.“ Hún segir þá sem ferðast með öðrum leiðum en bíl vilja að gert sé ráð fyrir þeim. Fimmtán bílastæði til eða frá skipti ekki öllu máli en frelsi felist í því að vera án bíls. „Þetta frelsi er það sem að við viljum fá að nýta okkur og fá að vera bara einmitt sýnileg, fá að vera til og að okkur sé gert kleift að vera ekki á einkabílnum og við erum kannski aðallega svona, þessi 15 stæði er ekki make or break í þessu öllu. En það er svona kannski einmitt hvernig er talað um það. Það er skrifuð grein á Vísi um nýja stefnu í samgöngumálum og skipulagsmálum í borginni og maður er svona, það er uggur í manni hvað verður næst.“ Til í frekara samtal Báðar telja þær of mikla hörku í umræðunni um málið og vilja koma henni upp úr skotgröfum sem þær segja einkenna umræðu um bílastæði. Guðný segist klár í samtalið. „Við Brynhildur erum búnar að spjalla hérna fyrir viðtalið og við þurfum að hittast yfir kaffibolla og fara yfir málin, það er alveg klárt mál að við ætlum að vinna með þeim sem vinna að því að gera borgina okkar betri fyrir þá sem kjósa að hjóla og ganga. Það er alveg ljóst að við höldum áfram á þeirri vegferð og þessi fimmtán bílastæði hafi ekkert með það að gera.“ Samgöngumál Bílar Reykjavík Hjólreiðar Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira
Samkvæmt yfirliti yfir stæðin sem hafa verið tekin aftur í notkun eða verða opnuð á allra næstu dögum eru þau á þessum stöðum: Tvö fyrir framan Kalda á Klapparstíg. Eitt fyrir framan Bad Mickey á Pósthússtræti. Tvö fyrir framan Café Babalú á Skólavörðustíg. Tvö fyrir framan Bingó á Skólavörðustíg. Fjögur fyrir framan Messann á Lækjargötu. Eitt við Ráðhúsið á Tjarnargötu. Eitt við Eimskipafélagshúsið í Hafnarstræti. Eitt við Gamla bíó í Ingólfsstræti. Eitt á Bergstaðastræti fyrir ofan Kaffibarinn. Útiveitingasvæði við Kalda, Café Babalú, Bingó og Messann verða fjarlægð. Í yfirlitinu kemur fram að svæðin við þrjá fyrstnefndu staðina séu þar yfir sumarið.
Samgöngumál Bílar Reykjavík Hjólreiðar Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira