Verða bílveikari í rafbílum Fólk upplifir meiri bílveiki í rafmagnsbílum heldur en öðrum bílum. Þetta segir háls-, nef- og eyrnalæknir sem segir vísindamenn ekki búna að átta sig á hvað veldur þó líklega megi skýringuna finna í hröðunarbreytingum í rafbílunum. Innlent 24.9.2025 07:01
Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Nýi Hyundai Santa Fe jeppinn er margverðlaunaður og fjölskylduvænn jeppi sem sameinar kraft, sparneytni og nýjustu tækni. Það var því mikil tilhlökkun hjá blaðamanni Vísis þar sem hann stóð fyrir framan silfurgráa kaggann á sólríkum laugardegi fyrir utan höfuðstöðvar Hyundai á Íslandi. Framundan var reynsluakstur alla helgina í fallegu haustveðri með allri sinni litadýrð. Samstarf 19.9.2025 14:28
Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Bílaleigu á Íslandi hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini sínum tæpa hálfa milljón króna í kjölfar þess að hafa rukkað hann um ýmsan kostnað í kjölfar þess að hann hafði fyrir dælt dísil á bílaleigubílinn sem knúinn var bensíni. Ástæðan er að upplýsingar og merkingar hafi ekki verið nægilega skýrar um að bensínbíl væri að ræða. Neytendur 12.9.2025 14:05
Á leið á heimsmeistaramót í drifti: „Íslendingarnir eru til, við getum þetta líka“ Lífið 10.9.2025 08:57
Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Bílastæðið við Ástjarnarkirkju hefur verið tekið yfir af stórum atvinnutækum sem leggja yfir þvert bílastæðið. Prestur í kirkjunni segir slíkt ekki gerast oft. Bílastæði kirkjunnar er ekki það eina þar sem fullt er af ökutækjum. Innlent 21. ágúst 2025 15:04
„Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Saint Paul Edeh er ekki lengur með atvinnuréttindi til að starfa sem leigubílstjóri, samkvæmt vef Samgöngustofu. Myndskeið af honum vakti athygli í síðustu viku þegar hann sást hnakkrífast við ferðamenn. Þegar fréttastofa ræddi við hann fyrr í dag sagðist hann þó ekki vera upplýstur um að hann hafi verið sviptur atvinnuleyfinu. Innlent 20. ágúst 2025 17:30
Tugir bíltegunda innkallaðir eftir 35 dauðsföll Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur ítrekað innköllun loftpúða fjölmargra tegunda bíla sem voru framleiddir frá 1998 til 2019. Um er að ræða 31 bílategundir allt í allt. Neytendur 19. ágúst 2025 14:49
Fjörutíu ára draumur Guðmundar rættist Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari danska úrvalsdeildarliðsins Fredericica HK og fyrrverandi landsliðsþjálfari, hvetur fólk til að láta sig dreyma og láta drauminn rætast. Lífið 18. ágúst 2025 16:02
„Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Það fór fiðringur um blaðamann þegar hann frétti að hann fengi að reynsluaka glænýjan og glansandi BMW X3, nánar tiltekið BMW X3 30e M-Sport. Um er að ræða glæsilegan sportjeppa þar sem sameinast sportlegir aksturseiginleikar, háþróuð tækni og einstök hönnun. Er við öðru að búast frá þýska gæðamerkinu BMW? Samstarf 11. ágúst 2025 11:30
Þríbætti tíma kærastans í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu Sigurbjörg og Victor kepptu nýverið, fyrst Íslendinga, í einni stærstu spyrnukeppni Evrópu í Svíþjóð. Sigurbjörg var sátt við að enda um miðja keppni og ánægðari með að þríbæta tíma kærastans. Parið fær ekki nóg og dreymir um að vera heilt keppnissumar í Svíþjóð. Lífið 7. ágúst 2025 07:02
Eftir þrettán ára nám fékk Saga bílpróf Leikarinn og skemmtikrafturinn Saga Garðarsdóttir er nú handhafi ökuréttinda í fyrsta sinn á 38 aldursári. Fyrsta ökutímann satún 25 ára og í dag stóðst hún prófið undir handleiðslu sama manns. Lífið 6. ágúst 2025 17:40
Íbúar á gömlum og fallegum dráttarvélum í Hrísey Gamlar dráttarvélar eru aðal ferðamáti íbúa í Hrísey enda ekki um miklar vegalengdir að ræða í eyjunni. Mikið er lagt upp úr fallegu útliti vélanna þannig að þær sómi sér vel á staðnum. Veitingamaður í eyjunni, segir alltaf meira nóg að gera yfir sumartímann. Innlent 4. ágúst 2025 20:05
Barst tilkynning um olíustuld í Hafnarfirði Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um þjófnaði á olíu úr beltagröfu í Hafnarfirði. Málið er til rannsóknar en undanfarna daga hefur mikið borið á olíustuldri. Innlent 30. júlí 2025 18:10
Meintur þjófur leitaði til lögreglu vegna framkvæmdastjórans Framkvæmdastjóri flutningafyrirtækis segir algjörlega sturlað að vera orðinn sakborningur í rannsókn lögreglu vegna meintra hótana hans í garð eiganda bíls sem notaður var til að stela díselolíu af flutningabílum. Innlent 29. júlí 2025 11:02
Bílar fullir af bensínbrúsum séu úti um alla borg Hundruðum lítra af díselolíu fyrir milljónir króna hefur verið stolið frá flutningafyrirtæki í borginni. Framkvæmdastjóri segist telja höfuðborgarsvæðið fullt af bílum stútfullum af stolnum bensín- og olíubrúsum, fjölmörg önnur fyrirtæki hafi lent í viðlíka þjófnaði. Lögregla náði þjófi í slíkum erindagjörðum glóðvolgum í Bústaðahverfi í nótt. Innlent 28. júlí 2025 19:05
Atvinnubílstjóri með farþega undir áhrifum áfengis í vinnunni Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af atvinnubílstjóra í farþegaflutningum sem reyndist undir áhrifum áfengis í dag. Innlent 27. júlí 2025 17:49
Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Nokkur hundruð lítrum af díselolíu var stolið úr flutningabíl fyrirtækisins Fraktlausnir í gærnótt. Framkvæmdastjóri segir fyrirtækið hafa orðið fyrir tjóni upp á nokkrar milljónir vegna þjófahóps sem hafi í gríð og erg stolið olíu af fyrirtækinu. Innlent 26. júlí 2025 14:07
Tekjur jukust um helming milli ára Tekjur Arctic Truck International námu 1,47 milljarði króna árið 2024 og jukust um 46 prósent frá fyrra ári. Hagnaður ársins nam 105,7 milljónum króna, samanborið við 82,9 milljónir árið áður. Eigið fé samstæðunnar í árslok var 444,6 milljónir króna, þar af 89,3 milljónir í hlutafé. Viðskipti innlent 23. júlí 2025 11:41
Japanskir bílaframleiðendur í skýjunum eftir tollasamkomulag Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur tilkynnt um að samkomulag um „risastóran“ viðskiptasamning milli Japans og Bandaríkjanna hafi náðst. Samkomulagið felur meðal annars í sér að 15 prósenta tollur verði lagður á japanskar vörur, en Japan muni fjárfesta um 550 milljörðum dollara í Bandaríkjunum. Viðskipti erlent 23. júlí 2025 08:29
Alþjóðlegt bílafyrirtæki kaupir Öskju og systurfélög Bílaumboðið Askja, Una, Dekkjahöllin og Landfari hafa verið seld til alþjóðlega bílafyrirtækisins Inchcape, sem sérhæfir sig í sölu og dreifingu bifreiða á heimsvísu og er skráð í kauphöllina í Lundúnum. Viðskipti innlent 22. júlí 2025 06:52
Þriggja bíla árekstur á Hringbraut Árekstur þriggja bíla varð við gatnamót Hringbrautar og Njarðargötu fyrir skemmstu. Einn var í hverjum bíl fyrir sig og einn var fluttur á slysadeild til skoðunar. Innlent 17. júlí 2025 17:23
Af hverju vinkar Teslan alltaf á sama stað? Teslu-eigandi hefur ítrekað lent í því að Teslan hans blakar öðrum hliðarspeglinum á nákvæmlega sama staðnum á Austurveginum á Selfossi. Aðrir Telsu-eigendur hafa lent í svipuðu á hinum ýmsu stöðum. En er þetta hönnunargalli, bilun eða stillingaratriði? Lífið 17. júlí 2025 12:45
Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Landvörður telur utanvegaakstur daglegt brauð í Reykjanesfólkvangi og sökudólgana í flestum tilfellum Íslendinga. Innlent 15. júlí 2025 20:48
„Ég var örugglega getinn í Land Rover“ 27 ára stálsmiður á Akureyri hefur ekki tölu á því hvað hann á marga Land Rover bíla en hann hefur gert þá flesta upp. Hann eignaðist sinn fyrsta Land Rover aðeins 13 ára gamall, sem hann fékk í fermingargjöf og gerði hann strax allan upp. Innlent 15. júlí 2025 20:04
Sjálfvirk bílaþvottastöð opnuð á Selfossi Það var mikil hátíð við Olís á Arnbergi á Selfossi í morgun þegar sjálfvirk þvottastöð fyrir bíla var opnuð formlega en um er að ræða Glans þvottastöð í eigu Olís. Innlent 12. júlí 2025 13:04