Minnstu munaði að harður árekstur yrði: „Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn“ Freyja Þórisdóttir skrifar 16. júlí 2026 22:37 Axel Gunnarsson er rútubílstjóri hjá SBA- Norðurleið en hann er þessa dagana á hringferð um landið ásamt hóp ferðamanna. Aðsend Rútubílstjóranum Axel Gunnarssyni brá að eigin sögn ekkert smá mikið í dag þegar hann var hársbreidd frá því að lenda í hörðum árekstri. Bíll úr gagnstæðri átt tók fram úr bílaröð og rétt náði að beygja aftur inn á rétta akgrein í tæka tíð svo hann keyrði ekki framan á rútuna sem Axel ók.
Axel hefur undanfarna daga keyrt þrjátíu og fjóra ferðamenn frá Spáni um landið vítt og breitt en þegar atvikið varð var ferðinni heitið frá Neskaupsstað og suður á leið. Axel segir ferðamennina hafa verið skelkaða þegar hann lagðist skyndilega á bremsuna og nærri því stöðvaði rútuna á miðjum vegi á milli Foss á Síðu og Hörgslands. Þá hafði hann tekið eftir því að hvítur fólksbíll ók á miklum hraða fram úr öðrum bílum úr gagnstæðri átt en Axel segir ökumann bílsins hafa „haldið sínu striki þó að það væri augljóst að hann myndi aldrei ná þessu“. Það hafi verið þökk sé lítilli bremsuvegalengd rútunnar og snöggra viðbragða hans sjálfs að bíllinn skall ekki framan á rútunni. Axel segir blaðamanni frá því að það hafi munað tæpum þrjátíu metrum á bílnum og rútunni þegar bílinn gat sveigt til baka á rétta akgrein. „Þessi manneskja sem var að taka fram úr sýndist fyrir mér vera í sjálfsvígshugleiðingum. Hefði ég ekki bremsað væri hann dáinn,“ segir hann. Komið nóg Það sé sífellt algengara að ökumenn taki fram úr öðrum með glæfralegum hætti og alltof oft verði alvarleg slys af nákvæmlega þessari ástæðu. Einungis vika sé frá því að hann lenti í svipuðu atviki þegar Audi-jeppi tók fram úr honum í Borgarbyggð með þeim afleiðingum að bíll úr gagnstæðri átt þurfti að negla niður. „Eigandi Audi-bílsins flýtti sér ekki inn í Borgarnes enda vorum við komnir þangað með fimm sekúndna tímabili sem aðskildi okkur,“ segir Axel en hann segist ætla að kaupa sér öryggismyndavél eftir atvikið í dag og taka allar ferðir héðan frá upp. „Þetta gengur ekki svona lengur. Nú er bara komið nóg. Hefði ég náð skráningarnúmeri bílsins hefði ég strax hringt í 112 en í staðinn vísaði ég til hans miðfingrinum og blótaði á mínu móðurmáli, sem er þýska.“
Umferð Umferðaröryggi Slysavarnir Bílar Skaftárhreppur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Ekki í fyrsta sinn sem Trump stingur upp á Ísland yrði hluti af Bandaríkjunum „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Sjá meira