Innlent

Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Leitað er nú kaupandans.
Leitað er nú kaupandans. Vísir/Anton Brink

Í miklu annríki í dag í Nytjamarkaðinum Selfossi var reiðhjól viðskiptavinar selt öðrum viðskiptavini fyrir slysni. Nytjamarkaðurinn leitar nú logandi ljósi að kaupandanum svo hægt sé að leysa úr málinu.

Nytjamarkaðurinn lýsti eftir kaupandanum á samfélagsmiðlum í dag. Um rautt reiðhjól hafi verið að ræða sem selt hafi verið fyrir slysni enda nóg af öðrum reiðhjólum til sölu. Þetta tiltekna hjól var hins vegar fararskjóti annars viðskiptavinar.

John Rúnar Cardel vaktstjóri seldi hjólið. Hann segist ekki hafa áttað sig á ruglingnum, það hafi þurft að afgreiða marga og hann einfaldlega gert ráð fyrir að hjóli væri eitt þeirra sem Nytjamarkaðurinn hefði sannarlega til sölu.

Hann segist endilega vilja komast í samband við kaupanda hjólsins rauða svo hægt sé að finna málinu farsælan enda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×