Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Lovísa Arnardóttir skrifar 9. október 2026 06:46 Forstjórinn segir engan pening til, sveitarstjórinn segir það ekki þeirra hlutverk að reka innilaugina og íbúar eru í áfalli. Samsett Vegna aðhaldskröfu hefur Heilbrigðisstofnun Norðurlands ekki getað opnað eftir sumarlokun endurhæfingarlaug sem staðsett er á stofnuninni. Um er að ræða einu innilaugina á Norðurlandi vestra. Eldri borgarar, ungir foreldrar, barnshafandi konur og fólk með gigt hefur nýtt sér laugina. Íbúar segja lokunina mikið áfall og vilja að stjórnvöld bregðist við.
Jón Helgi Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Norðurlands, segir miður að ekki sé hægt að opna endurhæfingarsundlaug á Sauðárkróki eftir sumarlokun. Hann segir ekki fjármuni til innan stofnunarinnar fyrir rekstrinum. Það sé krafa um verulegt aðhald hjá stjórnvöldum. Sundlaugar í Skagafirði. Innilaugin er merkt rauðu. Fjöldi íbúa hefur gagnrýnt lokunina og vísað til þess á samfélagsmiðlum og í ábendingum til fréttastofu að lokunin sé áfall og hafi mikil áhrif á stóran hóp fólks sem hafi nýtt sér aðstöðuna til endurhæfingar. Í ábendingum hefur komið fram að fyrir hafi verið bið eftir þjónustu sjúkraþjálfara og óttast margir að biðin verði enn lengri þegar aðstaðan er ekki lengur til staðar. Hreyfifærni fólks muni verða lakari og það muni valda enn meira álagi á heilsugæsluna og heilbrigðisþjónustuna almennt. Jón Helgi segir ástæðu lokunarinnar vera þá að Heilbrigðisstofnun Norðurlands, eins og aðrar heilbrigðisstofnanir um land allt, sé rekin með umtalsverðum halla. „Sem skiptir hundruðum milljóna og horfandi á fjárlög næsta árs er nokkuð ljóst að það eru ekki fjármunir til að reka alla þá starfsemi sem heilbrigðisstofnunin hefur með höndum og þannig er verkefnið í rauninni að leggja það af sem er ekki alveg bráðnauðsynlegt út frá hagsmunum heilbrigðisstofnunarinnar.“ Jón Helgi segir lítið hægt að gera þegar aðhaldskrafan er svo rík. Aðsend Ekki almenn heilbrigðisþjónusta Það til dæmis sé rekstur á sundlaugum almennt í heilbrigðisþjónustu og slík þjónusta hafi verið lögð af víða vegna þess að ekki sé um að ræða hluta af grunnþjónustu heilbrigðisstofnana. Hann segir mikinn skilning innan stofnunarinnar á því að fólki þyki lokunin erfið og áfall. Það hafi margir nýtt sér þjónustuna og þetta sé gott tól í endurhæfingu. „ En ef það eru ekki fjármunir til að greiða fyrir reksturinn þá er mjög torsótt að halda honum áfram,“ segir hann og að kostnaður sé bæði falinn í starfsmannakostnaði og svo sé rekstrarkostnaður, heitt vatn, auk þess sem viðhaldskostnaður sé talsverður á svona mannvirki. „Okkur þykir þetta ekkert sérstaklega spennandi ákvörðun og við erum að loka þessu fram að áramótum, við viljum sjá hvað fjárlögin bera í skauti sér endanlega, en eins og málin horfa þá er mjög þungt fyrir höndum hjá heilbrigðisstofnunum að koma rekstrinum inn í fjárlög.“ Hann segir að gripið hafi verið til fleiri aðhaldsaðgerða og fleiri séu fram undan og það megi búast við einhverjum uppsögnum. „Grunnvandi heilbrigðisstofnana er að þær eru allar reknar með halla. Það hafa verið miklar launabreytingar síðustu fjögur ár sem hafa ekki verið bættar og upp hefur safnast rekstrarhalli sem er ómögulegt að einhverju leyti að taka á. Horfandi á fjárlög komandi árs þá er óhjákvæmilegt að gera einhverjar breytingar. Þetta er ein birtingarmynd þess.“ Sundlaugin er rúmgóð. Aðsend Hann segist hafa fundað með sveitarfélaginu sem harmaði lokunina. „Við höfum skilning á þessari óánægju, en svona starfsemi verður ekki rekin án fjármuna.“ Nauðsynleg hreyfing í endurhæfingu Fanney Ísfold Karlsdóttir, yfirsjúkraþjálfari á HSN, segir lokunina vera vegna skorts á fjármagni og að stjórnvöld setji almennt ekki nægilegt fjármagn í rekstur endurhæfingar. „Þrátt fyrir að samkvæmt íslenskum rannsóknum og stefnumótun á sviði heilsuhagfræði komi fram að hver króna sem fjárfest er í endurhæfingu skili sér um áttfalt til baka til samfélagsins.“ Hún segir æfingar í vatni eitt af verkfærunum sem nauðsynleg séu í endurhæfingu vegna ýmissa sjúkdóma, einkum frá stoðkerfi, en einnig vegna færniskerðingar af öðrum orsökum. Hreyfing í vatni besti kosturinn „Kostir við hreyfingu í vatni eru einkum þeir að með því að draga úr áhrifum þyngdaraflsins minnkar álag á liðamót og þar með verkir. Hreyfing í vatni er því oft besti kosturinn fyrir fólk með stoðkerfisverki.“ Laugin er eina innilaugin í öllu sveitarfélaginu. Vísir/Egill Hún segir stærstan hluta skjólstæðinga HSN sem hafi nýtt endurhæfingarlaugina vera einstaklinga með stoðkerfisverki, eldra fólk, ófrískar konur, fatlaða einstaklinga og foreldra með ung börn. „Það er engin sambærileg þjálfun í boði fyrir þessa einstaklinga, vissulega önnur þjálfun, engin önnur innilaug á Norðurlandi vestra og líklegt að þessir einstaklingar leiti því í auknum mæli á heilsugæslu, þurfi meiri lyf og læknisþjónustu, með auknum kostnaði fyrir ríkið og skjólstæðinga,“ segir Fanney að lokum. Stór hópur miður sín Ingunn Ásdís Sigurðardóttir, íbúi á Sauðárkróki og formaður Félags eldri borgara í Skagafirði, hefur verið í vatnsleikfimi í lauginni og finnst afar miður að nú eigi að loka henni. Hún segir fólk sem glími við stoðkerfisvanda og/eða aðra langvinna glímu við að halda líkamlegri heilsu hafa nýtt vatnsleikfimitíma undir leiðsögn sjúkraþjálfara í hverri viku, líklega um 50 til 60 manns. „Sá hópur er allur miður sín. Þetta er fólk sem margt væri annars á bekknum hjá sjúkraþjálfurum. Þetta hefur létt gríðarlega mikið á því og í allri umræðu um nauðsyn þess að fólk hreyfi sig og sinni heilsu sinni sjálft þá hefur þessi aðstaða verið algjörlega ómetanleg.“ Ingunn Ásdís er afar sorgmædd vegna lokunarinnar og vonar stjórnvöld stígi inn. Aðsend Ingunn segir fjölda eldri borgara hafa nýtt sér aðstöðuna, bæði undir stjórn sjúkraþjálfara og í opnum tímum. Það hafi verið námskeið fyrir þau sem eru með gigt en aðrir hafi getað gengið inn af götunni til að gera æfingar og fara í sund. „Það eru mjög margir í áfalli yfir þessu.“ Hún segir sundlaugina í bænum útilaug og fólk með gigt þoli til dæmis illa kulda og veigri sér við því að vera þar yfir vetrartímann. Sundlaugin sé ljómandi góð en dugi ekki í þessa kennslu. Ekkert sem kemur í staðinn Þó svo að endurhæfingarlaugin á HSN sé ekki stór hafi verið hægt að taka á móti allt að tuttugu manna hópum og sjúkraþjálfarar hafi útbúið leiðbeiningar með æfingum sem henta og hvatt fólk til að gera þær sjálft í lauginni. „Það er ekkert sem kemur í staðinn og þarna hafa verið gigtarhópar, barnshafandi konur, ungbarnasund og opnir tímar. Ég veit af fólki sem kemur á dagvist aldraðra og hefur líka getað farið í laugina sér til heilsubótar, með aðstoð frá starfsfólkinu þar. Þau eru líka miður sín. Lokun laugarinnar er gríðarlegt áfall fyrir þann stóra hóp sem hefur nýtt hana,“ segir hún. Nú er kominn upp undirskriftarlisti til að mótmæla lokuninni. „Það er verið að reyna að vekja athygli sem flestra á þessu.“ Ingunn hefur skilning á því að ekki sé um að ræða hefðbundna þjónustu heilbrigðisstofnana en að sundlaugin sé til staðar og það sé vegna hvatningar og forgöngu sjúkraþjálfara sem hafi vitað hversu miklu máli svona aðstaða getur skipt. „Í stað þess að allt fólkið þurfi að koma á bekkinn til þeirra.“ Bæjaryfirvöld uggandi Magnús Barðdal, oddviti Sjálfstæðisflokksins á Sauðárkróki og sveitarstjóri, segir bæjaryfirvöld uggandi yfir lokuninni. „Við áttum ekki von á því að þeir væru að loka sundlauginni og að þeir væru ekki með lausn á því hvernig ætti að leysa framhaldið. Það er blaut tuska í andlitið á íbúum að þegar það eru svona flottir innviðir klárir og það er eingöngu verið að loka því vegna þess að það er ekki að koma nægt fjármagn frá ríkinu.“ Magnús segir aðstöðuna ekki bara hafa verið í notkun af starfsfólki HSN heldur hafi einnig staðið öðrum hópum til boða að leigja rýmið. Á hverjum degi hafi um 80 til 90 manns nýtt sér laugina, flesta daga vikunnar. Magnús segir byggðaráð ætla að bóka um lokunina og að þau vilji ræða málið við ráðherra. Aðsend Hann segist ekki vera með nákvæm gögn um kostnað við rekstur laugarinnar en telji að fjármunirnir séu ekki slíkir að ekki sé hægt að grípa inn í og koma í veg fyrir áframhaldandi lokun. Hann segist bjartsýnn á að stjórnvöld geti stigið inn og aðstoðað HSN við að tryggja áframhaldandi aðgengi að lauginni. Ekki hlutverk sveitarfélagsins Spurður hvort sveitarfélagið geti gripið inn í segir Magnús það ekki endilega þeirra hlutverk. Þetta sé hluti af þeirri þjónustu sem HSN hafi boðið upp á og hann telur það ekki haldbær rök að aðrar sambærilegar stofnanir bjóði ekki upp á slíka þjónustu. „Það er annað ef við værum að biðja um að það yrði byggð ný laug, ég myndi skilja slík rök en þessi laug er tilbúin og í góðu ástandi. Þetta er óverulegur kostnaður við reksturinn miðað við gæðin sem þessu fylgja fyrir alla þessa hópa.“ Hann segir hættu á að álag aukist annars staðar í heilbrigðisþjónustu við lokunina. „Ef fólk missir aðgengi að þessari þjónustu þá er það viðbúið að það muni auka álag í heilbrigðisþjónustu á öðrum sviðum. Fyrir marga notendur er þetta eina líkamsræktin og hreyfingin sem það hefur og það mun þá einfaldlega þyngja þjónustu heilbrigðisstofnana að þurfa að þjónusta þetta fólk með öðrum hætti.“ Vilja ræða við ráðherra Magnús segir bæjaryfirvöld ætla að þrýsta á ráðherra og séu að undirbúa sig fyrir það. „Við munum beita okkur af fullum þunga í þessu máli. Þetta skiptir okkur gríðarlega miklu máli,“ segir hann og að hann eigi von á því að bókað verði um málið í byggðaráði og svo muni þau óska eftir fundi með ráðherra. „Þetta er stórt byggðamál líka, ólíkt öðrum plássum þar sem er aðgengi að fjölbreyttum sundlaugum og innilaugum. Það er ekki hjá okkur, þetta er eina innilaugin sem getur veitt þessa þjónustu, sem er svo fjölbreytt.“
Skagafjörður Fjárlagafrumvarp 2027 Heilsa Heilbrigðismál Geðheilbrigði Börn og uppeldi Sund Eldri borgarar Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Innlent Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Innlent Maðurinn skotinn af fulltrúum ICE í New York Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Erlent Máttu tæma lónið Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Fleiri fréttir Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Bein útsending: Landbúnaður í heimi breytinga Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Sjá meira