Innlent

Ekki rétt sem Halla segir

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bjarni segir SA búið að semja við stóran hluta vinnumarkaðrins og mörg fyrirtæki hafi boðað verðfrystingu til áramóta.
Bjarni segir SA búið að semja við stóran hluta vinnumarkaðrins og mörg fyrirtæki hafi boðað verðfrystingu til áramóta. Vísir/Anton Brink

Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16. 

Bjarni Benediktsson ræddi við fjölmiðla áður en fundurinn hófst. Hann sagði það verða að koma í ljós hvað gerist á fundinum. Eins og fram hefur komið hafa stéttarfélögin til klukkan 16 til að segja kjarasamningunum upp vegna forsendubrests.

„Það er ekki rétt, það hafa allir séð það,“ sagði Bjarni Benediktsson spurður um fullyrðingar Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, um að ekkert mótspil hafi komið frá SA til að reyna að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði slitið.

Mörg fyrirtæki hafi tilkynnt um verðfrystingu fram að áramótum til dæmis. Þá hafi þau náð niðurstöðu við stóran hluta vinnumarkaðar um að stytta samninginn og í samtali við VR.

„Þó að menn nái ekki saman þýðir það ekki að menn hafi ekki spilað út, það þýðir bara að menn hafa ekki náð saman,“ sagði Bjarni.

Eitt félag fái ekki meira en hin

Hann sagði það almennt ekki ganga þannig fyrir sig að eitt félag, eins og VR, gæti fengið eitthvað meira en önnur félög hefðu samið um.

Spurður hvort það gæti eitthvað nýtt komið fram á þessum fundi sagði Bjarni það góða spurningu en það kæmi væntanlega fram á fundinum.

Fylgstu með nýjustu tíðindum í vaktinni að neðan. 


Tengdar fréttir

Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp

Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út klukkan 16 í dag. VR hyggst að óbreyttu slíta kjarasamningum en fundahöld standa þó yfir. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt og beinni útsendingu eftir því sem tilefni er til.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×