Ekki rétt sem Halla segir Lovísa Arnardóttir skrifar 8. október 2026 14:01 Bjarni segir SA búið að semja við stóran hluta vinnumarkaðrins og mörg fyrirtæki hafi boðað verðfrystingu til áramóta. Vísir/Anton Brink Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16.
Bjarni Benediktsson ræddi við fjölmiðla áður en fundurinn hófst. Hann sagði það verða að koma í ljós hvað gerist á fundinum. Eins og fram hefur komið hafa stéttarfélögin til klukkan 16 til að segja kjarasamningunum upp vegna forsendubrests. „Það er ekki rétt, það hafa allir séð það,“ sagði Bjarni Benediktsson spurður um fullyrðingar Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, um að ekkert mótspil hafi komið frá SA til að reyna að koma í veg fyrir að kjarasamningum verði slitið. Mörg fyrirtæki hafi tilkynnt um verðfrystingu fram að áramótum til dæmis. Þá hafi þau náð niðurstöðu við stóran hluta vinnumarkaðar um að stytta samninginn og í samtali við VR. „Þó að menn nái ekki saman þýðir það ekki að menn hafi ekki spilað út, það þýðir bara að menn hafa ekki náð saman,“ sagði Bjarni. Eitt félag fái ekki meira en hin Hann sagði það almennt ekki ganga þannig fyrir sig að eitt félag, eins og VR, gæti fengið eitthvað meira en önnur félög hefðu samið um. Spurður hvort það gæti eitthvað nýtt komið fram á þessum fundi sagði Bjarni það góða spurningu en það kæmi væntanlega fram á fundinum. Fylgstu með nýjustu tíðindum í vaktinni að neðan.
Kjaramál Tengdar fréttir Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út klukkan 16 í dag. VR hyggst að óbreyttu slíta kjarasamningum en fundahöld standa þó yfir. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt og beinni útsendingu eftir því sem tilefni er til. 8. október 2026 10:54 Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira
Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Frestur til að segja upp kjarasamningum vegna forsendubrests rennur út klukkan 16 í dag. VR hyggst að óbreyttu slíta kjarasamningum en fundahöld standa þó yfir. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt og beinni útsendingu eftir því sem tilefni er til. 8. október 2026 10:54