Innlent

Þau vilja stýra Fjöl­miðla­nefnd

Árni Sæberg skrifar
Þórarinn Hjartarson, Snærós Sindradóttir, Ólöf Skaftadóttir og Börkur Gunnarsson.
Þórarinn Hjartarson, Snærós Sindradóttir, Ólöf Skaftadóttir og Börkur Gunnarsson. Vísir

Fimmtán hafa sótt um starf framkvæmdastjóra Fjölmiðlanefndar og einn dregið umsókn sína til baka. Meðal umsækjenda eru fjórir hlaðvarpsstjórnendur sem bölsótast hafa opinberlega út í nefndina og kröfur hennar um skráningu hlaðvarpa sem fjölmiðla. Ætla má að umsóknir þeirra séu lagðar fram í hálfkæringi.

Elfa Ýr Gylfadóttir, sem setið hefur sem framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar frá stofnun hennar árið 2011, tilkynnti í ágúst að hún myndi ekki sækjast eftir áframhaldandi skipun eftir lok núverandi skipunartíma hennar, sem rennur sitt skeið nú í haust.

Því var starf framkvæmdastjórans auglýst og umsóknarfrestur rann út þann 4. október síðastliðinn. Vísir fór þess á leit við Einar Huga Bjarnason, formann Fjölmiðlanefndar, að fá lista umsækjenda afhentan. Hann er eftirfarandi:

  • Birkir Karl Sigurðsson, sérfræðingur í viðskiptaþróun og annar þáttastjórnenda og stjórnarformaður Chess after dark
  • Börkur Gunnarsson, verkefnastjóri
  • Einar Karl Gunnarsson, viðskiptalögfræðingur
  • Hrönn Indriðadóttir, fjölmiðla- og íslenskufræðingur
  • Leifur Þorsteinsson, sérfræðingur [og hinn helmingur Chess after dark]
  • Matthías Ólafsson, framkvæmdastjóri
  • Ólafur Eyjólfsson, sviðsstjóri
  • Ólöf Skaftadóttir, ráðgjafi, hlaðvarpsstjórnandi og fyrrverandi fjölmiðlamaður
  • Páll Rafnar Þorsteinsson, sérfræðingur
  • Salvör S. Jónsdóttir, viðskiptalögfræðingur
  • Sigurður Sigurðsson, sérfræðingur
  • Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri
  • Vera Snæbjörnsdóttir, framkvæmdastjóri og lögfræðingur
  • Þóra Jónsdóttir, lögfræðingur hjá Fjölmiðlanefnd
  • Þórarinn Hjartarson, hlaðvarpsstjórnandi

Hlaðvarpsstjórnendurnir fjórir, Birkir Karl, Leifur, Ólöf og Þórarinn, hafa verið verulega gagnrýnin á störf Fjölmiðlanefndar undanfarin misseri og voru til að mynda meðal fjölda hlaðvarpsstjórnenda sem rituðu grein á Vísi í dag, þar sem þeir mótmæla því að Fjölmiðlanefnd krefji þá um skráningu sem fjölmiðlar.

Á meðal umsækjenda eru einnig Börkur Gunnarsson, fjölmiðlamaður til fjölda ára og fyrrverandi rektor kvikmyndaskóla Íslands, Páll Rafnar Þorsteinsson, fyrrverandi aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur í embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Snærós Sindradóttir, framkvæmdastjóri Evrópuhreyfingarinnar.

Að sögn Einars Huga er stefnt að því að ráða í starfið fyrir 1. nóvember næstkomandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×