Íran
1 2 3 4 5 6 … 23 ›
Trump gefur lítið fyrir Pentagon skýrsluna og segir árásina hafa heppnast fullkomlega Donald Trump Bandaríkjaforseti hafnar algjörlega þeim fullyrðingum að ekki hafi tekist að granda kjarnorkumannvirkjum Írana í herförinni síðustu helgi. Erlent 25.6.2025 06:54
Átök í Miðausturlöndum: „Erfitt að meta hvað er í raun og veru í gangi“ Stjórnvöld í Íran og Ísrael hafa sakað hvort annað um brot á vopnahléi í dag en mikil óvissa ríkir um hvort vopnahlé muni halda. Öllum yfirlýsingum stjórnvalda í Íran, Ísrael og í Bandaríkjunum ber að taka með miklum fyrirvara að sögn prófessors. Erlent 24.6.2025 21:16
Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Árásir Bandaríkjahers á þrjú kjarnorkumannvirki í Íran eyðilögðu ekki lykilinnviði kjarnorkuáætlunar landsins og seinkaði líklega áætlunum Írana aðeins um nokkra mánuði, samkvæmt frummati bandarísku leyniþjónustunnar. Ráðamenn í Hvíta húsinu segjast ósammála matinu. Erlent 24.6.2025 19:52
Íranir neita að hafa skotið eldflaugum Ísraelsk stjórnvöld segja Írana hafa skotið eldflaugum í átt að Ísrael og boða harðar gagnárásir. Íranir neita því að hafa skotið eldflaugum. Allt útlit er fyrir að vopnahlé sem bæði ríki virtust hafa samþykkt í nótt sé þegar farið út um þúfur. Erlent 24.6.2025 07:45
Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Ísraelar hafa samþykkt vopnahlé sem Bandaríkjaforseti tilkynnti um á milli þeirra og Írana. Eldflaugum var í nótt skotið á borgina Bersheeba í Ísrael þar sem fjórir létu lífið í íbúðablokk sem varð fyrir sprengjum. Innlent 24.6.2025 06:23
Segir vopnahlé í höfn Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að Ísrael og Íran hafi náð samkomulagi um vopnahlé. Hann segir að ef fram fer sem horfir muni vopnahléð binda endi á stríðið sem geisað hefur síðustu tólf daga. Erlent 23.6.2025 22:33
Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Íranar létu yfirvöld í Bandaríkjunum og Katar vita af sér áður en þeir létu til skarar skríða og skutu eldflaugum í átt að bandarísksri herstöð í Katar í dag. Donald Trump Bandaríkjaforseti þakkar þeim fyrir og segir að engan hafi sakað í árásinni. Erlent 23.6.2025 22:12
Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Íranski byltingarvörðurinn skaut fjölda eldflauga í átt að bandarískri herstöð í Katar síðdegis í dag. Sprengingar ómuðu um Dóha, höfuðborg Katar, meðan árásirnar stóðu yfir. Katarska utanríkisráðuneytið segir loftvarnir landsins hafa skotið írönsku eldflaugarnar niður áður en þær gátu valdið tjóni. Erlent 23.6.2025 16:54
Handtóku Evrópubúa sakaðan um njósnir fyrir Ísrael Ísraelsher heldur árásum á Íran áfram og hefur ráðlagt íbúum Tehran, höfuðborgar Íran, að rýma svæði nærri hernaðarinnviðum í borginni. Á meðan greina írönsk yfirvöld frá því að evrópskur ríkisborgari hafi verið handtekinn grunaður um njósnir fyrir ísraelska ríkið. Erlent 23.6.2025 15:24
Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Sprengjum var aftur varpað á neðanjarðarauðgunarstöð í Fordó í Íran í dag, að sögn íranska ríkisútvarpsins. Stöðin er ein þriggja sem Bandaríkjamenn réðust á með risasprengjum sem eru hannaðar gegn neðanjarðarbyrgjum. Erlent 23.6.2025 09:48
Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir líklegustu sviðsmyndina í heimsmálunum að Íranar bregðist við sprengjuárás Bandaríkjamanna með árás og takmörkun á olíuflutningum. Erlingur segir sviðsmyndina neikvæða og það sé váleg þróun að ríki eins og Bandaríkin, Rússland og Ísrael telji sig geta beitt hervaldi án þess að þurfa að færa nokkur rök fyrir því. Innlent 23.6.2025 08:59
Ísraelar héldu árásum sínum áfram í nótt Ísraelsher hefur haldið árásum sínum á Íran áfram í alla nótt og um tuttugu orrustuþotur eru sagðar hafa gert árásir í vesturhluta landsins og ráðist að herstöðvum og skotpöllum. Erlent 23.6.2025 06:52
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Donald Trump Bandaríkjanna hefur brugðist ókvæða við gagnrýni flokksbróður síns og birt langan pistil á samfélagsmiðli sínum þar sem hann sparar ekki stóru orðin. Hann kallar hann aumingja, latan, athyglissjúkan og afkastalítinn meðal annarra níðyrða. Erlent 22.6.2025 21:24
Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Utanríkisráðherra segir lykilatriði að halda uppi þrýstingi á klerkastjórnina í Íran að hún hörfi frá því að auðga úran til framleiðslu kjarnavopna. Hún segir hættu steðja að Norðurlöndum og Vestur-Evrópu komi Íranar sér upp slíku vopni en undirstrikar mikilvægi þess að gleyma ekki Úkraínu í látunum. Innlent 22.6.2025 20:24
Tíu Íslendingar í Íran og fjórir í Ísrael Utanríkisráðuneytinu er kunnugt um tíu íslenska ríkisborgara í Íran og fjóra í Ísrael. Báðum hópum hafa verið sendar upplýsingar um opin landamæri og venjuleg farþegaflug frá bæði Jórdaníu og Egyptalandi. Erlent 22.6.2025 15:13
Aðdragandinn: Hótanir og árásir á hótanir og árásir ofan Átökin í Mið-Austurlöndum stigmögnuðust gríðarlega í gærkvöldi þegar Bandaríkjaher hóf loftárásir á Íran. Níu dagar eru síðan Ísraelar hófu að skjóta á Íran en átökin eiga sér lengri aðdraganda. Erlent 22.6.2025 14:45
Embættis- og ráðamenn tjá sig um árásina Ýmsir embættis- og ráðamenn hafa tjáð sig í dag um árásir Bandaríkjanna á Íran. Flestir tóku í sama streng og sögðu að Íranir ættu ekki að eiga neins konar kjarnorkuvopn. Erlent 22.6.2025 14:24
„Við lifum ekki á friðartímum“ Fyrrverandi utanríkisráðherra segist ekki lítast á nýjustu vendingar eftir árásir Bandaríkjamanna á Íran. Hún kallar eftir enn sterkara sambandi við bandamenn Íslands, þar á meðal Bandaríkin. Innlent 22.6.2025 13:27
Vaktin: Bandaríkin gera árásir á Íran Bandaríkjaher gerði árásir á þrjár kjarnorkurannsóknarstöðvar Íran í gærkvöldi. Rúm vika er síðan Ísraelsher hóf umfangsmiklar loftárásir á Íran og síðan hafa herir landanna beggja hafa gert loftárásir á víxl. Erlent 22.6.2025 09:26
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríski herinn gerði árásir á þrjár kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran í gærkvöldi. Forseti Bandaríkjanna sagði á blaðamannafundi að rannsóknarstöðvarnar hafi gereyðilagst í árásunum en íranskir embættismenn segja að svo sé ekki. Þeir hafa svarað fyrir sig með árás á Ísrael. Ákvörðunin hefur vakið upp mismunandi viðbrögð meðal embættismanna víða um heim. Erlent 22.6.2025 08:14
Bandaríkjamenn gera loftárásir á Írani Bandaríkjamenn hafa gert loftárásir á þrjár kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Þeirra á meðal neðanjarðarmiðstöðina til í Fordó til auðgunar úrans sem er grafin áttatíu metrum undir fjalli. Erlent 22.6.2025 00:01
Ísraelar bíði ekki eftir grænu ljósi Trump Ísraelskri embættismenn hafa tjáð Bandaríkjastjórn að þeir hyggist ekki bíða í tvær vikur til að gefa Írönum færi á að komast að samkomulagi við Bandaríkjamenn. Spennan hefur aukist hægt og þétt undanfarna daga en Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki gefið út hvort hann geri beinar árásir á Íran. Erlent 21.6.2025 21:03
Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Níunda sólarhringinn í röð halda loftárásir Írana og Ísraela á víxl áfram. Viðvörunarflautur ómuðu um miðhluta Ísrael í nótt þegar íranski herinn hóf að skjóta eldflaugum á landið. Ísraelsher segist hafa skotið niður fjölda eldflauga og svarað í sömu mynt. Erlent 21.6.2025 08:30
Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Utanríkisráðherra Ísraels segir að árásir Ísraelsmanna á kjarnorku- og hernaðarinnviði í Íran hafi tafið framleiðslu klerkastjórnarinnar í Íran á kjarnorkuvopnum í að minnsta kosti tvö ár. Erlent 20.6.2025 23:48
Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Íranir og Ísraelar hafa haldið áfram loftárásum á víxl í dag. Björgunarsveitir í Ísrael segja einn látinn og tugi særða eftir árás Írana á borgina Haifa síðdegis í dag. Á meðan funduðu utanríkisráðherrar Bretlands, Frakklands og Þýskalands með utanríkisráðherra Íran í Genf í von um að finna diplómatíska lausn við stríði Ísrael og Íran. Erlent 20.6.2025 17:27
Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, fundar í dag í Genf með utanríkisráðherrum Bretlands, Frakklands og Þýskalands. Markmið fundarinst er að reyna að finna diplómatíska lausn við stríði Ísrael og Íran. Donald Trump hefur tilkynnt að hann ætli að gefa sér tvær vikur til að ákveða hvort hann blandi sér í stríðið. Erlent 20.6.2025 06:44
Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, er þeirrar skoðunar að þörf sé á því að gera kjarnorkurannsóknarstöð Írana í Fordo óvirka. Það þurfi til að koma í veg fyrir að klerkastjórnin í Íran komi sér upp kjarnorkuvopnum. Erlent 19.6.2025 16:28
Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Israel Katz, varnarmálaráðherra Ísrael, segir að Ali Khamenei, æðstiklerkur Íran, sé „nútíma Hitler“ og nauðsynlegt sé að bana honum. Þetta sé orðið eitt helsta markmið Ísraela í Íran. Erlent 19.6.2025 11:51
Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Fjöldi er særður á spítala í suðurhluta Ísrael eftir að íranskri eldflaug var skotið á spítalann snemma í morgun. Í erlendum miðlum segir að haft sé eftir stjórnendum að miklar skemmdir séu á spítalanum og að myndefni frá Ísrael sýni glugga springa og svartan reyk leggja frá húsinu við sprenginguna. Erlent 19.6.2025 06:50
Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagðist ekki hafa tekið ákvörðun um það hvort hann ætlaði að gera árásir á kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran. Hann sagðist ekki vilja í stríð við Íran en sagði að þegar valið stæði milli þess að berjast eða leyfa klerkastjórninni í Íran að eignast kjarnorkuvopn yrði maður „að gera það sem maður þarf að gera“. Erlent 18.6.2025 22:01