Réðust á fleiri olíuflutningaskip Samúel Karl Ólason skrifar 8. september 2026 21:43 EA-18G Growler herþotu flogið af flugmóðurskipinu USS George Washington á dögunum. Sjóher Bandaríkjanna Bandaríkjamenn gerðu í dag árásir á fimm olíuflutningaskip Írana til viðbótar, eftir að Íranir skutu eldflaugum í átt að bandarísku herskipi. Íranir svöruðu með umfangsmiklum eldflaugaárásum.
Fréttin hefur verið uppfærð. Ríkismiðlar Íran hafa birt viðvarnir frá leiðtogum Byltingarvarðar Íran til áhafna annarra olíuflutningaskipa á svæðinu, um að þau gætu orðið skotmörk Írana. Sérstaklega var vísað til skipa undan ströndum Kúveit og Barein, sem Íranir segja hýsa bandarískar hersveitir og aðstoða við árásir á Íran. Svipað atvik átti sér stað um helgina, þegar Bandaríkjamenn réðust á þrjú olíuflutningaskip, eftir að Íranir skutu skotflaugum að bandarískum. Engar eldflaugar hafa hæft bandarísk herskip, samkvæmt AP fréttaveitunni. Yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum hefur gefið út yfirlýsingu um að fimm olíuflutningaskip hafi verið „eyðilögð“. Áður hafi áhöfnum skipanna verið sagt að flýja frá borði. Á tíunda tímanum hafa borist fregnir frá Íran af því að fjölda eldflauga hafi verið skotið á loft þaðan. Loftvarnarsírenur hafa ómað í Jórdaníu. Myndefni þaðan hefur sýnt loftvarnir skjóta niður eldflaugar en einhverjar virðast hafa komist gegnum varnirnar. Íranir segja skotflaugunum hafa verið beint að herstöð sem hýsir bandaríska hermenn og herþotur. Einhverjar eldflaugar virðast hafa borið klasasprengjur. Iranian missiles are targeting U.S. bases in Jordan. pic.twitter.com/x4NwvCt8Lg— Clash Report (@clashreport) September 8, 2026 Wall Street Journal segir að árásirnar á herskipin veki áhyggjur hjá Bandaríkjamönnum. Þær sýni fram á aukna getu Írana og að klerkastjórnin gæti verið að fá aðstoð frá Rússum og Kínverjum. Embættismenn í Íran segjast vera að nota nýjar og betri eldflaugar til að gera árásir á bandarísk herskip. Íranir þurfa þó upplýsingar um hvar herskipin eru og þær gætu verið að berast frá Rússum eða Kínverjum, samkvæmt heimildarmönnum WSJ. Additional footage of tonight's massive Iranian ballistic missile attack on Muwaffaq Salti Airbase in Jordan via @kimhvik2. More than 60 PATRIOT interceptors were fired. Multiple Iranian cluster-munition MRBMs can be seen incoming. pic.twitter.com/XNMtW1s94h— OSINTtechnical (@Osinttechnical) September 8, 2026 Íranski byltingarvörðurinn segir að skotflaugum hafi verið skotið að Al-Azraq herstöðinni í Jórdaníu, sem sögð er hýsa bandarískar hersþotur. Í yfirlýsingu sem íranskir miðlar vísa í segir að árásin hafi verið mjög umfangsmikil og er því einnig haldið fram að hún hafi valdið miklum skaða. Byltingarvörðurinn segir einnig að ráðist hafi verið á fleiri bandarísk herskip og að tveir tundurspillar hafi orðið fyrir miklum skemmdum. Íranir hafa oft áður haldið slíku fram, án þess að það hafi reynst rétt. Til í frekari átök Árásir Írana benda þykja einnig benda til þess að leiðtogar ríkisins séu tilbúnir í frekari átök við Bandaríkjamenn. Stríð Bandaríkjanna gegn Íran hefur um nokkurt skeið í rauninni snúist um það hver geti þolað átökin lengur. Bandaríkjamenn hafa reynt að þvinga klerkastjórnina til uppgjafar með herkví og með því að reyna að einangra Íran frá öðrum ríkjum. Sjá einnig: Getur „D-dagur“ Trumps gegn Íran skilað árangri? Stríðið er þó verulega óvinsælt í Bandaríkjunum, eins og víðast hvar annars staðar, og klerkastjórnin virðist hafa séð tækifæri á því að koma höggi á Trump í þingkosningunum í nóvember með því að nota takmarkanir á siglingum um Hormússund til að hækka olíuverð um heiminn allan. Staða klerkastjórnarinnar hefur þó versnað töluvert, þar olíusala ríkisins er lítil sem engin. Á sama tíma hefur flæði olíuafurða gegnum Hormússund og um aðrar leiðir aukist.
Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Jórdanía Hernaður Skipaflutningar Bensín og olía Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sjá meira