Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran
1 2 3 4 5 6 … 8 ›
Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Leó fjórtándi páfi segir heiminn liggja undir skemmdum vegna örfárra harðstjóra sem eyði milljörðum í stríð. Páfinn er þar talinn skjóta föstum skotum að Donald Trump Bandaríkjaforseta en þeir hafa átt í opinberum deilum undanfarna daga. Erlent 16.4.2026 15:21
Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Bandaríkin munu halda uppi herkví við Hormússund eins lengi og þörf krefur að sögn Pete Hegseth varnarmálaráðherra landsins. Hann segir Bandaríkin nú undirbúa sig undir möguleikann á frekari átökum, Íranir hafi val um að ljúka átökum með því að velja auðveldu leiðina ellegar verði þeim gert að fara erfiðu leiðina. Hann hótaði árásum á orkuinnviði landsins. Erlent 16.4.2026 14:53
Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Viðskiptagreining Landsvirkjunar fundar í dag, fimmtudaginn 16. apríl, klukkan 11:00. Farið verður í saumana á stöðu orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum og rakið hver áhrifin eru í Evrópu. Beina útsendingu frá fundinum má finna hér á Vísi. Viðskipti innlent 16.4.2026 10:33
Infantino fullviss um að Íran muni spila á HM Þó stríð geysi enn milli Írans og Bandaríkjanna er forseti FIFA fullviss um að Íran muni spila á HM í Bandaríkjunum í sumar. Fótbolti 16.4.2026 10:00
Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir leiðtoga Ísrael og Líbanon munu ræða saman í dag um mögulegt vopnahlé. Frá þessu greindi hann á Truth Social en nefndi leiðtogana ekki á nafn. Áður höfðu fjölmiðlar greint frá því að Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael, sætti þrýstingu af hálfu Bandaríkjanna um að ganga að samningaborðinu. Erlent 16.4.2026 06:55
Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í gær að viðræður við Írani myndu mögulega hefjast á ný á næstu dögum. Erlent 15.4.2026 06:44
Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Forsvarsmenn Hezbollah segjast ekki munu beygja sig undir mögulegt samkomulag milli stjórnvalda í Líbanon og Ísrael. Sendiherrar ríkjanna munu funda í Washington í dag. Naim Kassem, leiðtogi Hezbollah, hefur hvatt ráðamenn í Líbanon til að ganga ekki til viðræðna við Ísrael. Erlent 14.4.2026 06:34
Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Boðuð herkví Bandaríkjaforseta á ströndum Írans tók gildi nú síðdegis og samkvæmt forsetanum hafa skip þegar fengið að sigla um Hormússund. Hann hótar því að öllum írönskum skipum sem nálgist skip bandaríska sjóhersins verði útrýmt. Erlent 13.4.2026 20:14
Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Leó fjórtándi páfi segist ekki óttast ríkisstjórn Donalds Trump eftir að bandaríski forsetinn hellti úr skálum reiði sinnar yfir hann á samfélagsmiði í nótt. Hann ætli að halda áfram að tala máli friðar. Erlent 13.4.2026 14:15
Trump hjólar í páfa Donald Trump Bandaríkjaforseti fór mikinn gegn Leó páfa á samfélagsmiðlum í nótt og í samtali við fréttamenn. Hann sagðist ekki aðdáandi páfa, sakaði hann um að ganga erinda vinstri manna og sagðist ekki vilja páfa sem þætti það í lagi að Íranir eignuðust kjarnavopn. Erlent 13.4.2026 06:46
Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Alþjóðlegt olíuverð hefur hækkað um 7 prósent frá því að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagðist myndu láta loka fyrir umferð um Hormússund við Persaflóa. Blátt bann á að taka gildi klukkan 15 á morgun, mánudag, en óskýrt er hvort skipum sem tengjast ekki Íran verði hleypt í gegn þar sem misræmis gætir í málflutningi Trump og hersins í þeim efnum. Erlent 12.4.2026 23:10
Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa lagt blátt bann við siglingum um Hormússund. Hann hefur einnig fyrirskipað sjóhernum að stöðva skip á alþjóðlegum hafsvæðum sem greitt hafa Írönum hafnartolla. Erlent 12.4.2026 14:08
Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Hilmar Þór Hilmarsson prófessor á Akureyri segir Írani í mun sterkari samningsstöðu en Bandaríkjamenn. Hótanir Bandaríkjaforseta um gereyðingu séu merki um mikla örvæntingu. Innlent 12.4.2026 12:16
Friðarviðræður runnu út í sandinn JD Vance, varaforseti Bandaríkjanna, hefur yfirgefið Islamabad, höfuðborg Pakistan, eftir að friðarviðræðum við Íran lauk án samkomulags. Hann sagðist hafa lagt fram „besta og endanlegasta tilboð“ sem hann væri fær um fyrir hönd Bandaríkjanna. Erlent 12.4.2026 08:46
Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Stjórnvöld í Íran hafna þeirri fullyrðingu Bandaríkjamanna að tveir tundurspillar á vegum bandaríska sjóhersins hafi siglt í gegnum Hormússund. Bandaríkjaforseti segir það breyta engu fyrir sig hvort friðarsamkomulag náist við Íran. Erlent 11.4.2026 21:15
Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna fer fyrir samninganefnd sem fundar nú með Abbas Araghchi utanríkisráðherra Írans og fleiri háttsettum embættismönnum í Islamabad í Pakistan. Um er að ræða fyrsta fund bandarískra og íranskra stjórnvalda augliti til auglitis frá íslömsku byltingunni 1979. Erlent 11.4.2026 15:33
Aðeins lúserar þurfa að grípa til þeirrar stefnu að leika brjálæðing Það mikilvægasta sem þarf að skilja um hina svokölluðu „brjálæðiskenningu“ í utanríkisstefnu er að hún var hönnuð af lúserum fyrir lúsera. Enginn grípur til brjálæðisstefnu þegar hann telur sig vera í yfirburðastöðu. Öflug og farsæl stórveldi leggja áherslu á samkvæmni og fyrirsjáanleika. Umræðan 10.4.2026 12:09
Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Ríkisstjórnin hefur samþykkt að lækka virðisaukaskatt á eldsneyti af dælu úr 24 prósentum í 11 prósent. Tímabundið lagaákvæði mun skylda söluaðila til að skila verðlækkun að fullu til neytenda og fela Samkeppniseftirlitinu að vakta að það sé gert. Viðskipti innlent 10.4.2026 11:52
Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Fundur Marks Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins, með Donald Trump Bandaríkjaforseta í Hvíta húsinu í vikunni er sagður hafa einkennst af fúkyrðaflaumi forsetans. Hann á að hafa hótað NATO-ríkjum hefndaraðgerðum vegna þess að þau hafa ekki viljað taka þátt í aðgerðum Bandaríkjamanna í Íran. Erlent 10.4.2026 08:50
Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Þrátt fyrir vopnahlé í stríðinu í Íran hafa átök Ísraelsmanna og Hesbollah í Líbanon haldið áfram og ljóst að engin samstaða er um þann hluta vopnahléssamninganna. Erlent 10.4.2026 07:31
Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Tala látinna eftir að Ísraelsher gerði loftárás á miðborg Beirút í gær er komin yfir þrjú hundruð. Benjamin Netanjahú forsætisráðherra Ísrael segir að herinn haldi áfram árásum á Hezbollah-samtökin þar til öryggi Ísraela er tryggt. Erlent 9.4.2026 23:51
Fundaði með Trump eftir harða gagnrýni á NATO Framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins sótti fund með Bandaríkjaforseta til að tala gegn því að Bandaríkin gangi úr bandalaginu. Forsetinn hefur gagnrýnt bandalagið ítrekað, sem hafi snúið baki við bandarísku þjóðinni, og íhugar að ganga úr því. Erlent 9.4.2026 07:45
Krefst þess að Íranir uppfylli „hið raunverulega samkomulag“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandarískan herafla munu verða áfram við Íran þar til skilmálar „hins raunverulega samkomulags“ milli Bandaríkjanna og Íran hafa verið uppfylltir. Forsetinn er þarna að vísa til þess að deildar meiningar virðast uppi varðandi það um hvað var samið. Erlent 9.4.2026 07:39
Gerir ráð fyrir áframhaldandi hækkun bensínverðs Hagfræðingur hjá ASÍ segir enn margt óljóst hvað varðar lokun Hormússunds og áhrifum þess á bensínverð. Sé lokun aðeins tímabundin geti það leitt til lægra bensínverðs en haldi vopnahléið ekki og lokunin haldi áfram megi búast við áframhaldandi hækkunum á bensínverði. Innlent 8.4.2026 20:24
Líbanon verið hluti af samkomulaginu og Trump þurfi að velja Forseti íranska þingsins segir búið að rjúfa þrjú ákvæði í tíu punkta tillögu Írans sem kvað á um tveggja vikna vopnahlé í átökum við Bandaríkin og Ísrael. Utanríkisráðherra Írans segir Bandaríkin þurfa að velja milli vopnahlés eða áframhaldandi stríðs. Erlent 8.4.2026 20:08
Íran og Hormuz-sund Bandaríkin og Íran hafa náð samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé og samningaviðræðum um varanlegan frið sem hefjast á föstudag n.k. í Pakistan. Skoðun 8.4.2026 18:30
Hormússund sagt lokað á ný Stjórnvöld í Íran hafa lokað Hormússundi á ný vegna árása Ísraels á Líbanon, að sögn ríkismiðils í Íran. Bandaríkin og Íran sögðust í gær hafa komist að samkomulagi um tveggja vikna vopnahlé með því skilyrði að opnað yrði fyrir skipaumferð um sundið. Erlent 8.4.2026 17:13
Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur Samkomulag um tveggja vikna vopnahlé milli Bandaríkjanna og Íran markar á engan hátt lausn á átökunum í Miðausturlöndum segir prófessor í sagnfræði. Það sé áhyggjuefni að Bandaríkjaforseti gangi fram líkt og götustrákur og beiti alvarlegum hótunum í því skyni að fá andstæðinga til þess að beygja sig undir sitt vald. Innlent 8.4.2026 13:17
Almenn ánægja með vopnahléið og vonir um endalok átaka Leiðtogar víða um heim hafa lýst ánægju sinni með hið tveggja vikna vopnahlé sem komið er á milli Bandaríkjanna og Ísrael annars vegar og Íran hins vegar. Stjórnvöld í Kína sögðust í morgun myndu halda áfram að greiða fyrir viðræðum til að koma á friði og þá sögðust ráðamenn í Japan hafa væntingar um að vopnahléið myndi leiða til varanlegrar lausnar. Erlent 8.4.2026 09:48
Bandaríkin og Íran komist að samkomulagi um vopnahlé Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa fallist á tillögu um tveggja vikna vopnahlé í Íran með því skilyrði að stjórnvöld séu reiðubúin að hleypa skipum óáreittum í gegnum Hormússund á ný. Stjórnvöld í Íran segjast hafa samþykkt miðlunartillögu Pakistans. Erlent 7.4.2026 22:47