Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Samúel Karl Ólason skrifar 8. september 2026 20:50 Sádar hafa um árabil leitt bandalag sem styður alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld Jemen gegn Hútum. Hútar stjórna þó stórum hluta landsins og þar á meðal höfuðborginni. Átökin hafa orðið meiri á undanförnum vikum. AP/Hani Mohammed Hútar skutu í nótt tugum dróna og eldflauga að fjórum borgum í Sádi-Arabíu. Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árásirnar og ollu þær meðal annars skemmdum á olíuvinnsluinnviðum. Ráðamenn í Sádi-Arabíu heita umfangsmiklum viðbrögðum en átök hafa harðnað í Jemen að undanförnu.
Hútar stjórna stórum hluta Jemen, þar á meðal höfuðborginni Sana, en þeir eru studdir af klerkastjórninni í Íran. Sádar hafa stutt alþjóðlega viðurkennd stjórnvöld í Jemen gegn Hútum um árabil. Leiðtogar Húta tilkynntu í dag að þeir hefðu gert árásir í Sádi-Arabíu og að þær hefðu beinst að herstöð í Khamis Mushait, olíuvinnsluinnviðum nærri Abha, Jajran og Jazan og öðrum skotmörkum í borgunum fjórum. Í frétt Reuters segir að reykjarmökkur hafi verið sýnilegur frá að minnsta kosti tveimur borgum á gervihnattamyndum í dag. Á undanförnum mánuðum hafa Hútar gert árásir á aðra olíuvinnsluinnviði í Sádi-Arabíu og á olíuflutningaskip en Sádar hafa flutt mun meira af olíu gegnum Rauðahaf en áður vegna stríðs Bandaríkjanna og Íran. Þá hafa átökin í Jemen aukist töluvert að undanförnu en fjögurra ára vopnahlé byrjaði að liðast í sundur í júlí, þegar Hútar lýstu því yfir að þeir ætluðu að stöðva olíuflutning Sáda um Rauðahaf. Boða umfangsmikla sókn gegn Hútum Hútar hafa frá því í síðustu viku reynt að hernema strandlengjuna við Bab al-Mandab-sund, sem tengir Rauðahaf við Adenflóa. Leiðtogar ríkisstjórnarinnar boðuðu svo í gær umfangsmikla sókn gegn Hútum, með því markmiði að reka þá á brott frá höfuðborginni. Líklegt er að sóknin sé gerð með stuðningi Sáda en í kjölfarið gerðu Hútar áðurnefndar árásir í nótt. #Yemen’s Deputy Defense Minister Maj. Gen. Sameer Al-Sabri: “The decision has been made to retake Sana’a [from the Houthis]. There are surprises we will not reveal now. We will be the ones to end this war after the militia started it.” pic.twitter.com/pBARXTbAi3— Ali Al-Sakani | علي السكني (@Alsakaniali) September 7, 2026 Leiðtogar Húta sögðu þær árásir vera svar við árásum Sáda, samkvæmt frétt BBC. Þeir segja Sáda hafa gert rúmlega 120 loftárásir í Jemen á undanförnum dögum og að með þeim hefðu Sádar framið „alvarlega glæpi“. Átökin og árásirnar hafa leitt til hækkunar olíuverðs í dag en Brent-hráolía hefur ekki verið hærri frá því um miðjan júlí, eins og fram kemur í frétt Reuters. Þá geta átökin leitt til enn frekari hækkunar ef þau koma niður á olíuflutningum um Rauðahaf og draga úr framleiðslu í Sádi-Arabíu. Í samtali við Wall Street Journal segir einn greinandi að ástandið við Persaflóa og Rauðahaf gæti varað út árið.
Jemen Sádi-Arabía Hernaður Bensín og olía Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Skipaflutningar Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Geta notað drónana til fulls á ný Erlent Fleiri fréttir Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Sjá meira