Meira en bara reglur og byrðar Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar 15. ágúst 2026 08:01 Eitt stærsta tækifæri alþjóðasamstarfs liggur í að deila þekkingu og getu til að takast á við áhættu sem ekkert eitt ríki getur ráðið við eitt og sér. Því þetta er ekki bara spurning um eitthvað reglufargan. Þetta er spurning um aukna getu til að takast á við sameiginlegar og alvarlegar áskoranir, eins og á sviði umhverfis- og loftslagsmála. Sem dæmi má líta til þess að nýjustu vísindarannsóknir sýna fram á meiri óvissu um stöðugleika mikilvægra hafstraumakerfa fyrir framtíð Íslands, veltihringrás Atlantshafsins (AMOC). Breytingar á hafstraumum vegna loftslagsbreytinga munu hafa alvarleg áhrif á loftslag, haf, fæðuöryggi og samfélög um allan heim, ekki síst Norður-Atlantshafi, þar á meðal á Íslandi. Sú ógn er rækilega á dagskrá núverandi ríkisstjórnar enda þjóðaröryggismál fyrir Ísland. Vísindasamfélagið hefur kallað eftir aukinni vöktun, rannsóknum og viðbúnaði og öflugri loftslagsaðgerðum til að sporna gegn þessari þróun. Ekkert ríki getur rannsakað, vaktað eða brugðist við þessu eitt og sér. Við þurfum sameiginlega vöktun, gögn, rannsóknir, sérþekkingu og getu til að bregðast við nýjum upplýsingum og ekki síður til að sporna gegn þessari þróun. Á meðan Evrópa vinnur nú í að setja upp hafvöktunarkerfi, er vegið harkalega að hafvísindum og rannsóknum í Bandaríkjunum. Á meðan Evrópa setur loftslagsmál rækilega á dagskrá, segja Bandaríkin sig úr Parísarsamkomulaginu. Það endurspeglar vel hvar við ættum að staðsetja okkur í heimsmyndinni. Meðal annars þess vegna, er ég já-kannski manneskja. Því í stóra samhenginu tel ég framtíð Íslands eiga mesta samleið með framtíð Evrópu. Það reynir á alþjóðakerfin þessa dagana og þegar á reynir er okkar hagsmunum best borgið í nánu Evrópusamstarfi. Mótum eigin reglur og komum áherslum okkar að Umhverfis- og loftslagsmál eru í veigamiklum atriðum alþjóðleg í eðli sínu, enda ein stærsta áskorun okkar tíma sem enginn leysir einn. En alþjóðasamstarf þarf ekki að þýða að við afsölum áhrifum, þvert á móti getur það gefið okkur áhrifavald. Ísland tekur nú þegar upp mjög stóran hluta umhverfislöggjafar Evrópusambandsins í gegnum EES-samninginn. Löggjöf Evrópusambandsins byggir eðli málsins samkvæmt á aðildarríkjunum og aðstæðum þeirra. Í grófum dráttum þýðir þetta að við tökum upp reglur sem aðrir hafa mótað. Stundum hefur það gefist vel. Mörg stærstu framfaraskref í íslenskri umhverfislöggjöf eiga rætur í alþjóðlegu samstarfi, sérstaklega Evrópusamstarfi. Eitt dæmi er reglur um að meta skuli umhverfisáhrif framkvæmda áður en ráðist er í þær. Í dag er það sjálfsagður undanfari framkvæmda, enda markmiðið einfaldlega að koma í veg fyrir umhverfissóðaskap og stuðla að ábyrgri uppbyggingu. En Ísland fær meira vægi sem fullur þátttakandi í mótun reglnanna. Þannig komum við íslenskum aðstæðum að borðinu, gætum hagsmuna okkar og höfum áhrif á sameiginlegar reglur þegar þær eru í mótun. Jafnframt getum við styrkt stöðu okkar sem þátttakandi í rannsóknum, vöktun og öryggi vegna loftslagsáhættu, sem er verkefni sem við vinnum best að í nánu alþjóðlegu samstarfi. Meira samstarf þarf því ekki að þýða minni sjálfstjórn. Heldur tækifæri til að efla getu, hafa meiri áhrif og verja íslenska hagsmuni af meiri krafti. Höfundur er aðstoðarmaður umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Jóna Þórey Pétursdóttir Umhverfismál Mest lesið „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Halldór 03.10.2026 Halldór Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar