Gjöld fyrir frístund rokið upp Lovísa Arnardóttir skrifar 13. maí 2026 10:04 Kostnaður við vistun í frístund er hvað lægstur í Vestmannaeyjum en hefur þó aukist á tímabilinu samkvæmt samantekinni. Vísir/Vilhelm Samanburður á gjöldum hjá fjórtán sveitarfélögum sýnir að hækkanir á gjaldskrám frístundaheimila fyrir grunnskólabörn frá árinu 2023 til 2026 eru á bilinu fjögur prósent upp í 37 prósent.
Mestu hækkanirnar eru samkvæmt samantektinni í Fjarðabyggð þar sem hækkunin nemur hækkunin 36 prósentum, þar sem gjöld fara úr 17.073 krónum í 23.247 krónur á sama tímabili samkvæmt nýrri samantekt ASÍ. Þar kemur fram að minnstu breytingarnar eru í Vestmannaeyjum, Akureyri og á Seltjarnarnesi þar sem hækkun gjalda er á bilinu fjögur til tíu prósent. Í samantekt ASÍ kemur einnig fram að í Garðabæ hafi gjaldskráin hækkað úr 32.662 krónum í 34.400 krónur á tímabilinu. Á Seltjarnarnesi eru gjöld einnig há, 38.750 krónur árið 2026, þó hækkunin þar sé minni en víða annars staðar. Samantekt ASÍ miðast við eitt barn í 63 stunda vistun á mánuði eða um þrjár klukkustundir á dag auk þess að fá síðdegishressingu. Lækka í Mosfellsbæ Í Reykjavík hækka gjöld frístundaheimila um 15 prósent á tímabilinu og fara úr 21.310 krónum í 24.452 krónur. Sambærileg þróun er í Árborg og á Akranesi þar sem hækkunin er einnig um 15 prósent. Mosfellsbær sker sig úr í samanburðinum sem eina sveitarfélagið þar sem gjöld lækka. Þar lækkar mánaðargjaldið um tvö prósent, úr 26.586 krónum árið 2023 í 25.984 krónur árið 2026. Í samantekt segir að munurinn milli sveitarfélaga sé jafnframt áfram mikill. Í ár muni yfir 21 þúsund krónum á hæstu og lægstu gjaldskránni í samanburðinum. Sé tekið tillit til verðbólgu má sjá að yfir sama tímabil hefur verðbólga verið 20 prósent og einungis í Garðabæ og Fjarðabyggð sem gjöld hafa hækkað umfram verðbólgu. Miðast þessi úttekt við eitt barn í 63 stunda vistun á mánuði eða um 3 klukkustundir á dag auk þess að fá síðdegishressingu. Sé horft til að fleiri en eitt barn sé í vistun í frístund er ýmist veittur afsláttur af gjaldi þess barns eða gjaldi elsta barns, en hann er ýmist 25-100 prósent fyrir annað barn en 75-100 prósent fyrir þriðja barn samkvæmt samantektinni. Þar kemur einnig fram að sum sveitarfélög bjóða uppá sérstaka afslætti fyrir ákveðna hópa, til dæmis veiti Kópavogsbær 25 prósent afslátt fyrir einstæða foreldra, öryrkja og námsmenn og Garðabær tekjutengdan 40 prósent afslátt af almennu dvalargjaldi fyrir einstaklinga eða fjölskyldur undir tekjuviðmiðum. Akranes býður einnig uppá afslátt fyrir einstæða foreldra. Fréttin hefur verið leiðrétt en gjöld í Reykjanesbæ hafa hækkað um 15 prósent en ekki 37 prósent, úr 20.266 krónum árið 2023 í 23.673 krónur árið 2026 en ekki um 27 þúsund eins og kemur fram í samantekt ASÍ. Leiðrétt aftur vegna Garðabæjar en þar hafa gjöldin hækkað í 34.400 en ekki um 37 þúsund.
Skóla- og menntamál Frístund barna Börn og uppeldi Reykjavík Kópavogur Seltjarnarnes Reykjanesbær Akranes Árborg Fjarðabyggð Hafnarfjörður Skagafjörður Vestmannaeyjar Garðabær Fjármál heimilisins Mest lesið „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Innlent Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Innlent Baráttan harðnar í Texas: Dæla milljónum í baráttuna um öldungadeildina Erlent Freyr látinn fara frá Eflingu Innlent Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Innlent Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Innlent María Sigurðardóttir er látin Innlent Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Innlent Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Innlent Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Innlent Fleiri fréttir „Farið að minna mig á stöðuna í Bandaríkjunum“ Mátti þrífa harkalega í leikskólabarn Hafa skotið um hundrað bjargdúfur í Vestmannaeyjum Ákærður fyrir gróf brot á barnungri stjúpsystur sinni Sjaldgæfur gestur í Eyjum Bað um álit lögreglu á gæðum fíkniefna Skriða þveraði veginn í Árneshrepp Breiðholtsbraut lokuð allan morgundaginn Allt umfram 2,8 milljarða dregið frá Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook Húsbíll fauk út af Hver ákvað að Guðmundur Ingi ætti að hætta? Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur Ákærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri Fundu umfangsmikla kannabisrækt í Bolungarvík „Nauðsynlegt er að kjarasamningar haldi“ Sárnar að vera bendlaður við líkamsárás Freyr látinn fara frá Eflingu Segir Ingu hafa vitnað í trúnaðarsamtal Stefna á að taka inn skjólstæðinga í næstu viku Segir Ingu hafa brotið trúnað í ræðustól Alþingis Bein útsending: Sjálfsvíg á Íslandi – staðan, forvarnir og leiðin fram á við „Við erum ekki að byrja á núlli“ Fimm ára dómur Norberts staðfestur Veita ekki viðtöl eftir ríkisstjórnarfund Jöfnuður næst ekki í um öðrum hverjum kosningum Kjarni málsins sé að Inga hafi ekki sagt alveg rétt frá Endurskoða samning SÁÁ María Sigurðardóttir er látin Handtekinn fyrir líkamsárás, rán, íkveikju og þjófnað Sjá meira