Daglegt líf sem virkar í Fjarðabyggð Samfylkingin og annað félagshyggjufólk, er með skýra sýn á hvaða verkefni þurfi að ráðast í á næstu árum til að gera gott samfélag enn betra. Skoðun 16.5.2026 07:18
Nýjustu tölur í Fjarðabyggð Á kjörskrá í Fjarðabyggð eru 3.976 manns. Níu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn. Innlent 16.5.2026 05:04
Gerum Fjarðabyggð spennandi fyrir ungt fólk Við, ungir frambjóðendur Miðflokksins í Fjarðabyggð, viljum að sveitarfélagið okkar verði staður þar sem ungt fólk sér raunverulega framtíð fyrir sér. Ekki bara staður til að alast upp á og flytja svo í burtu frá, heldur staður þar sem hægt er að lifa góðu lífi, taka þátt, hafa áhrif og finna að samfélagið sé lifandi. Skoðun 14.5.2026 20:01
Tók málin í eigin hendur þegar erlenda vinnuaflið kom ekki Helga Rún Jóhannsdóttir þurfti að taka málin í sínar eigin hendur þegar seinkun á afhendingu vörugáms leiddi til þess að hópur erlendra verkamanna gat ekki sett upp padelvöllinn hennar á Reyðarfirði. Hann verður sá fyrsti á Íslandi utan höfuðborgarsvæðisins. Helga starfaði áður erlendis fyrir eitt stærsta fjárfestingarfyrirtæki heims en vill núna sinna verkefnum sem þjóna betur samfélaginu. Viðskipti innlent 5. maí 2026 18:03
Skynsemi, ábyrgð og fjölskylduvæn framtíð í Fjarðabyggð Sem fjölskyldumaður í Fjarðabyggð horfi ég á stjórnmál fyrst og fremst út frá daglegu lífi fólks. Ég hugsa um heimilin, börnin, atvinnuna, reikningana, þjónustuna og framtíðina sem við viljum byggja hér. Fyrir mér eiga stjórnmál ekki að snúast um flókin kerfi eða fjarlægar hugmyndir, heldur um það hvort ákvarðanir stjórnvalda geri líf fólks betra, einfaldara og öruggara. Skoðun 4. maí 2026 16:45
Krefjast aðgerða: Nemendurnir þurfi að fara um einn hættulegasta veg landsins Skólaráð Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla krefst tafarlausra aðgerða vegna aðstæðna á vegkafla sem nemendur skólans þurfa að fara um dag hvern. Oft og tíðum falli þar grjót eða snjóflóð á veginn sem talinn er einn sá áhættumesti á landinu. Nauðsynlegt sé fyrir börnin að ferðast á milli. Innlent 28. apríl 2026 10:24
Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Svo virðist sem betur hafi farið en á horfði þegar lítilli tveggja sæta flugvél hlekktist á við lendingu á Norðfjarðarflugvelli í dag og hvolfdi. Einn var í flugvélinni og slapp hann án meiðsla, samkvæmt tilkynningu frá Lögreglunni á Austurlandi. Innlent 22. apríl 2026 18:20
Jöfnuður, ábyrgð og uppbygging Við, Samfylkingin og annað félagshyggjufólk í Fjarðabyggð, bjóðum fram í komandi sveitarstjórnarkosningum vegna þess að okkur er annt um samfélagið okkar og viljum halda áfram að leggja okkar af mörkum til að gera það enn betra. Við stöndum fyrir skýrum gildum og höfum ávallt gert: jöfnuð, ábyrgð og uppbyggingu sem skilar sér í betra samfélagi. Skoðun 22. apríl 2026 09:32
Takmarkaður áhugi Petoro á Drekasvæðinu Áhugi norska ríkisolíufélagsins Petoro á frekari olíuleit á Drekasvæðinu virðist takmarkaður ef marka má svar þess við fyrirspurn Austurfréttar. Félagið hafi skilað inn rannsóknarleyfi sínu því ekki væri talið að þar leyndist einhver olía að ráði. Innlent 17. apríl 2026 12:59
Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Mikið hefur verið rætt um fjármál Fjarðabyggðar undanfarið og það er vissulega gleðiefni að rekstrarniðurstaða A-hluta sé jákvæð, þrátt fyrir lakari afkomu en áætlað var. Skoðun 15. apríl 2026 17:02
Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Leikskólagjöld og gjald fyrir sundferð í Fjarðabyggð mun lækka um þrjú prósent frá og með næstu mánaðamótum. Um er að ræða skref til að styðja við verðbólgumarkmið. Formaður bæjarráðs hvetur önnur sveitarfélög til að gera slíkt hið sama. Innlent 13. apríl 2026 12:00
Þrír í fimm ára fangelsi fyrir kókaínsmygl Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi þrjá erlenda karlmenn í fimm á fangelsi hvern fyrir að flytja inn mikið magn af kókaínklóríðs til landsins. Efnin voru falin í bifreið sem kom til landsins með ferjunni Norrænu í nóvember. Innlent 9. apríl 2026 10:13
Fjárfestum í verðmætasköpun Verðmætasköpun er ekki sjálfbær nema innviðir fylgi þróun. Kröftugt atvinnulíf kallar á stöðuga og markvissa uppbyggingu á samgöngum, heilbrigðisþjónustu og orkuöflun. Þetta eru ekki staðbundnir hagsmunir heldur forsendur gjaldeyrisöflunar Íslands og grunnur lífskjara um land allt. Skoðun 1. apríl 2026 12:31
Gripinn með fíkniefni í bíl um borð í Norrænu Farþegi sem kom til landsins með ferjunni Norrænu á föstudag var handtekinn eftir að umtalsvert magn fíkniefna fannst í bíl hans. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald og dvelur í fangelsinu á Hólmsheiði. Innlent 31. mars 2026 10:47
Gamblað með göng og líf lögð undir Þessi vetur hefur verið þungur fyrir Austfirðinga. Óvenju þungur. Ekki bara hefur óveður ítrekað lokað vegum, heldur hefur Innviðaráðherra þyngt róðurinn enn frekar. Skoðun 24. mars 2026 13:17
Rýma hús á Seyðisfirði Ákveðið hefur verið að rýma hús á Seyðisfirði vegna snjóflóðahættu. Um tíu manns munu þurfa að yfirgefa heimili sín klukkan átta í kvöld. Innlent 23. mars 2026 19:20
Fáskrúðsfjarðargöngin opin á ný Fáskrúðsfjarðargöngum var lokað rétt fyrir klukkan níu vegna umferðaróhapps. Ökumaðurinn var fluttur á sjúkrastofnun. Innlent 22. mars 2026 09:32
Grunur um að íkveikja hafi valdið sinubruna Slökkvilið Fjarðabyggðar var í tvígang kallað út vegna gróðurelda í dag. Grunur er um að íkveikja hafi valdið seinni brunanum, sem náði yfir um tveggja hektara svæði. Innlent 21. mars 2026 21:22
Mikilvægast með jarðgöngum að losna við hættulegustu vegi Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra vísaði til náttúruvár þegar hann varði þá ákvörðun sína að setja Fljótagöng til Siglufjarðar í efsta sæti forgangslista næstu jarðganga. Á opnum fundi umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis í morgun bentu tveir þingmenn Norðausturkjördæmis hins vegar á að innan Fjallabyggðar væri jafnvel sterkari krafa um að fá ný Múlagöng vegna ítrekaðra snjóflóða í Ólafsfjarðarmúla. Innlent 19. mars 2026 12:10
Um Fjarðarheiðargöng og samgönguáætlun Ekki er hægt að segja að það hafi komið á óvart að í fréttum sýnar í gærkvöldi hafi Kristján Már Unnarsson verið með umfjöllun um drög að samgönguáætlun. Skoðun 18. mars 2026 12:17
Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Stefán Þór Eysteinsson bæjarfulltrúi er oddviti lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Listinn var samþykktur samhljóða á félagsfundi í Neskaupstað í kvöld. Innlent 17. mars 2026 23:18
Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur verið boðaður á opinn fund umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis á fimmtudag til að svara spurningum um forgangsröð jarðganga. Fjarðabyggð hefur kynnt þingnefndinni tillögu að sáttaleið á Austfjörðum. Innlent 17. mars 2026 21:41
Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Snarpri en góðri loðnuvertíð er að ljúka. Í dag voru aðeins fjögur skip eftir á miðunum og er búist að þau verði öll búin með kvótann á morgun. Nítján íslensk skip sinntu loðnuveiðunum að þessu sinni. Viðskipti innlent 12. mars 2026 21:00
Síminn búinn að glamra í fjóra áratugi Sofin og vakin hafa hjónin Jóna Björg Óskarsdóttir og Víglundur Jón Gunnarsson sett mark á bæjarbraginn í Neskaupsstað með fjölbreytilegum og persónulegum verslunarrekstri í rúm 40 ár. Nú er þó mál að linni, Víglundur hefur staðið sína síðustu vakt í byggingavöruversluninni PAN og fram undan er langt og langþráð frí. Innlent 6. mars 2026 07:03