Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Kristján Már Unnarsson skrifar 5. maí 2026 21:41 Guðjón Örn Björnsson er staðarstjóri Ístaks við Fossvogsbrú. Lýður Valberg Framkvæmdir við Fossvogsbrú eru komnar á fullt skrið og voru fyrstu staurar fyrir brúarstöplana reknir niður í sjávarbotninn í fyrrinótt. Stefnt er að því að brúin verði opnuð umferð eftir tvö ár.
Í fréttum Sýnar heimsóttum við verkstað í dag og sýndum myndir af því hvernig brúin kemur til með að líta út fullsmíðuð. Hún er hluti borgarlínu sem mjög er deilt um. Brúarsmíðin yfir Fossvog verður hins vegar vart stöðvuð úr þessu. Horft á fyrirhugaða brú frá KársnesiEfla/Betri samgöngur Fimm mánuðir eru frá því fyrirtæki ríkisins og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Betri samgöngur, skrifaði undir 7, 7 milljarða króna verksamning við Ístak og danskt móðurfélag þess, Per Aarsleff. Ístaksmenn hófu svo að koma sér fyrir á vinnusvæðinu um síðustu áramót. Málmstykki sem núna sést skammt undan landi Kársnesmegin er fyrsta sýnilega merki nýrrar Fossvogsbrúar. Það fór út í sjó í fyrrinótt og núna eru öflugar vinnuvélar komnar á fulla ferð. Fyrsta sýnilega mannvirki væntanlegrar brúar.Lýður Valberg „Við vorum að reka niður fyrstu staurana í fyrsta landstöplinum hér. Gerðum það bara í þessari viku. Og hér erum við einnig að byrja á að koma fyrir fyrstu staurunum sem eiga að vera sjávarmegin, útí sjó,“ segir Guðjón Örn Björnsson, staðarstjóri Ístaks við Fossvogsbrú, hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: Á vegum Ístaks starfa um fjörutíu manns á svæðinu. „Það eru svona 25-30 manns á daginn. Og svo vinnum við á kvöldvöktum við staurana sem eru úti í sjónum. Það eru kannski tíu manns þar,“ segir Guðjón. Aðalvinnutækið, stærðarinnar prammi, er í Kópavogshöfn yfir daginn. Ofan á honum er risakrani. „Þetta er svona beltakrani og burðargeta hans, eða lyftigeta, er um það bil 300 tonn. Þannig að hann er veglegur.“ Pramminn með krananum má bara vera á Fossvogi yfir nóttina milli klukkan 23 og 7.Ístak/Ragnar Th. Sigurðsson Á kvöldin er pramminn dreginn yfir í Fossvog en þar má hann bara vera frá ellefu á kvöldin til klukkan sjö á morgnana. Ástæðan er sú að kraninn þykir skaga hættulega hátt upp í aðflugslínu Reykjavíkurflugvallar en völlurinn er lokaður yfir nóttina. „Við getum ekki unnið í hæð á daginn þannig að við verðum að nýta nóttina. Hindrunarflöturinn frá Reykjavíkurflugvelli gerir það að verkum að við vinnum hérna á næturnar við sjávarvinnuna og svo á daginn hérna við lægri vinnu.“ Flugvél Icelandair yfir vinnuvélum rétt fyrir lendingu á Reykjavíkurflugvelli í dag.Lýður Valberg -En mun næturvinnan raska svefni Kársnesinga? „Nei, við reynum nú að halda okkur innan þeirra marka og við erum í ágætu samstarfi við fólkið hér í umhverfinu og búin að halda því vel upplýstu og gerum okkar besta til að trufla þau sem minnst,“ segir staðarstjórinn. Sjálf brúin, 270 metra löng og allt að sautján metra breið, verður smíðuð í Póllandi og síðan flutt í fimm stykkjum til Íslands. Hún er hugsuð fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur sem og almenningsvagna. Tvær bílaakreinar verða eingöngu ætlaðar almenningsvögnum sem og fyrir neyðarakstur lögreglu, slökkviliðs og sjúkrabíla. „Á þessu ári munum við klára undirstöðurnar, bæði hér og í sjónum og hinum megin. Það er verkefni ársins. Á næsta ári munum við reisa sjálft stálvirkið, flytja brúna á staðinn. Við munum opna hana í júní 2028,“ segir Guðjón Örn Björnsson. Horft inn Fossvog á fyrirhugaða brú.Efla/Betri samgöngur
Fossvogsbrú Borgarlína Byggingariðnaður Kópavogur Reykjavík Vegagerð Samgöngur Umferð Reykjavíkurflugvöllur Mest lesið Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Innlent Sífellt meira einangraður: Heldur til í neðanjarðarbyrgjum af ótta við banatilræði Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent Mælti sér mót við barn og réðst á það Innlent Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Innlent Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Innlent Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Innlent Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Innlent Fleiri fréttir Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sekta fyrir nagladekk eftir helgi Sólmyrkvinn mögulega þúfan sem veltir hlassinu „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Sjá meira
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent