Byggingariðnaður
1 2 3 4 5 6 … 14 ›
Árnesingur og Rangæingur grafa fyrir Hvammsvirkjun Verksamningur um framhald framkvæmda við Hvammsvirkjun var undirritaður í dag milli Landsvirkjunar og tveggja sunnlenskra verktaka. Kærumál eru þó enn í gangi en Landsvirkjunarmenn vonast samt til að geta boðið út stærstu verkþættina í sumar. Innlent 26.3.2026 21:21
Hafa áhyggjur af húsnæðis- og byggingamarkaði Það er áhyggjuefni að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabanka Íslands hversu mjög hefur hægst á sölu eigna á byggingamarkaði, bæði sölu á eignum í nýbyggingum og nú einnig eldri íbúðum. Seðlabankastjóri segir góðærinu að einhverju leyti lokið en að viðnámsþróttur í hagkerfinu sé með ágætum. Innlent 25.3.2026 12:26
Lánveitendur þurfa að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum Vaxandi óvissa í alþjóðamálum samhliða versnandi verðbólguhorfum og væntingum um hærri vexti og hægari efnahagsumsvif gæti haft þau áhrif að það mun reyna á fjármálastöðugleika hér á landi, að mati Seðlabankans, en þjóðarbúið og fjármálakerfið stendur sterkt til að mæta þeim áskorunum. Fjármálastöðugleikanefnd brýnir einnig lánveitendur til að vera vakandi fyrir „aukinni áhættu“ í byggingageiranum en skuldir hafa þar farið vaxandi. Innherji 25.3.2026 09:09
„Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Aðalhagfræðingur Landsbankans segir stöðuna á fasteignamarkaði óþægilega þar sem raunvirði fasteigna sé farið að lækka. Hlutfall eigna sem seldust yfir ásettu verði í janúar hefur ekki verið lægra í tæp sjö ár. Viðskipti innlent 23.3.2026 20:46
BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Stórsýningin Verk og vit hefst á morgun fimmtudag í Íþrótta- og sýningarhöllinni í Laugardal og stendur yfir fram á sunnudag. Þetta er í sjöunda sinn sem sýningin er haldin en hún er frábær vettvangur til að sjá allt það nýjasta í byggingariðnaði, mannvirkjagerð og skipulagsmálum og kynna sér um leið spennandi vörur og þjónustu. Samstarf 18.3.2026 11:51
Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Á íslenskum byggingamarkaði skiptir sífellt meira máli að geta brugðist hratt við, haldið kostnaði í skefjum en á sama tíma tryggt gæði og öryggi, sérstaklega þegar forsendur verkefna breytast og tímalínur styttast. Fyrir verktaka, fyrirtæki og stofnanir þýðir þetta að sveigjanleiki og skilvirkni eru orðin afar mikilvægur hluti af jöfnunni. Samstarf 12.3.2026 14:34
Mygla í útveggjum nýbygginga Á Íslandi er bannað samkvæmt lögum að byggja hús sem ekki standast íslenskt veðurfar. Í Mannvirkjalögum og Byggingarreglugerð er skýrt kveðið á um að mannvirki skuli hönnuð og byggð þannig að þau þoli íslenskar veður- og raka aðstæður og valdi ekki heilsutjóni fyrir íbúa eða notendur. Viðurlög við brotum getur verið allt að 2ja ára fangelsi. Skoðun 7.3.2026 23:33
Borgin biðst afsökunar: „Þetta er svo petty af hálfu borgarinnar“ Lögmaður telur Reykjavíkurborg hafa bakað sér margra milljóna skaðabótaskyldu í kjölfar uppsagnar verktaka við Ölduselsskóla. Engar upplýsingar sé að fá um ástæðuna. Loka þurfti skólanum vegna öryggismála eftir uppsögnina. Borgin biðst afsökunar á því hvernig staðið var að málinu. Innlent 27.2.2026 19:52
„Valsreiturinn... í Pyongyang“ Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks, birti mynd á Facebook af Kim Jong Un, leiðtoga Norður-Kóreu í höfuðborginni Pyongyang og segir sjást „glöggt“ að Kim-stjórnin hafi „skammlaust stolið íslenskri byggingarlist í heilu lagi“. Umræður hafa spunnist um líkindi milli norður-kóresku bygginganna við Valsreitinn og Borgartúnið. Lífið 27.2.2026 17:10
Segja verktakann hafa fallið á prófinu Reykjavíkurborg segir að verktaki sem kom að framkvæmdum í Ölduselsskóla í Breiðholti hafi ekki uppfyllt gæðakröfur við frágang á verkinu. Vegna þessa var ákveðið að slaufa samstarfinu og fá annan í staðinn. Hættuástand skapaðist við skólann eftir að verktakinn tók saman búnað sinn í gær. Til stendur að hefja skólastarf samkvæmt stundatöflu á mánudag. Innlent 27.2.2026 10:35
Líklegra en áður að nýjar íbúðir seljist undir ásettu verði Undirboð á fasteignamarkaði hafa aukist og hlutfall nýrra íbúða sem seljast undir auglýstu verði hefur farið vaxandi. Þá dregur úr verðþrýstingi á leigumarkaði þar sem leiguverð hefur í fyrsta sinn í nokkur ár hækkað minna en verðbólga. Húsnæðismarkaðurinn sýnir merki um áframhaldandi kólnun og fleiri íbúðir seljast nú undir auglýstu söluverði að því er nýrri mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Viðskipti innlent 19.2.2026 13:01
Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Stjórnendur arkitekta- og verkfræðistofa vænta samdráttar í verkefnum á íbúðamarkaði á næstunni. Alls vænta 43 prósent stjórnenda arkitekta- og verkfræðistofa að verkefnum þeirra á íbúðamarkaði muni fækka á næstu tólf mánuðum en ekki nema eitt prósent að þeim muni fjölga. Viðskipti innlent 19.2.2026 08:25
Smíða tengibyggingu sem verður hjarta Leifsstöðvar Ein stærsta framkvæmd í landinu á næstu árum verður enn frekari stækkun flugstöðvarinnar á Keflavíkurflugvelli, sem Isavia hyggst hefja á þessu ári. Þetta er smíði 22 milljarða króna tengibyggingar sem verða á hjarta Leifsstöðvar. Innlent 10.2.2026 22:33
Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Sífellt fleiri sem eru að huga að byggingarframkvæmdum leita að hagkvæmum og traustum valkostum og þar hafa forsteyptu húseiningarnar frá BM Vallá komið afar sterkar inn á síðustu árum. Samstarf 28.1.2026 11:33
Rúmur helmingur íbúða til sölu nýbyggingar Rúmur helmingur allra íbúða á höfuðborgarsvæðinu á sölu eru í nýbyggingu og hefur hlutur nýrra íbúða í framboði ekki mælst meiri á höfuðborgarsvæðinu í átta ár. Viðskipti innlent 23.1.2026 14:53
Landsvirkjun hyggst bjóða út alla verkþætti Hvammsvirkjunar í ár Framkvæmdastjóri hjá Landsvirkjun vonast til að endanlegt framkvæmdaleyfi fyrir Hvammsvirkjun fáist í næsta mánuði og að smíði hennar fari þá á fulla ferð. Fyrirtækið hyggst jafnframt hefja stækkun þriggja eldri virkjana í ár. Innlent 22.1.2026 21:48
Hættur í Viðreisn og sækist eftir formennsku í SI Þorsteinn Víglundsson, fyrrverandi þingmaður, ráðherra og varaformaður Viðreisnar, og forstjóri Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf. sækist eftir embætti formanns Samtaka iðnaðarins. Þá segist hann hafa sagt skilið við Viðreisn og lýsir óánægju með ríkisstjórnarsamstarf flokksins með Flokki fólksins. Innlent 21.1.2026 08:31
Ráðherra segir ríkisvaldið gefa í með framkvæmdir Fjármálaráðherra segir ríkisvaldið aldrei hafa kynnt eins mörg fjárfestingarverkefni og í ár. Stærstu útboð ársins verða hjá Landsvirkjun en mestu framkvæmdirnar hjá Vegagerðinni. Innlent 20.1.2026 22:44
Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Áætluð heildarfjárhæð í fyrirhuguðum verklegum útboðum þeirra ellefu opinberu verkkaupa sem taka þátt í Útboðsþingi Samtaka iðnaðarins, Samtaka innviðaverktaka og Mannvirkis – félags verktaka árið 2026 nemur 221 milljarði króna. Þetta er 53 prósenta, eða 76 milljarða króna, aukning frá þeim útboðum sem raungerðust árið 2025 en fjárhæð þeirra nam 145 milljörðum króna. Áætlað var að fjárhæð útboða síðasta árs myndi nema 264 milljörðum króna. Viðskipti innlent 20.1.2026 13:30
„Markmiðið var aldrei að kaupa eign til að selja með hagnaði“ Pétur Marteinsson, sem vill leiða lista Samfylkingar í Reykjavík í komandi borgarstjórnarkosningum, segir að markmið hans hafi aldrei verið að kaupa lóðir til þess að selja síðar með hagnaði. Fram hefur komið að hann hafi fengið 69 milljónir króna í sinn hlut eftir sölu á lóð í Skerjafirði fyrir tveimur árum. Hann segir undirbúning byggingu ódýrra íbúða á lóðinni hafa verið aðalstarf hans í fimm ár. Fyrir það hafi hann verið með reiknuð laun upp á 25 milljónir króna, sem gerir 417 þúsund krónur á mánuði. Innlent 15.1.2026 13:23
Ljósvistarhönnuður hoppar hæð sína af gleði vegna breytinga Eitt af síðustu verkum Ingu Sæland í ráðuneyti húsnæðismála var að skrifa undir breytingu á byggingarreglugerð og bæta við kröfum um ljósvist. Ljósvistarhönnuður sem barist hefur fyrir þessu í mörg ár segir að bjartari tímar séu fram undan. Innlent 14.1.2026 15:30
Hækkum endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu iðnaðarmanna Meistaradeild Samtaka iðnaðarins telur nauðsynlegt að bregðast við aukinni eftirspurn eftir svartri atvinnustarfsemi og vill koma á framfæri skýru ákalli til stjórnvalda um að hækka hlutfall endurgreiðslu virðisaukaskatts til að styðja við heilbrigðari starfsumhverfi í mannvirkjagerð. Skoðun 12.1.2026 12:45
Samþykktu tillögu um uppbyggingu á Sorpu-lóð við Dalveg Sérstök valnefnd á vegum Kópavogsbæjar hefur samþykkt tillögu fasteignafélagsins Klasa um þróun lóðar að Dalvegi 1 þar sem endurvinnslustöð Sorpu hefur verið staðsett síðustu ár. Innlent 18.12.2025 12:57
Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Stefnir, sem rekur sex sjóði fyrir verktaka sem bjóða upp á svokallað sameignarform í fasteignaviðskiptum, hefur gjörbreytt forminu í kjölfar breytinga sem Seðlabankinn gerði nýverið á lánþegaskilyrðum. Breytingarnar fela í sér að leiga fyrir eignarhlut verktakans verður greidd mánaðarlega í stað þess að safnast upp. Viðskipti innlent 17.12.2025 16:19
Martraðarverktaki Kópavogsbæjar greiddi ekki krónu með gati Ekki króna fékkst upp í 2,6 milljarða króna gjaldþrot ítalska verktakafyrirtækisins Rizzani de Eccher Ísland ehf. sem kalla mætti martröð Kópavogsbæjar eftir deilur við byggingu Barnaskóla Kársness. Undirverktakar sitja eftir með sárt ennið og ógreidda reikninga. Kópavogsbær undirbýr skaðabótamál á hendur móðurfyrirtækinu. Viðskipti innlent 10.12.2025 13:40
„Djúp menning sem hefur átt sér stað og enginn telur sig ábyrgan“ Bókin Jötunsteinn eftir Andra Snæ Magnason er viðbragð við yfirstandandi uppbygingarskeiði sem höfundur lýsir sem „stóra lúffinu“. Fólk sé ekki stolt af byggingum sem rísi á Íslandi líkt og áður fyrr heldur skammist sín ef eitthvað er. Ekki sé hægt að benda á sökudólga heldur sé ástandið afleiðing djúpstæðrar menningar. Jötunsteinn er hróp til fólks um að beygja af þessari leið. Menning 9.12.2025 07:09
Gagnrýna að seljendur og verktakar þurfi einir að lækka verð Vignir S. Halldórsson, verktaki og faglegur framkvæmdastjóri Öxar ehf. og Monika Hjálmtýsdóttir, formaður Félags fasteignasala og framkvæmdastjóri Landmarks, gagnrýna að gefið hafi verið í skyn á fundi Seðlabankans í gær að verktakar og seljendur einir eigi að taka á sig hækkun á fasteignamarkaði. Monika og Vignir voru til viðtals í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Viðskipti innlent 4.12.2025 09:21
Útspilið hafi komið á óvart og hætta sé á minni uppbyggingu Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir útspil fjármálastöðugleikanefndar í morgun hafa komið á óvart. Hann veltir því fyrir sér hvernig markaðurinn eigi að koma á jafnvægi á húsnæðismarkaði þegar hið opinbera grípur ítrekað inn í. Viðskipti innlent 3.12.2025 14:29
Seðlabankinn breytir reglum um greiðslubyrðarhlutfall Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans hefur ákveðið að samþykkja breytingar á reglum um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda. Við útreikning á greiðslubyrði skal nú litið til allra greiðslna sem falla til hjá einstaklingum við öflun íbúðarhúsnæðis. Þar á meðal þarf að líta til greiðslna vegna afnota tengdum fyrirkomulagi íbúðakaupa, jafnvel þótt þeim sé frestað. Viðskipti innlent 3.12.2025 08:41
Minni eignamyndun en fleiri komist í eigið húsnæði með nýrri lausn á markaði Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hyggst ráðast í greiningu á nýrri fjármögnunarleið til húsnæðiskaupa sem nú býðst í vaxandi mæli á markaði. Minnst fimm sjóðir í eigu byggingaverktaka bjóðast nú til að vera meðeigendur með kaupendum sem kaupa íbúðir í nýbyggingum á þeirra vegum. Eignamyndun er minni fyrir kaupendur sem einnig þurfa að greiða hluta í leigu, en á móti getur lausnin gert fleirum kleift að komast inn á markaðinn að sögn hagfræðings HMS. Viðskipti innlent 21.11.2025 12:31