Húnvetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa Kristján Már Unnarsson skrifar 16. júní 2026 07:07 Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar. Fjær sjást byggingar gagnaversins. Egill Aðalsteinsson Framkvæmdir eru hafnar við tvöföldun gagnavers Borealis við Blönduós til að mæta þörfum gervigreindarfyrirtækja og kalla þær á allt að tvöhundruð manns í vinnu á verktíma. Oddviti Húnabyggðar segir að milli þrjátíu og fjörutíu ný varanleg störf séu að verða til í héraðinu vegna gagnaversins.
Í kvöldfréttum Sýnar var farið í Húnaþing en það var árið 2018 sem framkvæmdir hófust þar við gagnaver Borealis og þóttu þá miklar. En núna eru menn byrjaðir á öðru eins. Tvær vikur eru frá því gröfurnar hófu að moka fyrir grunni nýrrar byggingar sem ætlað er að þjóna starfsemi gervigreindarfyrirtækja. „Þetta er tvöföldun á byggingamagni. Það sem að við sjáum hérna fyrir eru svona um það bil 7.300 fermetrar. Næsta hús, sem að hafin er vinna við, verður 7.100 fermetrar, - eru nýjustu tölur,“ segir Guðmundur Haukur Jakobsson, forseti sveitarstjórnar Húnabyggðar. Séð yfir byggingar gagnavers Borealis. Fjær sést hvar byrjað er að grafa fyrir viðbótinni.Egill Aðalsteinsson Síðastliðinn vetur unnu yfir eitt hundrað manns við breytingar og stækkun eldri bygginga. Framkvæmdirnar sem núna eru hafnar kalla á vaxandi fjölda byggingamanna næstu vikur og allt upp í 150 til 200 manns næsta vetur. „Þetta er gríðarleg vinna. Hér er öll gisting uppurin. Þetta hefur verið svolítill vertíðarbransi á þessu,“ segir Guðmundur Haukur. Um tuttugu föst störf eru núna í gagnaverinu en varanlegum störfum er að fjölga og er þegar byrjað að auglýsa eftir fólki. „Í því sem við sjáum hérna fyrir núna þá hafa verið auglýst núna að minnsta kosti fjórtán ný störf. Og tvöföldun á því á næsta eina árinu kannski, þá þarf hér bara þrjátíu, fjörutíu manns í vinnu,“ segir oddvitinn. Séð yfir gagnaverið í átt til Blönduóss. Grunnur nýrrar byggingar til hægri.Egill Aðalsteinsson Gagnaverið stendur við Svínvetningabraut, um þrjá kílómetra suðaustan Blönduóss, en í bænum búa núna um 850 manns. Samfélagið þarf að vera tilbúið að taka við fleiri nýjum störfum. „Þetta þýðir það bara að okkur þarf að fjölga ef að við ætlum að hafa undan. Við þurfum að fara að byggja meira íbúðarhúsnæði, byggja við skólann okkar og gera og græja,“ segir Guðmundur Haukur Jakobsson hér í sjónvarpsfrétt Sýnar:
Húnabyggð Gagnaver Byggingariðnaður Vinnumarkaður Tengdar fréttir Margir búnir að grínast með að gagnaverið myndi aldrei koma Um eitthundrað manns vinna um þessar mundir að smíði gagnavers á Blönduósi. Framkvæmdirnar hafa hleypt miklu fjöri í athafnalíf í Húnavatnssýslum. 5. mars 2019 21:00 Telja Blönduvirkjun bjóða upp á frekari uppbyggingu í héraði Stækkun Blönduvirkjunar og betri flutningslínur þaðan skapa enn frekari tækifæri til uppbyggingar á Blönduósi, að mati ráðamanna í héraði. 1. apríl 2019 21:45 Mest lesið Dagný Ósk látin Innlent Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Innlent Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Innlent Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst Innlent Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Innlent Flugvirkjar aflýsa verkfalli Innlent Drengurinn er fundinn Innlent Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Innlent Fleiri fréttir Hollendingar hætta við Eurovision-sniðgöngu Þúsundir barna bíða mánuðum saman „Að mínu mati fyrsta alvöru haustlægðin“ Hjólreiðamaður slasaðist en reiðhjólið í lagi Efnaleki á Óseyri og fólk beðið um að halda sig fjarri Quang Lé frjáls sinna ferða „Grafalvarlegt ástand sem skapast“ Íslenskir stjörnukokkar meðal kokka sem mótmæla fiski úr sjókvíaeldi Bjartsýnn á að lausn náist innan fjögurra vikna Dagný Ósk látin Skora á atvinnurekendur og minna á rétt launafólks Kom til landsins með kafarabúninga og neðansjávarvespur Náttúrupassi kosti 4.500 krónur en bílastæðagjöld falli niður Bein útsending: Heimkoman ekki eins auðveld fyrir alla Drengurinn er fundinn Framkvæmdastjóri hjá BL handtekinn og settur í leyfi Ekki búið að slá verkfallsvopnið úr höndum flugstétta Skammlíft verkfall og umfangsmikið fíkniefnamál Framkvæmdastjóri hjá þekktu fyrirtæki meðal handteknu Flugvirkjar aflýsa verkfalli Foreldrar geti nú stillt útlit og falið hvatningu í Læsi Ók allt of hratt og á móti umferð í eftirför lögreglu Strætisvagni ekið utan í rútu á Snorrabraut Ætluðu að setja lög á verkfall flugvirkja Vaktin: Verkfallsaðgerðum flugvirkja aflýst „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Sjá meira
Margir búnir að grínast með að gagnaverið myndi aldrei koma Um eitthundrað manns vinna um þessar mundir að smíði gagnavers á Blönduósi. Framkvæmdirnar hafa hleypt miklu fjöri í athafnalíf í Húnavatnssýslum. 5. mars 2019 21:00
Telja Blönduvirkjun bjóða upp á frekari uppbyggingu í héraði Stækkun Blönduvirkjunar og betri flutningslínur þaðan skapa enn frekari tækifæri til uppbyggingar á Blönduósi, að mati ráðamanna í héraði. 1. apríl 2019 21:45