Sport

„Mér er al­veg sama hvað ég skora mikið, ég vill bara fá sigur“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Frank Aaron Booker var öflugur í kvöld.
Frank Aaron Booker var öflugur í kvöld. Vísir/Hulda Margrét

Valur vann í kvöld sinn fyrsta sigur í Bónus deild karla þetta tímabilið þegar þeir lögðu nýliða Ármann af velli með níu stiga mun 94-83. Frank Aron Booker var að vonum ánægður með sigurinn sem Valsmenn þurftu svo sannarlega að hafa fyrir.

„Svona er körfuboltinn stundum. Maður þarf stundum að hafa smá fyrir þessu“ sagði Frank Aron Booker eftir leikinn í kvöld.

„Í endann þá fengum við sigurinn og það er það eina sem skiptir máli. Við þurfum bara að læra af þessu og horfa á video-ið og verða betri. Það er bara október“

Staðan var jöfn eftir þriðja leikhluta en Valsliðið sigldi svo fram úr í fjórða og hafði á endanum níu stiga sigur.

„Það er 100% vörnin. Það er það eina sem kom okkur í gang þarna í endann og þeir náðu ekki að setja eins mikið af auðveldum skotum og við náðum að frákasta vel þarna í endann og ég held að það hafi verið það eina sem kemur úr þessu frá mér“

Frank Aron Booker átti virkilega góðan leik og var með tvöfalda tvennu í kvöld, 24 stig og 12 fráköst. Hann finnur þó ekki endilega fyrir meiri ábyrgð á sér í sóknarleiknum.

„Já kannsi, ég er samt bara sami leikmaður og ég er búin að vera en núna þá tek ég bara opin skot og reyni að taka eins mörg fráköst og spila vörn“

„Mér er alveg sama hvað ég skora mikið, ég vill bara fá sigur í endann“

Valur tapaði fyrstu tveim leikjum sínum í deildinni og er því kærkomið að ná í sigurinn í kvöld.

„Það er mjög gott fyrir sálina. Við erum ekki 0-3 heldur 1-2 og það er allt í lagi, við tökum þetta bara með okkur í bankann og höldum bara áfram að læra frá svona leikjum og harka bara í gengum þetta“

Valsliðið í ár er aðeins öðruvísi en við höfum séð síðustu ár en hverju má búast við frá Valsliðinu í ár?

„Vonandi fleirri sigrar og miklu betri vörn. Hraði þegar við fáum góð stopp. Ég vona að við komum frá þessu hérna, lærum af þessu og höldum áfram. Síðustu leikir voru mjög erfiðir en mjög góðir og við tökum bara allt sem við getum tekið frá þessu og lærum“ sagði Frank Aron Booker að lokum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×