Simpansar á flótta frá dýragarðinum í Belfast Hópur simpansa flúði frá svæði sínu í dýragarðinum í Belfast í Norður-Írlandi. Einn simpansanna komst heldur nálægt fjölskyldu einni sem er ekki á eitt sátt. Erlent 10. febrúar 2019 15:29
May biður um lengri tíma Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, mun óska eftir því við breska þingið að fá lengri tíma til að semja um breytingar á útgöngusamningi við Evrópusambandi, einkum hvað varðar umdeildustu þætti samningsins er varða landamæri Norður-Írlands. Hún hyggist leita til þingsins í vikunni eftir að hafa reynt að sannfæra yfirvöld í Brussel um að gera breytingar fyrirliggjandi samningi á skömmum tíma. Erlent 10. febrúar 2019 10:17
Filippus prins leggur bíllyklana á hilluna Hinn 97 ára gamli hertogi Filippus hefur eftir atburði síðasta mánaðar ákveðið að skila inn ökuskírteini sínu og er hættur akstri. Erlent 9. febrúar 2019 19:46
Breskur rappari lést í bílslysi Cadet var á leið á tónleika þegar hann lenti í tveggja bíla árekstri með þeim afleiðingum að hann lést. Erlent 9. febrúar 2019 13:24
Vandi Bretlands ekki leystur með Brexit New Economics Foundation kalla eftir "nýju hagkerfi“ og öðruvísi og grænni leiðum til að skipuleggja það. Framkvæmdastýra segir að breytingarnar verði að vera í samráði við fólk og að ávallt þurfi að gæta að félagslegu jafnr Erlent 9. febrúar 2019 07:00
Tígrisdýr í útrýmingarhættu lést eftir slagsmál í dýragarðinum í London Fyrstu kynni tígrisdýranna Asim og Melati fóru ekki eins og starfsfólk dýragarðsins í London hafði séð fyrir sér. Í stað þess að fella hugi saman drap Asim Melati í slagsmálum. Erlent 9. febrúar 2019 00:04
Handtekin eftir að fjögur börn þeirra fórust í bruna Lögregla í Bretlandi hefur handtekið karl og konu vegna gruns um manndráp af gáleysi eftir að fjögur börn fórust í eldsvoða í húsi í Stafford á þriðjudaginn. Erlent 8. febrúar 2019 15:52
Albert Finney fallinn frá Enski leikarinn Albert Finney, sem fimm sinnum var tilnefndur til Óskarsverðlauna, er látinn, 82 ára að aldri. Erlent 8. febrúar 2019 14:36
Ánægja með Corbyn hrynur þrátt fyrir veika stöðu May Færri treysta leiðtoga Verkamannaflokksins til að taka réttar ákvarðanir í Evrópumálum en May forsætisráðherra. Það gerist þrátt fyrir að vinsældir May séu litlar. Erlent 8. febrúar 2019 14:34
Réttindi íslenskra ríkisborgara tryggð eftir Brexit Samningaviðræðum er lokið á milli EFTA-ríkjanna innan EES, Íslands, Noregs og Liechtenstein, við Bretland um áframhaldandi búseturéttindi borgara ef útgöngusamningur Bretlands og Evrópusambandsins verður ekki samþykktur Innlent 8. febrúar 2019 11:33
Lögreglan staðfestir að líkið sem fannst var af Sala Lögreglan á Bretlandseyjum staðfesti nú í kvöld að líkið sem fannst í braki vélarinnar sem fórst yfir utan eyjuna Guernsey sé af Emiliano Sala. Fótbolti 7. febrúar 2019 23:00
May komin til Brussel að ræða baktrygginguna Ekki er búist við miklum árangri af nýjustu viðræðum breska forsætisráðherrans við evrópska ráðamenn í dag. Erlent 7. febrúar 2019 11:28
Búið að ná í líkið úr braki vélarinnar Aðgerðin fór fram við erfiðar aðstæður en vélin sem Emiliano Salah hrapaði í er komið á fast land. Enski boltinn 7. febrúar 2019 07:30
Tusk segir „sérstakan stað í helvíti“ fyrir forsprakka Brexit Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, segir sérstakan stað í helvíti fyrir þá sem hvöttu til útgöngu Breta úr Evrópusambandinu, án þess að hafa hugmynd hvernig ætti að gera það á öruggan hátt. Erlent 6. febrúar 2019 15:30
Hvetja íslenska nema til að halda sig við fyrirætlanir þrátt fyrir Brexit Menntamálaráðherra Noregs og Íslands eru ósammála um hvort óhætt sé að sækja um nám í breskum háskólum eftir útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu. Fulltrúar breska háskólasamfélagsins segja að þrátt fyrir óvissu sé lítið að óttast. Bæði ESB og Bretland vilji tryggja gott samstarf á sviði menntunar og rannsókna. Innlent 5. febrúar 2019 19:30
May heldur til Brussel til viðræðna á fimmtudag Breski forsætisráðherrann er sagður ætla að brýna fyrir evrópskum leiðtogum nauðsyn þess að þeir fallist á breytingar á svonefndri baktryggingu á írsku landamærunum. Erlent 5. febrúar 2019 14:32
Búið að finna lík í flugvélarbrakinu Eitt lík hefur fundist í braki flugvélarinnar sem Emiliano Sala var um borð í og hvarf yfir Ermarsundi í lok janúar. Enski boltinn 4. febrúar 2019 11:58
Breska lávarðadeildin undirlögð af úldnu keti María Lilja Þrastardóttir blótar þorra í lávarðadeildinni með Íslendingum um næstu helgi. Hugmyndin fæddist eftir daprasta blót sögunnar í fyrra. Innlent 4. febrúar 2019 09:00
21 Savage handtekinn, grunaður um að vera breskur Rapparinn 21 Savage hefur verið handtekinn og er á sakamannabekk, sakargiftir hans eru þær að hann er talinn vera breskur. Erlent 3. febrúar 2019 22:45
Nissan dregur úr starfsemi sinni í Bretlandi Japanski bílaframleiðandinn Nissan hefur dregið til baka áform sín um að framleiða nýja gerð X-Trail bíla í bresku borginni Sunderland. Brexit er ástæðan fyrir breytingunni. Viðskipti erlent 3. febrúar 2019 19:26
Búa sig undir að koma drottningunni undan fari Brexit á versta veg Kaldastríðsáætlanir um öryggi konungafjölskyldunnar hafa verið endurvaktar ef óeirðir brjótast út í London eftir útgöngu úr ESB án samnings. Erlent 3. febrúar 2019 09:10
May segist ákveðin í að Brexit fari fram á tilætluðum tíma Þrátt fyrir að leiðtogar ESB hafi útilokað að semja um írsku baktrygginguna svonefndu segist breski forsætisráðherrann ætla til Brussel með endurnýjað umboð, hugmyndir og ákveðni. Erlent 3. febrúar 2019 07:31
Segir að 600 ára gamalt málverk sé í raun á sextugsaldri: „Þetta er Bítla-greiðsla“ Listsagnfræðingurinn Cristopher Wright telur að málverk í eigu National Gallery safnsins í Lundúnum sem talið er að sé frá árinu 1450 hafi í raun verið málað á sjöunda áratug síðustu aldar. Erlent 2. febrúar 2019 23:22
Breski leikarinn Clive Swift látinn Swift var hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt í þáttunum Keeping Up Appearances. Erlent 1. febrúar 2019 17:50
ESB kallar Gíbraltar nýlendu Bretlands Yfirvöld Bretlands hafa kvartað yfir því að Evrópusambandið skilgreini Gíbraltar sem breska nýlendu. Sú skilgreining er talin sýna að ESB ætli að standa við bakið á Spánverjum í deilunni um svæðið í kjölfar úrsagnar Bretlands úr sambandinu. Erlent 1. febrúar 2019 15:51
Myndi sætta sig við frestun Graham Brady, formaður hinnar áhrifamiklu 1922-nefndar breska Íhaldsflokksins, sagðist í gær vel geta sætt sig við að útgöngudegi yrði frestað ef þörf væri á stuttum tíma til viðbótar til þess að koma útgöngusamningi í gegnum þingið. Erlent 1. febrúar 2019 06:00
Mögulegt að fresta þurfi útgöngu Breta úr ESB Í viðtali við BBC segir breski utanríkisráðherrann að ef nýr samningur næst rétt fyrir fyrirhugaðan útgöngudag gæti þurft að seinka honum á meðan mikilvægar lagabreytingar væru samþykktar. Erlent 31. janúar 2019 10:21
Leita aðstoðar vegna óhóflegrar áreitni í garð Meghan og Katrínar á samfélagsmiðlum Bandaríska fréttastofan CNN hefur þetta eftir heimildarmanni sínum. Erlent 30. janúar 2019 23:48
Segir ekki standa til boða að breyta Brexit sáttmálanum Jean-Claude Juncker, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, neitar að breyta Brexit samkomulaginu. Erlent 30. janúar 2019 19:00